Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.07.1998, Qupperneq 11

Bjarmi - 01.07.1998, Qupperneq 11
Guðlaug Björgvinsdottir (t.v.) og Hrund Hlöðversdóttir Huernig reiknið þið með að starfsemi félagsins fari helstfram? Hrund: Auk þess sem þegar hefur verið nefnt höfum vlð talað um að halda félagsfundi um það bil tvisvar á ári, þ.e. í upphafi haust- og vorannar. Á fundun- um yrði m.a. skipst á kennsluhugmynd- um og þær kynntar. Þær gætu síðan farið í hugmyndabankann. Guðlaug: Félagið mun síðan sjá um að setja kennsluhugmyndirnar á heima- síðu á netinu þar sem þær verða aðgengilegar íyrir kennara hvar sem er á landinu. Hvert er gildi þess að kenna kristinfræði í grunnskólum landsins að ykkar mati? Guðlaug: Mér finnst þetta vera ein af mikilvægustu greinum skólans og legg því mikla áherslu á hana með mínum nemendum. Þetta er undirstaða þess að geta skilið sögu og menningu þjóðar- innar, allt frá kristnitöku til dagsins í dag. Öll okkar menning er samofin Rristinni trú á einn eða annan hátt, bæði tónlist, myndlist, bókmenntir og saga. Siðfræðin byggist einnig á kristn- um hugmyndum og gildismati. Til að geta skilið menningu okkar og lifað samkvæmt þeim siðferðisgrundvelli sem við höfum tileinkað okkur er nauðsyn- legt að læra kristin fræði. Það er einnig mikilvægt til að geta skilið og skilgreint önnur menningarsamfélög og trúar- brögð að hafa góða þekkingu á eigin trú og menningu. Hrund: Ég er sammála þessu. í raun- inni er það svo að við erum alltaf að kenna kristin fræði meira og minna. Þó að tímarnir heiti ekki kristin fræði þá fléttast þetta alltaf inn í. Til dæmis þegar taka þarf á agamálum eða siðferði- legum álitamálum í skólanum þá teng- ist það strax kristinfræðinni. Þvi skiptir miklu máli að nemendurnir séu meðvit- aðir um innihald kristinnar trúar. Annað dæmi er helstu hátíðir sem við höldum. Hver svo sem trúarskoðun fólks er þá heldur það bæði jól og páska. Skólinn tekur þátt í því að kenna nemendum hvað býr að baki þessum hátíðum. Guðlaug: Mér finnst þetta skipta máli burt séð frá því hver trú eða bak- grunnur nemendanna er. Nú hefur það færst í vöxt að hingað ílyst fólk frá öðr- um löndum sem sumt er annarrar trúar en við. En ég tel mikilvægt að allir hljóti menntun í þeim trúarbrögðum sem eru ráðandi í landinu og hafa mótað menningu þess, til að geta skilið hana. Þannig getum við líka betur skilið hvert annað og borið virðingu hvert fyrir öðru. Þar koma trúarbragðafræðin einnig við sögu. Hrund: Mér finnst nemendur vera einlægir gagnvart kristinfræðinni. Það þarf að byija að kenna greinina strax í yngstu bekkjum og halda síðan þessari einlægni við. Börnin eru almennt opin og jákvæð gagnvart viðfangsefnum greinarinnar. Það erum frekar við full- orðna fólkið sem erum eitthvað treg til. Hvenær á svo að stofnafélagið? Hrund: Við stefnum að því að það verði í haust, nánar tiltekið í byrjun október. Þá ætlum við að halda annan fund þar sem kynntar verða kennslu- hugmyndir í kristnum fræðum og félagið jafnframt stofnað. Guðlaug: Við ætlum að reyna að auglýsa þetta vel og hvetjum þá sem áhuga hafa á stofnun félagsins að hafa samband við okkur og mæta síðan á fundinn.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.