Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 15

Bjarmi - 01.07.1998, Blaðsíða 15
Menntun er mannréttindi. Einhliöa áhersla á það eitt sem verður í askana látið er háskaleg. Enn sem komið er þykir mér slagsíða á því sem hirt hefur verið um nýja menntastefnu. Þar er vitsmuna- og tæknihyggjan með fyrirheit um framfarir og velsæld fyrirferðarmeiri en umræðan um menningararfinn, lífsgildin og siðgæðið. ætlað hlutverk í þeirri leit en eigi að síður ætti það að gegna mikilvægu hlutverki. Framhaldsskólinn þarf að vera vettvangur þar sem hægt er að kynnast, ræða og takast á við spurn- ingar um lífsgildin, tilganginn með veru mannsins, hugsjónir og siðgæði, svo nemendur öðlist forsendur til að taka afstöðu og koma sér upp lífsviðhorfum á grundvelli þekkingar og skilnings. Það vekur mörgum ugg hve stríðalin og dekruð börn vestrænnar velsældar eru mörg hver þjökuð af merkingar- og tilgangsleysi eigin veru. Hvað veldur? Hefur uppeldið og menntunin svikið þetta fólk um mikilvæga þætti sem heilbrigð sjálfsmynd og jákvæð lifssýn er smíðuð úr? Hefur efnishyggja, tækni- hyggja og áherslan á það sem hagnýta má með sýnilegum hætti ýtt til hliðar eða vanrækt það sem stuðlar að heilbrigðri mennsku? Trú- og skoðanafrelsi eru grundvallar mannréttindi. Þetta frelsi leiðir af sér fjölhyggju sem krefst umburðarlyndis en gefur jafnframt möguleika á að rætt sé um og tekist á um ólík viðhorf. En það þarf að gerast á grundvelli þekkingar og skilnings. Slík umræða er mikilvæg og stuðlar að þvi að menn haldi vöku sinni varðandi gildi sem þeir telja mikilvæg. Oftar en skyldi fer slík umræða fram á grundvelli tilfinninganna einna. Vissu- lega eru trú og lífsviðhorf tilfinningamál en þekking og skilningur eru eigi að síður burðarásarnir. En fjölhyggjunni fylgir einnig hættan á afstæðishyggju sem ekki nennir að leggja á sig að vega og meta lífsgildin. Slík afstaða leiðir auðveldlega til tómhyggju þar sem ekkert skiptir lengur máli. Gegn þessu getur skólinn unnið með því að taka þessa umræðu alvarlega og miðla þekkingu sem gerir hana mögulega. Menntun er mannréttindi. Einhliða áhersla á það eitt sem verður í askana látið er háskaleg. Enn sem komið er þykir mér slagsíða á því sem birt hefur verið um nýja menntastefnu. Þar er vitsmuna- og tæknihyggjan með fyrirheit um framfarir og velsæld fyrirferðarmeiri en umræðan um menningararfinn, lífsgildin og siðgæðið. Menningar- verðmæti verða sífellt að ávinnast á ný, svo framarlega sem þau eiga ekki að hverfa úr eigu einstaklinga og samfélags. Það yrði fagnaðarefni ef góð menntun sem íslennskir framhaldsskólar veita yrði enn betri með nýrri námskrá, þar sem farið yrði að dæmi nágranna okkar og þeim efnum sem hér hafa verið rædd gert hærra undir höfði en verið hefur. Eftirfarandi klausa í seinni bæklingnum „Enn betri skóli“ (apríl 1998) vekur vonir um að yfirstjórn menntamála hyggist nú nota einstakt tækifæri til að fylla upp í háskalegt tómarúm í mennt- un íslenskra ungmenna: í framhalds- skóla hafa krístinfræði og trúarbragða- fræðsla ekki verið á almennri námskrá eins og tiðkast í nágranalöndum. í nýrrí námskrá mætti huga að því hvort slíkar greinar geta rámast í kjarna, a.m.k. á félagsfræðibraut. (Hvort þær rúmast í kjarna er ákvörðunaratriði yfirstjórnar menntamála en ekki háð einhverjum óviðráðanlegum lögmálum. Innsk. höf.) í slíkum kjarnaáfanga myndu nemendur kynnast grundvallaratriðum kristinnar trúar, siðfræði og grunnþáttum annarra trúarbragða. Brýnt er að tillit sé tekið til trúarlegra þátta í námsgreinum á borð við sögu, félagsfræði og sálfæði. í lífsleikniáfanga á öllum brautum er eðlilegt að gera trúarbrögðum, lífsvið- horfum og siðjræði nokkur skiL ( Bls. 46). í grein sem séra Jóhann Hannesson kristniboði og þjóðgarðsvörður og síðar prófessor skrifaði í Kristilegt stúdenta- blað árið 1958 og bar heitið „Kristin trú og þarfir þjóðfélagsins" segir hann: „Uppeldi á heimilum og í skólum miðar ekki einvörðungu að þvi að veita mönnum hagnýta og fræðilega þekk- ingu. Það stefnir einnig að því að kenna mönnum að meta hin ýmsu verðmæti bæði almenn menningarleg verðmæti, trúarleg, siðgæðileg og þjóðleg verðmæti. Það er þessi síðari þáttur uppeldisins sem þroskar nemendur fremur hinum fyrri og er þar að auki miklu erfiðari viðfangs (leturbr. mín). Að verulegu leyti gengur vitsmunahyggjan (intelektúal- isminn) á snið við mat þeirra verðmæta sem ekki eru vitsmunalegs eðlis eða leysir það mjög einhliða af hendi. En meðan kristin trú var almennt í heiðri höfð, kom hún mönnum til hjálpar á þessu sviði. Verðmætt var í raun og veru aðeins það, sem gerði mönnum gott og gerði þá góða. Það, sem þjónaði þessu marki, taldist til hinna æðstu verðmæta. Þessi lífsskoðun gaf mönnum (og gefur enn) miklu meira jafnaðargeð og manngildisfestu en nú er almennt að flnna meðal nútímamanna. Gildismat veraldarhyggjunnar (secúl- arismans) miðast aftur á móti við þau verðmæti, er veita mikinn sýnilegan árangur á einhverju sviði, án tillits til, hvort sá árangur næst fyrir fórnfysi og atorku manna í starfí eða hann fenginn á annarra kostnað með einhveiju móti. Markmiðið er að komast áfram í lífs- baráttunni og flest meðöl teljast leyflleg til þess að ná þvi marki, enda hlýtur svo að vera, ef maðurinn er ekki dýrunum æðri að neinu öðru leyti en yflrburðum vitsmunanna." Þessi varnaðarorð eru enn í fullu gildi. í þeim kemur auk annars fram mismunurinn á kristnum mannskiln- ingi og mannskilningi veraldarhyggju- nnar. Það undirstrikar enn frekar mikilvægi vandaðrar umræðu um mannskilning og lífsgildi áður en gengið er til þess verks að ganga frá nýrri námskrá fyrir framhaldsskólann og ákvarða um hvaða námsgreinar skuli kenndar. Sr. Sigurður Pálsson er sóknarprestur í Hallgríms- kirkju í Reykjavík.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.