Heima er bezt - 01.02.1955, Blaðsíða 9
Nr. 2
Heima er bezt
41
SKÍÐASTAÐIR I GLERÁRDAL.
Glerárdalur er 16 km. langur dalur suövestur frá KrtekUngahlið, og er nokkur hluti
dalsins i batjarlandi Akureyrar. Austan að honum liggja Súlur og Kerling, en aö vest-
anverðu Hliðarfjall. Svipmikið landslag er i dalnurn. Þar er skiðaland gott, og eru þar
nokkrir skálar fyrir skiðafólk. Er liklegt, að fjölfarið sé inn á Glerárdal um hessar mundir.
skyldi. Við sátum því allir eftir
með skotin í rifflunum, því að
dýrin hurfu ofan í dæld hinum
megin við ölduhrygginn og sá-
ust ekki aftur, fyrr en þau voru
komin svo langt, að tilgangs-
laust var að skjóta á eftir þeim,
nema þá aðeins til að herða á
þeim.
Það fór eins og fyrri daginn,
að Jón hitti ekki, en nú hafði
hann þó ætlað sér svo sannar-
lega að setja met og taka 2 eða
3 dýr með kúlu sinni, hvað sem
okkur hinum liði. Við litum til
hans með fyrirlitningu fyrir
þetta frumhlaup hans og höfð-
um skömm á honum þann dag
allan að minnsta kosti.
Dýrin stefndu nú í sveig uppí
Snæfellið, en við tókum beina
stefnu á eftir, yfir þveran fló-
ann, hver sem betur gat. En fló-
inn var blautur og grasmikill,
svo okkur sóttist seint yfir hann.
Við Sigurður bróðir minn urðum
fljótastir uppí fellið og tókum
að skjóta á eftir dýrunum, og
vorum við búnir að skjóta 3, er
hinir komu.
Dýrin settu nú upp með gili í
miðju Snæfellinu og héldu
nokkuð hátt uppeftir, en svo
komu þau aftur niður með sama
gili og yfir það fyrir neðan okk-
ur og tóku stefnuna inn og upp
og innfyrir Snæfellið, og skildi
þar með okkur.
Ég fór að skoða þetta gil, sem
dýrin stöðvuðust við og sneru
síðan frá. Það var djúpt og sum-
• staðar svo, að dimmt var niðri
í því og alls ekki hægt að kom-
ast yfir það, nema með því að
stökkva, og virtist mér, að það
hefðu dýrin átt að geta, þótt
þau gerðu það ekki. Þarna var
móberg í fellinu, og furðaði mig
samt á, að smálækur skyldi
vinna það svona djúpt niður, og
var hann þó þurr nema í leys-
ingum og rigningum.
Þá var nú eftir að ná einum
stórum tarfi særðum. Hann setti
í ána og ætlaði sér yfir og inná
Eyjabakka. Ég skaut hann á 100
föðmum úti í ánni, og lá hann
þar í grunnu vatni. Ekki þótti
okkur áin álitleg, en illt að
skilja dýrið þarna eftir. Lagði ég
til, að við væðum út til hans, því
ekki áræddum við að leggja hest
í ána vegna sandbleytu. Lögðum
við nú allir útí ána með kaðal
á milli okkar; var ég fyrstur, og
svo hver af öðrum, og komumst,
alla leið að bola, tók ég í hornin,
og drógum við hann síðan á eftir
okkur til lands, og gekk þetta
prýðilega. Fengum við góðan
botn í ánni alla leið.
Við fengum 10 dýr um dag-
inn, og fengu krummar að hirða
innan úr þeim öllum, og hafði
Jóni því ratast satt á munn, að
krummi vissi nefi sínu lengra,
enda réðst hann nú ekki aftur
á tjald okkar eða farangur. Við
fórum svo að gera dýrunum gott
og tína þau saman, og héldum
síðan útí Laugarkofa daginn
eftir.
Rétt hjá kofanum er volg laug,
sem hann dregur nafn af, og
var sagt, að Fljótsdælingar, kon-
ur jafnt sem karlar, hefðu fyrr-
um riðið þangað á sumrum til
lauga og haft gaman af, enda
er stutt þangað úr dalnum, veg-
urinn greiðfær og mjög fallegt,
þegar komið er innundir Snæ-
fellið, og þá sennilega oft geng-
ið uppá það, eða þá skemmra
eða lengra uppí hlíðar þess, því
þaðan er útsýni mjög tilkomu-
mikið, og því betra sem ofar
dregur, og mun enginn hafa séð
eftir þvi að hafa komist sem
hæst, og allra sízt upp á hátopp
þess.
XII.
Vetrarveiði á fjöllum.
Það var einn vetur í svo mikl-
um snjó, að sjaldan kom meiri
þar eystra, að mig langaði til að
skyggnast um dalinn eftir hrein-
dýrum. Ég lagði af stað á skið-
um og bjóst við að koma aftur
eftir 4—5 klukkustundir. Slétt-
lent er inn Geitdalinn og fljót-
gengið í sæmilegu skíðafæri. Mér
miðaði vel áfram inn dalinn, og
þegar ég kom inn í Miðártang-
ann, sem er tæplega tveggja
stunda gangur að heiman, sá ég
för eftir 2 dýr, sem lágu þar
austur yfir ána og uppí Lágu-
brún, sem kölluð er. Þessi för
voru ekki ný, en þó ekki eldri
en það, að ég bjóst við að sjá
dýrin inná Múlanum.
Mér gekk seint upp fjallið,
sem þó er bæði stutt og ekki
bratt, en ég varð að skríða upp