Heima er bezt - 01.09.1955, Síða 7

Heima er bezt - 01.09.1955, Síða 7
Nr. 9 Heima er bezt 263 byggði bæ í Loðmundarhvammi og kallaði Sólheima. Þá er Loð- mundur var gamall bjó Þrasi í Skógum; hann var og fjölkunn- ugur. Það var einn dag, að Þrasi sá um morgun vatnahlaup mikið, hann veitti vatninu með fjölkynngi austur fyrir Sól- heima, en þræll Loðmundar sá og kvað sjó falla norðan um landið að þeim. Loðmundur var þá blindur; hann bað þrælinn að færa sér í dælikeri það, er hann kallaði sjó, og er hann kom aftur sagði Loðmundur: „Ekki þykki mér þetta sjór. Síðan bað hann þrælinn fylgja sér til vatnsins „og sting stafbroddi mínum í vatnið“. Hringur var á stafnum, og hélt Loðmundur tveim höndum á stafnum en beit í hringinn, þá tóku vötnin aftur að falla vestur fyrir Skóga. Síðan veitti hvor þeirra vatninu frá sér. Þar til er þeir fundust við gljúfur nokkurt. Þá sættust þeir á það, að áin skyldi þar falla, sem skemmst væri til sjáv- ar. Sú er nú kölluð Jökulsá og skilur landsfjórðunga. í þeim vatnagangi varð Sólheima- sandur“. Vér staðnæmdumst andartak við brúna, og bar þá að mann á rauðum hesti, sem fór mikinn. Var maður þessi á móts við bíl- inn, er hann rann fram hjá Eystri-Skógum, sem er alllangt vestur, en hafði nú dregið hann uppi á þeim rauða, enda þött ekið væri með 25—30 km. hraða á klukkustund. Er maður þessi steig af baki, þekktu þeir Jón og Óskar, að þar var kominn Þorlákur bóndi Björnsson í Eyjarhólum, en sá bær stendur hjá Eynni há, eða öðru nafni Pétursey, sem er skammt austan við Sólheimasand. Fannst oss mikið til um reiðskjótann og maðurinn all snöfurmannlegur, þótt ekki væri hann mikill vexti. Var hesturinn sveittur nokkuð, en blés ekki nös. Sýslumaður renndi girndaraugum til fáksins og spurði hvort falur myndi, en Þorlákur gerði þess engan kost, jafnvel þótt jarðarverð væri boðið. Þótti sýslumanni fast fyr- ir, og sá, að eigi tjáði um að leita. Sagði Þorlákur oss svo frá gæðingi þessum, að hann væri nú 8 vetra, hefði verið seldur til Reykjavíkur 6 vetra, en orðið þar fyrir árekstri af bíl og hvekktist svo við það, að Þor- lákur tók aftur við honum. Taldi bóndi, að hestur þessi mundi einna beztur austur þar og jafn- vel þótt víðar væri leitað. Var nú stigið aftur upp í bíl- inn en Þorlákur sté á bak fær- leik sínum. Hugðist nú Garðs- auka-Óskar að láta ekki Ford sinn verða undir í samkeppn- inni, og setti á ferð allmikla, en Þorlákur fló út í loftið, eins og ör af harðspenntum boga, og mátti hinn ameríski reiðskjóti ekkert við hestinum, sem skap- arinn, foreldrið og Þorlákur höfðu skapað og gert að snill- ingi. Komst sá rauði brátt úr ör- skotshelgi, þótt bíllinn rynni hart og óx fjarlægðin æ unz komið var austur undir Eyjar- hóla. Þá steig Þorlákur af baki og beið bílsins. Námum vér eigi staðar en sáum að sá rauði var ómóður og um það bar oss sam- an, að hann hefði runnið 15—17 km. á hálfri klukkustund. Hefur vart í manna minnum meira rið- ið nokkur íslendingur. Var nú haldíð samkeppnis- laust áfram austur að Hafursá. Hún var ófær fyrir bíla, en Ósk- ar hafði gert ráðstafanir til þess að taíll kæmi til móts við oss frá Vík. Maður kom ríðandi yfir ána austan frá, og var nú sá einn kostur, að selflytjast á hestin- um yfir foraðið. Varð það nú fangaráð vort að binda margra faðma langan kaðal við beizlið, svo að vér gætum dregið hestinn aftur yfir til vor. Þá samdist einnig svo um, að Árni skyldi fara fyrstur yfir, þá sýslumaður og svo hver af öðrum. Reið nú Árni yfir og bar sig karlmann- lega þótt straumurinn skylli hátt á síðu. Var síðan hesturinn dreginn yfir og sýslumaður stiklaði í söðulinn. Mátti þá sjá á svip þess brúna, að honum þótti mikið á sig lagt. Gekk þessi selflutningur slysa- laust, unz klárinn var dreginn yfir til hins síðasta. Hrasaði hann þá fram af ójöfnu í ánni nær því á sund, og sprengdi gjörðina, en hnakkurinn losn- aði. Hvekktist þá hesturinn, hrakti hann niður ána og flækti sig í kaðlinum og hnakkgjörð- inni. Brá Óskar sér þá út í og tók áin honum í mitti. Tókst honum með snarræði miklu að losa hestinn. Fannst oss, er á horfðum, mikið til um vaskleik hans. Var nú haldið af stað í hinum nýja bíl, sem var ferlíki hið mesta, og valt svo, að jafnvel sýslumaður og Árni héldust ekki kyrrir í sætum sínum, en við Jón ultum um eins og boltar. Gekk samt allt slysalaust unz komið var upp í sneiðingana á svonefndri Gatnabrún, en þar er bratti mikill og svimhátt niður að líta. Allt í einu stöðvaðist bíllinn, og var þá ekki annað sýnna en hann mundi hrökklast aftur eða velta á hlið niður brekkuna. Varð oss Árna litið niður og virtist svo báðum, sem vér mundum lítið sjá af Skaftafells- sýslu, ef vér færum þenna útúr- dúr. Varð það því fangaráð vort að stíga út hið skjótasta, og komu þeir Jón og sýslumaður svo á eftir. Gekk sýslumaður síðastur út og sá enginn á hon- um ótta, og að engu fór hann óðslega. En því trúði Árni oss Jóni fyrir síðar, að það hefði verið sér efst í huga, er hann hafði skynjað lífsháskann, að reyna að stilla svo til, að hann yrði ofan á sýslumanni, er þeir rynnu niður, ef vera mætti, að hinn mikli búkur Magnúsar gæti hlíft sér frá lemstrun og jafnvel bráðum bana. Svo fór að bíllinn sá að sér, er ekillinn hafði gefið honum væn- an slurk að drekka. Var komið til Víkur kl. 1, en hálf tólf hafði verið lagt af stað úr Reykjavík. Höfðum vér þurft víða um að litast og því ekki farið að neinu óðslega. Skildust nú leiðir. Æðsti mað- ur Framsóknar náttaði sig hjá Þórði Pálmasyni kaupfélags- stjóra, Árni fór til Guðna læknis Hjörleifssonar, en Jón og ég til þeirra Halldórssona, Jóns og Ól- afs í Suðurvík, en þeir eru upp- eldisbræður Jóns, og fengum vér þar hinar alúðlegustu móttökur. Veður var hið fegursta er risið var úr rekkju að morgni, sólskin og logn, og þá er vina-

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.