Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 8

Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 8
Þaó sem Guó gefur & Viótal: Agnes Eiríksdóttir Það er nokkuó kalt en þó mjög fallegt veður þennan sunnudagseftirmiðdag í nóvember þegar ég geng inn í Fíladelfíu, kirkju hvítasunnumanna í Reykjavík. Það er stutt í aó samkoma hefjist. Hún hefst með kröftugri lofgjörð til Cuðs. Eftir stutta bæn og tilkynningar heldur lof- gjörðin áfram. Það er augljóst að enginn er að flýta sér. Hér er greinilega ekki bara verið að syngja til að syngja heldur er fólk upptekið af því aó lofa Guð. Ræðumaður á þessarri samkomu er Sheila Fitzgerald og hún talar um Orð Guðs og hvernig það þarf að vera sá grunnur sem við byggjum líf okkar á. Við trommurnar situr Magnús nokkur Stefánsson, sem er þekktari fýrir að hafa spilað pönk- og rokktónlist, fyrst meó hljómsveitinni Utangarðsmönnum og síð- ar með öórum hljómsveitum. Þar sem okkur virðist nokkuð löng leið úr Utan- garðsmönnum upp á pa.ll í Fíladelfíu lék okkur forvitni á aó heyra sögu Magnúsar. Ég hafði mælt mér mót við hann og eftir samkomuna settumst við nióur á neðri hæó kirkjunnar þar sem ég fékk að heyra undan og ofan af lífshlaupi hans og til- drög þess aó hann „lofar Guð meó bumb- um“ í dag. Ég er ekki í vafa um aó þaó er jafnmikil uppörvun fyrir lesendur Bjarma og það var fýrir mig aó heyra hvaó Guð gerir í lífi fólks enn þann dag í dag. Ég bað Magnús aó byrja á því aó segja okkur aðeins frá uppvexti sínum og til- drögum þess aó hann fór að spila í hljómsveitum. — Ég heiti Magnús Stefánsson og er 41 árs. Fram til 18 ára aldurs ólst ég upp á Raufarhöfn við ósköp venjulegt uppeldi. Þaó var engin sérstök trúrækni á mínu heimili en pabbi söng í kirkjukórnum. Þegar ég var 16 ára kynntist ég séra Krist- jáni Val Ingólfssyni og konu hans, Mar- gréti Bóasdóttur. Þau hvöttu mig til að fara suður í tónlistarnám, sem ég og gerði. Ég fór i'Tónlistarskóla Reykjavíkur og lærði á slagverk, þar sem ekki var kennt á trommusett sem mig langaði í rauninni meira að læra á. Ég var mjög fljótlega virkjaður sem lausamaður í Sin- fóníuhljómsveit Islands, en síðan var ég skammaóur óbeint sem varð til þess að ég hætti bæði í Sinfóníuhljómsveitinni og Tónlistarskólanum. Ég sneri mér að því að spila pönk-tónlist því þar var örugg- lega ekki farið fram á neina kunnáttu. Ég kynntist þeim mönnum sem síðar stofn- uðu Utangarðsmenn og þaó liðu ekki nema þrír mánuðir þar til ég var farinn að reykja hass og neyta annarra fíkniefna sem neytt var í kringum mig, en hætti í staóinn að drekka brennivín eins og ég hafði gert sem unglingur. Eftir á að hyggja gerði ég þetta mjög mikið til að flýja hræðsluna og vanmeta- kenndina í sjálfum mér. Ég hafói auóvit- að engin viðmió af því að ég hafði ekki þann grunn að byggja á, sem er Guós Oró, og að geta staóið á þeim grunni hvað sem á gengur. Þetta gat ég ekki og ég þurfti eitthvað deyfandi eóa örvandi eóa slakandi eða bara eitthvað. Það end- aói með því að ég hætti í tónlistinni árió 1990, þ.e. hætti aó spila opinberlega og reyndi að stofna fjölskyldu. Það fór síðan út um þúfur 1996. Þá var ég orðinn tveggja barna faðir, en gat ekki losað mig við vímuefnin þannig að við skildum. 8

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.