Heima er bezt - 01.02.1955, Síða 14

Heima er bezt - 01.02.1955, Síða 14
46 Heima er bezt Nr. 2 Ég er ekki að draga á langinn að segja það sem þið vitið. Þetta er bergmál. Fyrir 60 árum var ekkert berg gegnt blettinum. Fyrir 40 árum var kirkjan kom- in á móti brekkunni, timbur- kirkja. Síðar og þó fyrir mörg- um árum var steyptur gafl utan að kirkjunni. Það er nýi gaflinn, sem endurvarpar svona vel. í vissum skilningi erum við öll, allt eldra fólkið, á þessum bletti eða hann er í okkar gervi, ef þið kunnið betur við þá líkingu. Æskan er nýja bergið. Það sem við segjum og sýslum, gerir hún, endurvarpar hugsunum okkar orðum og athöfnum. Frá henni heyrist bergmálið. Ef við bölvum þá bölvar kirkjugaflinn sá — nýja bergið. Það er ekki alveg sama hvað er aðhafst þar, sem það blasir við — nýja bergið. Hér ber allt að sama brunni. Ef börnin eru að verða verri og verri, þá er það sönnun fyrir því, að okkur eru að verða allar bjargir bannaðar til þess að búa í bosið fyrir næstu kynslóð, eins vel og feður okkar og mæður fyrir okkur. En ábyrgðin fellur á okkur, svo aum erum við ekki að hjá því fari. Við getum sagt að unglingarnir hljóti að sjá það sjálfir að þeir megi ekki stela, ljúga, fara að öðrum og skemma fyrir þeim, gleðjast yfir óförum annarra, þeir eigi að sjá það sjálfir að þeir megi ekki drekka og drabba o. s. frv. Við getum með mörgu reynt að rugga á- byrgðartilfinning okkar í von um að hún sofni. En ekki fer þá bet- ur ef hún sofnar alveg. En til hvers er annars að_tala um þetta? Til hvers er að sitja við að skrifa um þetta? Það er til einskis og verra en það. Það er til þess að gera samvizkuna órólegri yfir eymd okkar, ef við gerum sjálf ekkert til þess að verða betri förunautar æskunn- ar, sem okkur er trúað fyrir og við berum ábyrgð á — betri en hingað til. Og það er auðveldara að segja en gera, því að það kostar fyrst og fremst hugar- farsbreytingu, bytlingu í hugs- un og hátterni heillar þjóðar, siðgæðisöldu almenningsálits svo þunga að hún skolaði hættu- legustu freisturum unglinganna út af þilfari. Það eru yfir fjörutíu ár síðan þessi saga gerðist: Heimilisfaðir, sem átti heima í fjallalausri flatlendissveit, ferðaðist, yfir eyðisand, í aðra sveit, hálenda, fjallaríka, með dreng sinn fyrir innan ferm- ingu. Feðgamir gistu á bæ sem stendur á háu fjalli og nær tún- ið svo að segja fram á þver- hnýpta fj allsbrúnina, á annað hundrað metra háa. Daginn eft- ir voru heimabörnin þar að leika sér og drengurinn með þeim. Hengiflug bergsins er á móti suðri. Það var gott veður en dá- lítill vindur af norðri svo að húf- an fauk af drengnum. Hann vildi ekki missa húfuna sína og elti hana, en gætti ekki að sér framar venju heima á sléttunni og hljóp fram af brúninni, á eft- ir húfunni. Udnir hömrunum lá hann svo, þegar að var komið. Sagan hans var á enda — litla drengsins af sléttlendinu. En hún er lærdómsrík. Hún sýnir að það er ábyrgðarhluti að láta börnin af sléttlendinu leika sér á fjallsbrúninni. Flest börn alast upp á slétt- lendi sakleysis og áhyggjuleysis fyrstu æviárin. Þau eru örugg, trúa öðrum fyrir sér, treysta á foreldra, vini og vandamenn. Þá er það líka þeirra styrkur. Sem betur fer er það mjög sjaldgæft að barn eða unglingur hlaupi í opinn dauðann, eins og litli drengurinn af sléttlendinu. En það er mörg hamrabrúnin. Börnin eru umkringd hættum. Misstórar eru þær og leyna þó margar á sér. Nokkrar hafa ver- ið nefndar, aðrar hér ónefndar. Meðal þeirra eru sléttlendis- hætturnar á götum borgarinnar (og annarra bæja) og nægir víst að minna á þær. Þær leyna á sér en leynast ekki. Hætturnar eru ýmist hlut- rænar eða hugrænar og er vafa- samt hvorar eru ískyggilegri, enda marg oft samtvinnaðar eða samofnar. Ein er sú hættugildra, sem allra sízt má gleymast að vekja athygli á. Hún er svo gríðarleg og tekur til svo margra. Hún leynir á sér eins og túnjaðarinn sem litli drengurinn hljóp eftir að fótmáli dauðans á fjallsbrún- inni. Það er snösin sem veit að hyldýpi áfengisnautnanna, öll- um viðsjál, en viðsjálust æsk- unni. í dansmóðu reykjandi karla og kvenna, stendur æskan oft heilluð og breiðir svo að segja faðminn út á móti sjálfum dauð- anum, umvefur „þann svarta“ og alla hans fylgifiska. í ástand- inu, sem skapast þar, verður út- koman oft býsna lík lýsingu Hallgríms á yztu myrkralífinu, þar sem ráfað er „frá einni plágu til annarrar.“ Þessa reginhættu sjá „hífað- ir“ menn hvorki né finna, þótt við aldur séu og komið hefur fyrir að hringiðan í þessum mikla drekkingarhyl hefur stig- ið mönnum svo til höfuðs í ræðustóli, að furðu sætti. Verð- ur það gátleysi, í áheyrn æsku- lýðsins, ekki afsakað. Hjá kenn- ara, mætti hiklaust telja það til siðferðisglæfra, því að af öllum freistingum, sem státað er með og stillt er upp við götu æsku- lýðsins eru áfengisgyllingar hrakl§gastar og hættulegastar. Það er ekki von að vel fari fyrir ungu kynslóðinni, ef mælsku- mönnum þjóðarinnar lýðst óá- talið að dæla brennivínshroka inn í huga hennar og sú inn- gjöf látin „grassera“ þar í viti hennar og kröftum, á æsku- skeiði. Þetta umburðarlyndi þjóðfé- lagsins við áfengishættuna og andvaraleysi þeirra, sem með völdin fara er okkar afleiðinga- ríkasta stórsynd á síðustu árum, einkum fyrir þá sök að mæður og tilvonandi mæður eru að komast (eða komnar) í „til- raunadýra“ hópinn. Fram að síðustu áratugum átt- um við mæðrum, eiginkonum, systrum og dætrum það_______að þakka að allt fór skaplega. Þær vörðu eiturdropunum að af- skræma andlit þj óðarinnar. Það hafði um langan aldur verið okkar lán, og verður aldrei full þakkað. Á meðan lagðist þjóð- inni alltaf eitthvað til. En það er heimskuleg heimtu- frekja út í þokuna að gera kröfu til þess að sonur eða dóttir kom- ist óspillt með ærustolti, á full- orðins aldur, ef þau á bams- (Framh. á bls.61)

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.