Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 23
Jólaminning
frá Finnlandi
Carina Holmvik
Carina Holmvik og Ingólfur Þorbjörnsson ásamt börnum þeirra: Benjamin, Hönnu
Katrínu og Elnu Maríu.
Ibænum sem ég er fædd í, Jakobstad,
er sérstakur jólasióur sem er meira en
hundraó ára gamall. Við aðalgötuna
hengjum við upp trúartákn sem eru stórar
rauðar luktir: Kross, akkeri og hjarta, trú,
von og kærleikur, lýsa og sýna leiðina að
kirkjunni sem er í enda aðalgötunnar.
Fyrsta sunnudag í aðventu eru þessi tákn
komin á sinn stað.
Þessi tákn áttu fyrst að minna á og
heiðra þá sjómenn sem ekki höfðu tæki-
færi til að halda jólin heima. Táknin eru
núna líka notuð sem jólaljós til að hengja
í glugga í heimahúsum. Annað hvert
heimili á í dag þessi tákn sem einnig voru
vinsæl fýrir 35 árum. Þegar ég sé þessi Ijós
t.d. í höfuðborginni (600 km frá Jak-
obstad) veit ég að þarna býr einhver sem
tengist heimabæ mínum.
Ein af mínum fýrstu jólaminningum og
líka sú eftirminnilegasta er frá aðfangadegi. Ég er
u.þ.b. sex ára gömul með föður minum ein í bíl á leið
í bæinn þegar farið er að rökkva. Þetta er 10 km leið.
Pabbi er spenntur og ekur hratt. Hann verður að ná í
bæinn áóur en prentsmiójunni verður lokaó fyrir jól
til að sækja jólablaó íþróttafélagsins. Ég spyr um
margt eins og venjulega og ekki minnkar streitan við
það.
Þessi aðfangadagur er mér eftirminnilegur vegna
þess aó ég spurði pabbi minn hvaó þessi tákn þýddu.
Hann svarar mér: Þau eiga að minna á trú, von og
kærleika, það sem er mikilvægast um jólin. Ég skil
ekki alveg svarið og spyr aftur svo að pabbi verður
enn ergilegri. En hann svarar og um leið tala táknin til
okkar beggja. Streitan er horfin og ég finn jólafriðinn
koma inn í hjarta okkar. Við náum tímanlega til
prentsmiðjunnar og á leiðinni heim ríkir jólafriður.
Frá þessum degi gefa þessi tákn mér frió hvar sem
ég sé þau. Þau benda mér á það sem er mikilvægast í
öllu annríkinu.
Trú, von og kærleikur hanga í glugganum hjá mér
til að minna mig á heimabæ minn en fýrst og fremst
til að minna mig og alla sem þau sjá á orðin í 1. Kor-
intubréfi 13:13: „En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur."
A þessari jólahátíð, eins og hversdagslega, eigum
við að sýna trú okkar í kærleika. Gefum dýrmætustu
gjöfina, gefum tíma okkar þeim sem þurfa á okkur að
halda!
„Af því þekkjum vér kærleikann, að Jesús lét lífið
fýrir oss. Svo eigum vér og aó láta lífið fýrir bræðurna.
Ef sá, sem hefur heimsins gæói, horfir á bróður sinn
vera þurfandi og lykur aftur hjarta sínu fýrir honum,
hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í hon-
um? Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum,
heldur í verki og sannleika" (1 Jóh. 3:1 6-18).
Carina „Mimmi" Holmvik er hjúkrunarfrceðingur og vinnur a'
Barnaspítalanum. Hún er scenskumœlandi Finni. Flutti til
Danmerkur árið 1986 og hefur búið á Islandi frá 1989.
23