Heima er bezt - 01.02.1955, Page 8

Heima er bezt - 01.02.1955, Page 8
40 Heima er bezt Nr. 2 Helgi Valtýsson: Á hreindýraslóðum Endurminningar Geitdælings XI. Haustveiðar. Stundum voru veiðiferðir farn- ar að hausti til, og fór ég í eina slíka ferð ásamt fjórum öðrum, og þá náðum við 13 dýrum. Spratt þá dýrabreiðan upp und- an okkur við Laugarána, rétt ofan við dalsbrúnina. Við áttum ekki dýra von, fyrr en við kæm- um inná Vesturöræfi, en svona fór nú það. Við vorum allir ríð- andi og fórum geist. Það kom því á okkur, er dýrin spruttu þarna uþpundan okkur rétt út- undir bæjum. Við stukkum af baki, en allir höfðum við skot- færin niðri í klyfjatöskunum, og var seint að grípa til þeirra, og allt of seint að nota þau við þetta tækifæri. Ég hafði að vanda nokkur skot í vösum mín- um og hljóp því á eftir dýrun- um uppá næstu hæð og skaut til þeirra og náði þremur. En þá voru líka skotin búin, og dýrin að hverfa, því þarna er mjög öld- ótt landslag. Þetta voru væn dýr. Við gerð- um þau til og fluttum með okk- ur í Laugarkofa. Þar vorum við um nóttina og næsta dag líka í þoku og rigningu, og nóttina á eftir. Síðan gerði bjartviðri. Var nú lagt af stað að leita dýraslóðanna, og höfðu þau sett vestur eftir eins langt og við gát- um rakið förin, en það var frem- ur stutt, og misstum við siðan af þeim með öllu. Samt töldum við, að dýrin myndu hafa sett inn á Vesturöræfin og leituðum þangað, en árangurslaust, og hurfum við aftur við svo búið, höfðum aðeins hlaup, en engin kaup. Þetta kostaði okkur tvo daga, þangað til við komum aft- ur í Laugarkofa. Þá voru þar göngumenn að koma undan Snæfelli, og sögðu þeir okkur, að dýrin hefðu þeir séð inni á Eyjabökkum. Fengu þeir síðan skammir fyrir þetta af einum réttarhöfðingjanna, er á réttina kom. En þetta hleypti í okkur nýjum móð, og lágum við nú í Laugarkofa um nóttina. Daginn eftir héldum við svo inn með Snæfelli og tjölduðum að kvöldi undir hæð nokkurri. Næsta dag var gott veður og vaknað snemma, því von var á að sjá dýrin þann dag. Þegar við vorum að fara frá tjaldinu, komu nokkrir hrafnar að heim- sækja okkur og voru svo nær- göngulir og vargslegir, að mér stóð hálfgerður geigur af og hélt, að illt myndi boða. En Jón Þor- steinsson, sem var ráðinn og roskinn orðinn, sagði að þetta myndi ekki vita á neitt annað en góð tíðindi, og við myndum veiða vel í dag, og krummi fá nóg í nef sitt. Reyndist þetta sannmæli. Við tókum okkur nú upp og riðum inn með Snæfellinu lengi vel, þangað til við vorum komnir innarlega með því. Þar eru harð- vellisbalar og mjög fallegt, er við stigum af hestunum, og jafn- vel vel byggilegt, þótt innarlega sé. Tókum við nú af hestunum og heftum þá. Eyjabakkarnir lágu með Jökulsánni hinum megin, og vorum við komnir um það bil inná móts við þá miðja. Jökulsáin, sem fellur út í hinn fagra Fljótsdal, kemur í tvennu lagi undan Jöklinum með nokkru millibili og myndar tungu, sem smámjókkar, eftir því sem utar dregur, og síðan er oddi yzt, þar sem kvíslarnar renna saman. Tunga þessi er flöt yfir að sjá, og sáum við nú hreindýrin um það bil í henni miðri á móts við okkur, en þó ekki greinilega, því að vegurinn var það langur til þeirra, enda voru þau samlit jörðinni, og flatneskja á milli okkar. Áin er talin ófær þarna sökum sandbleytu. Ég dró nú riffilinn minn uppá hæsta sikti, 2400 metra, og mið- aði honum hærra en á dýrin innan við þau, svo að þau gætu fengið að heyra þytinn af kúl- unni. Þetta heppnaðist prýði- lega. Dýrin tóku öll viðbragð og og hlupu út Tunguna og fram í oddann. Þar lögðu þau í ána og syntu norður yfir og settu upp- undir Snæfellið. Þar lögðust þau öll, eins og ekkert væri um að vera, og án þess að hafa nokk- urn vara á sér. Þarna læddumst við að þeim og skutum til þeirra og á eftir þeim og höfðum nokk- ur dýr. Hin settu inn með Snæ- fellinu, og við Björn Antoníus- son á eftir þeim. Þegar dýrin sáu hestana, sneru þau við og settu út með ánni, og skaut ég þá til þeirra á gríðarlega löngu færi, og sagði Björn mér, að eitt dýr hefði legið við skotið, en ég tók ekki eftir því, þareð það féll í miðri breiðunni, svo lítið bar á. Dýrin héldu út með ánni og hurfu okkur í öldunum, sem taka við utan við flóann mikia og grasgefna undan Snæfellinu að sunnan, og haft var eftir Þorvaldi Thoroddsen að fóðraði 40 kýr, já, og betur til, gæti ég trúað. Við fórum nú út með Snæfell- inu og ofan í þessar öldur, sem dýrin hurfu í, og uppí eina mjög háa öldu. En uppi á henni voru dýrin. Þegar við komum uppí öldubrúnina, voru dýrin svona í 20 faðma færi frá okkur og svo þétt, að hryggur var við hrygg. Var því góð veiðivon, ef samtök næðust. Við vorum allir saman, og bað ég nú þá að gæta þess vel, að dýrin yrðu ekki vör okk- ar, og enginn mætti skjóta á undan hinum, heldur allir í einu sem einn maður, er merki væri gefið. En rétt á eftir skaut Jón Þorsteinsson, áður en við vorum búnir að ákveða, hvernig skjóta

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.