Heima er bezt - 01.02.1955, Blaðsíða 24

Heima er bezt - 01.02.1955, Blaðsíða 24
56 Heima er bezt Nr. 2 Þáttur Ég var fárra ára gamall, þeg- ar ég man fyrst eftir Helga frænda. Hann mun þá hafa ver- ið um fertugt. Mér varð all starsýnt á hann. Hann var svo ólíkur öllum, sem ég hafði séð. Höfuðið fyrir ofan augun var ákaflega stórt, en niðurandlitið við hæfi og frem- ur frítt. Skegg ljósjarpt, alskegg, alltaf greitt og vel hirt. Nokkuð var hann rangeygur, augun blá- grá, svipurinn gæðalegur. Feim- inn var hann og ódjarflegur; það var eins og hann væri sífellt að biðjast afsökunar á því að hafa orðið til. Hann var tæplega með- almaður á hæð og sýndist lægri vegna þess, hve hann seig nið- ur, þegar hann stóð. Hann var svo stirður um hné- og mjaðm- arliði, að hann átti mjög erfitt um gang; hann var ákaflega skrefstuttur, og þýfða jörð gat hann vart gengið, að komast upp á háa þúfu var honum ofraun, nema með því að skríða. Það var með ólíkindum, hve langt hann komst yfir daginn, þegar hann var á ferðalagi. Hann fór ætíð snemma af stað, kom hvergi til að hvílast eða fá sér hressingu, fyrr en áfanga var náð. Með þol- inmæði og seiglu keppti hann að markinu. Helgi fékk ungur svæsna bein- kröm, höfuðbeinin gengu í sund- ur og allir liðir urðu stirðir. Ung- ur missti hann föður sinn, gáf- aðan bónda, en fátækan. Þá fór ekkjan, gáfuð kona og skörung- ur, á sveitina og börnin tvístruð- ust. Yngsta drenginn skildi hún aldrei við sig. Helgi lenti á nokkrum hrakningi og má geta nærri, hvernig ævi hans hefur verið, þegar fátækt og harðýðgi var almenn og allir urðu að vinna baki brotnu til þess að sjá lífinu borgið, og skortur, þegar harðn- aði í ári. Baðstofur án upphitun- ar og lýsingin grútarlampi með reyk og stibbu, sem því fylgdi. Er Helgi var fullorðinn, dvaldi hann oft á heimili foreldra minna. Móðir mín var systir hans og sýndi honum mikið ástríki. Hversdagslega var Helgi svo af Helga búinn, að hann var í grárri prjónapeysu, hnepptri að fram- an, vesti og brjósthlíf dökk á lit, buxur gráar úr vormeldúk. Prjónahúfu á höfði með ofurlitl- um skúf í kollinum. Enginn hatt- ur var svo stór, að hann nægði honum. Á ferðalagi hafði hann klæðishúfu með skyggni og upp- broti, er draga mátti niður fyr- ir eyrun, þegar kalt var; var hann þá klæddur jakkafötum úr gráum eða móleitum vormeldúk. Aldrei sáust á honum óhrein- indi, enda var hann hverjum manni þrifnari. Hring úr gull- blending, sem einhver hafði gef- ið honum, bar hann ætíð á baug- fingri hægri handar; var hann alltaf skínandi fágaður. Væri Helgi spurður, hver væri kærast- an, var ætíð sama svarið: „Gröf- in og moldin.“ Vandaðri mann hef ég aldrei þekkt. Hann talaði aldrei last- yrði um nokkurn mann og blóts- yrði kom aldrei fram yfir varir hans. En væri honum þungt í skapi, sigu brúnir hans mjög, og djúpar og margar hrukkur rák- uðu hans breiða enni. Bænrækinn var hann; sofnaði aldrei fyrr en hann hafði þulið margar bænir og signdi sig, þeg- ar hann fór í hreina skyrtu. Og ekki var hann fyrr kominn út á morgnana, en hann þreif of- an húfuna og signdi sig og flutti bæn. Aldrei neytti hann svo mat- ar, að hann signdi sig ekki áður og bæði guð að blessa matinn. Þetta var barnsvani og því fylgdi trúaralvara. Hann fann til van- máttar síns frekar en þeir, sem hraustir voru, og hann lifði í þeirri öruggu trú, að hinum meg- in grafarinnar þyrfti hann ekki að dragast með þennan vanburða líkama, sem gerði honum lífið svo örðugt. Helgi var mjög barngóður. Ég heyrði hann aldrei tala styggð- aryrði til barna. „Hjartans barn!“ var æði oft ávarpsorð hans, og gerði hann sig þá mjög blíðan. Öllum börnum var hann mjög kær, því hann kunni ó- grynni af sögum og ævintýrum: malara útilegumannasögum, huldufólks- sögum og tröllasögum; var þetta sótt að mestu leyti í Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Aldrei heyrði ég hann segja börnum draugasög- ur; hann vildi ekki vekja hjá þeim ótta. Sögurnar sagði hann í rökkrinu og á sunnudögum; mátti enginn fullorðinn vera á- heyrandi. Einu sinni kom faðir minn inn i rökkrinu frá skepnu- hirðingu, og þegar hann heyrði, að Helgi var að segja sögu, fór hann hljóðlega. Þegar ljósið var kveikt og Helgi sá föður minn meðal áheyrenda, brá honum heldur í brún og hætti frásögn- inni. Málfar hans hafði blæ þjóðsagnanna. Hann sagði sög- urnar ekki í ágripi, heldur eins og þulu eða ljóð, án úrfellingar, og frásagan niðaði eins og læk- ur, sem líður fram hjá með hæg- um straumi. Mér er ekki ljóst, hvernig hann hefur numið þess- ar sögur, hvort hann hefur heyrt þær sagðar eða lesið þær. Hann var stirðlæs, en næmi hans var gott og minnið trútt, enda sí- felld upprifjun sömu sagna. Gott þótti Helga vín. Faðir minn, sem var mesti hófsmaður á vín, gaf honum einu sinni, er hann kom úr kaupstað, nærri axlarfulla hálfflösku af brenni- víni. Helgi varð léttbrýnn við, setti stútinn á munn sér og svalg vínið í löngum teygum, nuggaði magann með vinstri hendi og tautaði milli sopanna: „Ó, gott er það blessað." Og hann hætti ekki, fyrr en hann var búinn úr flöskunni. En þó að Helga þætti vínið gott, keypti hann aldrei flösku. Ef hann eignaðist nokkr- ar krónur, sem sjaldan bar við, því að peningar voru lítið í um- ferð fyrir aldamót, gaf hann þær móður sinni og systur, sem hann hafði yndi af að gleðja. Einkum var það Coghill sauða- kaupmaður, sem löngum dvaldi á Stóru-Borg hjá Pétri vini sín- um, sem gaf Helga peninga. Cog- hill var gamansamur og nokkuð stríðinn, en mesta góðmenni. Hann hafði gaman af að stríða Helga. Ef Helga sárnaði við hann,

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.