Heima er bezt - 01.09.1955, Side 5

Heima er bezt - 01.09.1955, Side 5
Nr. 9 Heima er bezt 261 V-Skaftafellssýsla fyrir Skaftáreld beztu flokksmenn. Var hann ljúfur og lítillátur og mátti í engu marka á framkomu hans, að hann væri sér þess meðvit- andi að vera mestur mannvirð- ingamaður á landi hér. Er slík háttvísi einkenni tiginnar skap- gerðar og stórmennum einum tiltæk. Kom nú Óskar með hestana og voru þeir stærstu valdir undir þá Árna og Magnús og sýndust þeir þó merhryssi ein lítil, er þeir voru stignir á bak, og virt- ist svo á svip gæðinganna, sem þá furðaði stórlega á, hver sá undraþungi væri, sem á baki þeirra hvíldi. Var nú haldið af stað. Á milli Teigs og Seljalands er alllöng leið, aurar einir og sandar, sem Þverá og Markarfljót hafa myndað. Er eyðingin geysimikil, sem þessi fljót hafa valdið, og hún heldur sífellt áfram. — Kom mér í hug, er ég leit yfir þessa óravíðu sanda, að þótt miklu varðaði að klæða landið skógi, þá skipti það þó jafnvel enn meira máli ef hægt yrði að klæða fögrum gróðri alla sanda og mela fósturjarðar vorrar. Lítið vatn var í Markarfljóti og gekk allt slysalaust yfir það. Er að Seljalandi kom veitti sýslumaður kaffi af mikilli rausn, en siðan var stigið upp í bíl Óskars, fornfálegan Ford- skrjóð, sem reyndist þó betur en ætla mátti. Ekið var austur með Eyjafjöllunum. Var nokkuð farið að skyggja og skúrir öðruhvoru, en á heimleiðinni fengum við fegursta veður og nutum þá náttúrufegurðarinnar til fulls. Eru Eyjafjöllin einhver unaðs- legasta sveit á fslandi, þó margar séu fagrar, en ekki er fegurðin samt jafn stórfengleg, sem sumsstaðar í Skaftafells- sýslum. Bæjaröðin er þar víðast hvar tvísett. Er önnur röðin niður á sléttlendinu en hin með- fram fjöllunum. Standa efri bæ- irnir fast við fjallaræturnar og víða í unaðsfögrum hvömmum með bergrönum beggja vegna, en fjöllin vaxin grænum töðu- gresisgróðri upp fyrir miðjar hlíðar, en þar fyrir ofan rísa þau snarbrött, allavega lit og í ótal myndum og heillandi fögur. Eru Framh. á bls. 262. Fá héruð á íslandi hafa orðið fyrir jafn miklum breytingum og Vestur-Skaftafellssýsla. Allir þekkja Kötlu, sem oft hefur gosið og valdið stórkostlegum jökulhlaupum, sem fyrr á tím- um lögðu blómlegar sveitir í eyði. Sama máli gegnir um Ör- æfajökul, þótt hann hafi ekki gosið eins oft. En stórkostleg- ustu náttúruumbrotin urðu árið 1783, þegar Lakagígir spúðu eldi og eimyrju yfir sveitina. Margir bæir urðu undir hraun- flóðinu á vestari hluta Síðunn- ar og nokkrir í Skaftártungu. Flestir þessara bæja byggðust aftur upp í hálendisröndinni, en áður stóðu þeir á láglendinu undir lágum brúnum. Þar liggur nú Skaftáreldahraun fast að hlíðarbrekkunum, þar sem Skaftá hefur grafið sér þröngan fa,rveg milli hrauns og hlíða. Hraunið eyðilagði víðlend slægjulönd og fallega skógar- bletti, eins og Brandaland hjá bænum Skál. Nokkuð er óljóst um, hvernig landslag á þessum slóðum hefur verið fyrir Skaft- áreld, þó að hægt sé að gera sér grein fyrir því í höfuðatrið- um. Sœmundur Magnússon Holm, sem var fæddur og upp- alinn í Meðallandinu, en sú sveit varð mjög fyrir barðinu á hraunflóðinu, hefur lýst því að nokkru í riti sínu um Skaftár- eldinn: „Om jordbranden paa Island í aaret 1783“, sem gefið var út í Kaupmannahöfn og seinna kom út á þýzku. Eftir lýsingum Sæmundar og fleiri heimildum, gerði Þorvaldur Thoroddsen uppdrátt af Meðal- landinu og vestari hluta Síð- unnar, þeim sveitum, sem harð- ast urðu úti. Eins og sjá má af uppdrættinum, er rennsli ánna nú mjög breytt frá því sem var og lega bæjanna önnur. Nokkr- ir, eins og Nes í Skaftártungu, Hólmar í Meðallandi og kirkju- staðurinn Hólmasel hafa ekki byggzt aftur. — Uppdráttur sá, er hér birtist, kom upphaflega í danska landfræðitímaritinu og aftur í hinni miklu eldfjalla- sögu Þ. Th., sem birtist á þýzku nokkrum árum eftir dauða hans. Telur HEIMA er BEZT rétt að birta uppdrátt þennan, þar sem hann mun vera í fárra manna höndum.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.