Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 31
Hljómar kynna
Andraé Crouch
Hrönn Svansdóttir
Aó hlusta á gospeltónlist nær ekki
aðeins til eyrnanna heldur ná tónar
og boóskapur inn til hjartans. Þaó hefur
alla vega verið tilgangur helstu tónlistar-
manna í þessum geira og er Andraé
Crouch þar engin undantekning. Ungur
helgaöi hann Guði líf sitt og tónlist og
nú, 58 ára aó aldri, stendur hann enn
vió það heit.
Andraé Crouch fæddist í Los Angeles
árið 1942 og ólst upp á því svæði, nánar
tiltekið í San Fernando Valley. Þar var
pabbi hans meó svertingjakirkju og
stundaði trúboð í fangelsum og úti á
götum hverfisins. Hann var heittrúaður
og mikill predikari. Þegar Andraé var níu
ára spurði pabbi hans: „Ef Guó gefur þér
tónlistargáfur, ætlar þú þá að spila fyrir
hann allt þitt líf?“ Óhikað svaraói
Andraé játandi og pabbi hans bað Guð
aó svo mætti verða. Stuttu seinna byrj-
aði Andraé að spila á píanó. Tónsmíð-
ar hans hófust u.þ.b. 5 árum seinna eða
þegar hann var 14 ára. Hann var stadd-
ur í grillveislu hjá vinafólki og var of
feiminn til að vera úti í garói meó öllu
fólkinu. Þar sagði hann vió Guð: „Ég
elska þig og ég vildi aó ég gæti samið
tónlist." Vinur hans Billy Preston, sem
þá var 12 ára en átti síðar eftir að starfa
mikið með Andraé, var staddur þarna
meó honum og byrjaói að spila nokkra
hljóma á píanóið og Andraé söng af inn-
lifun og samdi lag um leið. Fólkið í garð-
inum heyrði tónlistina og dróst inn og
var djúpt snortió, bæði af texta og lagi.
A þeim tíma hélt Andraé að þetta yrði
eina lagið sem hann myndi semja en
þetta var bara byrjunin. Lagið sem þarna
varð til heitir „The Blood Will Never
Loose Its Power“ og hefur verið sungið
víðs vegar um heiminn. Hann starfaði á-
fram í kirkjunni en snemma á sjötta ára-
tugnum stofnaði hann hljómsveit og hét
hún „Andraé Crouch and the Disciples".
Þeir ferðuóust víða og þaó var á þessum
árum sem
Andraé samdi
sínar bestu
perlur, lög
sem lifa enn í
dag og þá
hafði hann
einna mest
áhrif á tón-
listarmenn
n ú t í m a n s.
A þessum
tíma kom
Andraé með ýmsar nýjungar inn í gospel-
tónlist og þar var einnig að finna ýmis
utan að komandi áhrif. Samstarfi
Andraé og the Disciples lauk um miðj-
an níunda átuginn. A svipuðum tíma
fundust eiturlyf í fórum Andraé og þar
sem hann var þekkt nafn á þessum tíma
þá var þetta fljótt að fréttast. Hann var
sýknaður af öllum ákærum en dró sig í
hlé og fór aftur heim og starfaði í kirkj-
unni hjá pabba sínum og í rúman áratug
kom engin tónlist frá honum. í byrjun
þessa áratugar missti hann foreldra sína
úr krabbameini og þar á eftir bróður
sinn. Þá var svo komió að hann tók
sjálfur að veita kirkjunni forstöðu og ger-
ir hann það enn í dag ásamt tvíburasyst-
ur sinni Söndru. Arið 1994 kom loks út
diskurinn „Mercy" og var þar að finna
mikil áhrif frá popptónlist en þó ríkjandi
gospel-raddsetningar. Þremur árum
seinna kom út annar diskur sem heitir
„Pray“ og þar má finna gamla, góða
gospelió í bland vió R&B og popp. Það
var svo í fýrra að Andraé gaf út sinn fýrsta
jóladisk „The Gift Of Christmas“. Á hon-
um er ýmislegt aó finna, gömul, vel
þekkt jólalög eins og „Have Yourself A
Merry Little Christmas", „The Christmas
Song“ og „Come All Ye Faithful“. Einnig
eru á þessum disk lög eftir Andraé sjálf-
an. Eins og á öðrum diskum hans eru
margir flytjendur, bæði í söng og undir-
leik, m.a. Yolanda Adams, Patti Austin,
Chaka Khan, Kirk Whalum og Tata
Vega. „The Gift Of Christmas" er í senn
ferskur og í mörgu frumlegur en nær
vel aó halda jólastemmingunni á lofti.
Áhrif tónlistar Andraé Crouch má
finna víða í kristilegri tónlist í dag. Þar
má nefna nöfn eins og Winans-fjölskyld-
una, Take 6, M. W. Smith og Kirk Frank-
lin. Árið 1996 var gefinn út diskur þar
sem þetta fólk valdi sér lag eftir Andraé
Crouch, útsetti og flutti. Þessi diskur
heitir „Tribute - The Songs of Andraé
Crouch". Áhrifin ná út fýrir Bandaríkin
því gospeltónlist er mjög vinsæl í Skand-
inavíu og þar má mjög greinilega heyra
áhrif frá Andraé og lögin hans eru gjarn-
an sungin þar. Hér á Islandi er hópur
fólks sem hefur hlustað á tónlist hans í
gegnum árin og enn í dag er verið að
æfa upp gömlu lögin hans. Það var svo
í maí 1997 sem langþráður draumur
varó að veruleika þegar Andraé Crouch
kom til Islands og söng fýrir fullu húsi á
tónleikum á Hótel íslandi.
Áhrif gospel-tónlistar verða seint út-
listuð til hlítar. Þessi tónlist hefur breiðst
út víðs vegar um heiminn. Það sem er
sameiginlegt með helstu flytjendum
hennar er trúin á Guð og vonin sem
henni fýlgir. í lífi þessa fólks snýst þetta
ekki bara um tónlistina sjálfa heldur aó
ná til fólksins með þann boðskap sem
hún inniheldur. Þar er Andraé engin
undantekning.
L
31