Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 19

Bjarmi - 01.12.2000, Blaðsíða 19
syni. Á heimilinu var mikió sungió og leikið á gítar og mandólín, orgel og pí- anó og trúaðir vinir voru þar tíðir gestir. Vilborg réðst sem vinnukona á þetta heimili. Tókust náin kynni með henni og öðrum syninum, Gunnari, og gengu þau í hjónaband íjanúar 1950. Húsakynnum á Þórsgötunni var breytt þannig aó þau eignuðust séríbúð og þar bjuggu þau alla tíó. Hann lést 1980. Gunnar var farandprédikari. Hann hafói lært guðfræði og ferðaðist fyrst á vegum blaðsins Bjarma en var lengst af starfsmaður Kristniboðssambandsins.' Hann lék mikið undir söng enda afar góóur píanóleikari og hefði eflaust getað aflaó sér frama á tónlistarbrautinni ef Guó hefði ekki kallað hann til boóunar- starfsins. Fjölmörg sumur vann hann meðal drengja íVatnaskógi. Oft var Gunnar lengi að heiman, jafn- vel fimm til sex vikur í senn, einkum ef leiðin lá til Norðurlands eða Snæfells- ness. Vilborg leit stórum augum hlutverk hans, að boða fagnaðarerindið meðal fólksins og vekja áhuga á kristniboðinu, °g hún kveðst hafa beðið Guð þegar hún giftist aó hún yrói ekki til þe$s að taka hann frá prédikunarstarfinu. „Eg fékk það verkefni að biója fyrir starfinu. Gunnar skrifaði mér bréf á ferðum sín- um og þannig kynntist ég ýmsum að- stæóum og mörgu fólki víðsvegar um landið. Margir komu heim til okkar þeg- ar þeir voru staddir í Reykjavík. Eg vissi líka að kristniboðsvinir víða um land báðu fyrir okkur og fjölskyldu okkar. Gunnar Sigurjónsson og Ólafur Ólafsson. Myndin er tekin á sextugsafmœli Gunnars. 19

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.