Heima er bezt - 01.09.1955, Qupperneq 2
258
Heima er bezt
Nr. 9
Þ j óðIe g t
h e i m i I i s r i t
_ 1 -v HEIMA ER BEZT . Heimilisblað með myndum . Kemur út mánaðar- lega . Áskriftaejald kr. 67.00 . Útg-efandi: Bókaútgáfan Norðri . Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 101 Reykjavík • Prentsm. Edda h.f. Abyrgðarmaður: Albert J. Finnbogason . Ritstjóri: Jón Bjbrnsson .
Efnisyfirlit
Bls. 259 Gömul Ferðasaga, eftir Magnús Magnússon, ritstjóra.
— 261 V.-Skaftafellssýsla fyrir Skaftáreld.
— 268 Frá Birni í Lóni, eftir Guðmund Arnason.
— 272 Bíldsfell og bændur þar, eftir Kolbein Guðmundsson.
— 275 Á verði um gullkistuna, eftir Guðmund Gíslason Hagalín.
— 281 Stífla í Fljótum, eftir Guðlaug Sigurðsson.
— 284 Úr heimi vísindanna. Myndasaga, skrítlur o. m. fl. er í heftinu.
Forsíðumyndin
Nú fara göngurnar að hefjast, frá fornu fari
einhver skemmtilegasti tími ársins fyrir börnin og
unglingana. í þetta skipti hefur göngunum víða
verið frestað, vegna hinnar óhagkvæmu tíðar í
sumar, sem án efa leiðir til hinna mestu vandræða
í ýmsum sveitum sunnanlands. Er því ekki við því
að búast, að menn hlakki eins til gangnanna þar
sem svona er ástatt, eins og þegar allt leikur í
lyndi og hlöðurnar eru fullar af kjarngóðu og ilm-
andi heyi.
Eigi að síður eru göngurnar hressandi tilbreyt-
ing frá önnum sumarsins og sannarleg hátíð, þegar
vel viðrar. En mikill vandi hvílir á herðum margra
bændanna í þetta skipti. Margir neyðast til að
skerða bústofn sinn að þessu sinni, og allir ættu
að skilja, hvílíkur skaði það er bóndanum, því að
það getur tekið ár að bæta úr afleiðingum eins
votviðrasumars. En fyrirsvarsmenn þessara mála
ræða nú vandamálin í blöðum og útvarpi og skal því
ekki farið um það fleiri orðum hér.
— Það hvílir alltaf einhver rómantískur blær
yfir göngunum. — Sennilega eru göngurnar sá
þáttur búskaparins, sem kemst hjá vélvæðingu nú-
tímans, því vart er hugsandi, að menn smali fénu
Úr „háttalykli" Lofts Guttormssonar
Orðskviðaháttur.
í fyrstu fríðar ástir,
fagurt sprund saman bundum;
tekst ef tveir vilja;
skyldum við skrautfold aldrei
skilja að okkrum vilja;
ei er gaman nema gott sé;
dyggð hefur beint ei brugðið
blíð snót við mig síðan;
maður er manns gaman;
víf skal því aldur og æfi
ítur drengur muna lengi;
unir auga meðan á sér.
Annar orðskviöaháttur.
Gott er af góðum að njóta,
góð er hönd bætandi,
nýtum skal nærri sitja,
náinn stendur oft hjá vandi,
satt er; sá hefur er hættir,
hver, er þorir, nær kjeri,
sök bítur, login lítið,
löngum man það getur ungur.
Munnvarp.
Þola má eg þetta,
þrjár eru hastastar:
frændur og fé láta
ellegar fljóð missa,
skjótt skal kjör kjósa,
því kostir eru ójafnir,
fyrr vil eg fljóðið spenna
en fé eður vini öðlast.
heim af afréttinum i bílum eða flugvélum. — Nei,
nú söðla menn gæðingana og búa sig út með nesti
og nýja skó til nokkurra daga dvalar inni á öræf-
um íslands. Og enn sem fyrr munu einkum ungl-
ingarnir, sem fara í fyrsta skipti í göngur, telja
dagana, þangað til riðið er úr hlaðinu heima, til
fyrsta náttstaðarins í óbyggðunum. Nýir ævintýra-
heimar opnast þeim, sem í fyrsta skiptið njóta
hrikafegurðar öræfanna og reyna sig við að elta
ljónstyggt féð og koma því til byggða. Og þegar
til byggða er komið, er eftir að draga féð í sundur
í réttunum. Réttardagurinn er öllum minnisstæður,
sem hafa átt heima í sveitum landsins, enda er
hann sannkallaður hátíðisdagur. Hvernig sem allt
er, er það einlæg ósk ungra sem gamalla, að haust-
sólin megi skína frá heiðum himni á réttardaginn,
svo að „allir, sem vettlingi geta valdið" geti mætt
við réttirnar og skemmt sér vel.
Forsíðumyndin er af Ölfusréttum, tekin af Þor-
valdi Ágústssyni.