Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.07.1998, Page 20

Bjarmi - 01.07.1998, Page 20
Páll Bragi Kristjónsson rakti tildrög að stofnun Hjálparstofnunar kirkjunnar. og jafnframt vakin til vitundar um kristniboð. „Við skulum vera kirkja Krists í heim- inum, heiminum til lífs,” sagði biskup- inn að lokum. Mekane Yesus sem víðast Tveir prestar, sr. María Ágústsdóttir og sr. Miyago Þórðarson, og tveir leikmenn, Steinunn Jóhannesdóttir og Páll Bragi Kristjónsson, fluttu síðan stutt erindi. Sr. María undirstrikaði samhengið milli kristniboðs og endurkomu Jesú Krists. Hún minnti á orð Jesú í Mark. 1,15: „Tíminn er fullnaður og Guðs ríki er í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagnaðar- erindinu.” Þá vitnaði hún einnig til orð- anna í Matt. 24,14 þar sem segir að fagnaðarerindið verði prédikað um alla heimsbyggðina og þá muni endirinn koma. Hún hvatti til aukinnar áherslu á kristniboð og hjálparstarf í söfnuðum landsins, taldi það verða til eflingar safnaðarstarfl, en lagði jafnframt áherslu á að kristniboðshreyfinguna ætti ekki að gera að stofnun heldur ætti hún að vera virk meðal leikmanna. Sr. Miyago sagði frá reynslu sinrii sem útlendingur á íslandi, lýsti því hvernig hún hefði komist til kristinnar trúar og hvatti kirkjuna til að vera opna og vak- andi fyrir útlendingum. Margir útlend- ingar kæmu til íslands og blönduðum fjölskyldum fjölgaði. Kirkjan mætti ekki vera lokaður klúbbur. Hún fagnaði því að kirkjan hefði ráðið prest til að starfa á meðal þeirra sem flytja til landsins. Steinunn rifjaði upp kynni sín af kristniboðum í æsku og lýsti ferð sinni til lands þar sem islam var ríkjandi. Hún lagði áherslu á að mæta öðrum trúar- brögðum með virðingu en „við höfum betra system". Hún sagði að kvenna- kúgun þriflst oft í skjóli trúarbragða en menntun, sem fylgdi kristindómnum, hefði jáikvæð áhrif á stöðu kvenna. Hún vildi styðja það að Mekane Yesus kæmi sem viðast og vitnaði þar til orða Karls biskups sem hafði útskýrt að þetta nafn samstarfskirkju íslendinga í Eþíópíu þýddi „staðurinn þar sem Jesú er”. Páll Bragi rífjaði upp tildrög að stofnun Hjálparstofnunar kirkjunnar og kom fram að Sigurbjörn biskup Einarsson, faðir Karls biskups, hefði verið frum- kvöðull að stofnun hennar. Hann sagði að frá upphafi hafi stefnan verið sú að tvinna saman kristniboð og hjálparstarf. - Upp í huga tíðindamanns Bjarma kom sagan um bóndann sem hafði brotið talsvert land til ræktar. Hniginn á efri ár stóð hann ásamt syni sínum við mörk landareignarinnar og benti út yfir hið ónumda land. „Hingað komst ég," sagði hann, „nú átt þú að halda verkinu áfram." Framhaldið Að loknum framsöguerindum voru hópumræður, þar sem rætt var hvernig unnt væri að vekja áhuga á kristni- boðs- og hjálparstarfi og gera það að eðlilegum hluta af safnaðarlifi. Ýmsar hugmyndir komu fram, svo sem gagnkvæm samskipti, jafnvel „vináttu- söfnuðir", markviss fræðsla og tengsl við kristniboða. Þá var nefnt ýmislegt sem þegar er gert, t.d. átaksverkefni Reykjavikurprófastsdæmis vestra, „Fóm á föstu”, og það starf sem unnið hefur verið i Reykjanesprófastsdæmi. Hug- mynd biskups um heimsókn eþíópskrar fjölskyldu var vel tekið. Nefnd þjóð- kirkjunnar um kristniboð og hjálpar- starf mun vinna áfram með hugmynd- irnar. Almenn ánægja var með ráðstefnuna og það sem þar kom fram. Var greinilegt að ráðstefnugestir voru vongóðir um framhaldið og vonuðust til að kristni- boðið væri með þessu að „stimpla sig inn” í safnaðarlif kirkjunnar, svo að gengið sé í smiðju hjá iþróttafrétta- mönnum. Magnea Ámadóttir lék einleik á flautu og gaf það samverunni hátíðlegan blæ. Þá var kynnt var glóðvolg bók sr. Kjartans Jónssonar: Lifandi kirkja - um krístni- boðsköllun kirkjunnar. Sr. Kjartan afhenti herra Karli fyrsta eintak bókar- innar við þetta tækifæri. í lok samvemnnar var helgistund með Taize-sniði. Þaðan gengu menn með vorþrá í bijósti - í tvennum skilningi. Nokkrir ráðstefnugestir. Þeir voru sammála um að efla bæri þátttöku safnaðarfólks í kristnlboðs- og hjálparstarfi.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.