Heima er bezt - 01.09.1955, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.09.1955, Qupperneq 12
268 Heima er bezt Nr. 9 Guðmundur Árnason: FRÁ B IRNI I LONI Endurminningar Hinn 8. des. sl. andaðist Björn Guðmundsson í Lóni í Keldu- hverfi. Var hann frændi minn og uppeldisbróðir. Mig setti hljóðan. Minningarn- ar margar og sterkar, ljúfar og sárar, undarlegt sambland af sorg og gleði, tóku hug minn fanginn. í hans félagsskap — með honum — átti ég í æsku, og á unglingsárunum, nær því allar mínar skemmtilegustu og beztu stundir, frá því ég fyrst man eftir mér. En einnig margar erf- iðar stundir. Litlir sveinstaular vöppuðum við saman ofan að Lónunum, yndislegasta leikvang- inum — Paradís bernskuáranna — þar sem alltaf var að finna ný undur, ný verkefni, nýja skemmtun og gleði. Saman háð- um við orustuna við „Essið“ og unnum jafnsnemma sigur á því. Verðlaunin fyrir sigurinn með- tókum við á þann hátt, að við vorum bundnir í sama söðulinn, og vinnukona var látin teyma hestinn undir okkur yfir Tungu- heiði til Húsavíkur í okkar fyrstu kaupstaðarferð. Saman vorum við, er við tók- umst á hendur fyrsta sjálfstæða nytjastarfið: að vaka yfir vell- inum og verja hann ágangi bú- fjár. Saman röltum við á eftir Lónsánum á kvöldin, er okkur 10—11 ára gömlum hafði verið falið það ábyrgðarmikla og erf- iða starf að sitja yfir þeim á nóttum, langt frammi í heiði. Sameiginlegur kvíði gagntók okkur, þessi lítt þroskuðu börn, þegar þokan, ískyggileg og ógn- andi, tók að leggja landið undir sig og huldi allt sínum gráa feldi, svo að við óttuðumst, að við myndum tapa af ánum úr hjá- setunni. Saman kúrðum við í hnipri, blautir og skjálfandi, hvar sem eitthvert skjól var að fá, á milli þess sem við gengum í kringum ærnar, þegar norðan- Björn Guðmundsson. áttin með súld eða regni sat að völdum. En við nutum líka í heið- arkyrrðinni, með sameiginlegri hrifningu og gleði, dásamlegrar fegurðar hinna björtu, lygnu og hlýju sumarnátta, þegar eldrauð sólin, laus við hafsbrún, þokað- ist austur yfir Öxarfj arðarfló- ann, spegilsléttan, og gæddi himin, hauður og haf ósegjan- legu litskrúði. Saman vorum við að jafnaði að margs konar veiðum á sjó og landi og nutum sameiginlegrar veiðigleði. Og við vorum líka saman í erfiðum og hættulegum flutningaferðum á sjó á drekk- hlöðnum litlum árabátum, og í illviðrum og byljum við fjárleit- ir eða gæzlu sauðfjár. Báðir áttum við þess kost að fá meiri fræðslu og fara í presta- skólann. En hugur okkar stóð ekki til þess að takast það starf á hendur, heldur miklu fremur til veiðiskapar og sjómennsku. Saman lögðum við því af stað í hríðarveðri um hávetur með fatapinkla á baki yfir Tungu- heiði, áleiðis til ísafjarðar, þar sem við höfðum ráðið okkur á litla fiskiskútu til að fullnægja skilyrðum fyrir inntöku í stýri- mannaskólann. í sex vikur vor- um við á leiðinni þangað. Fyrsta áfangann gangandi. Þar næst á gufuskipi. Síðan á litlu fiskiskipi frá Akureyri til Aðalvíkur í ís og ótíð. Þá gangandi. Svo á hval- veiðabát. Og loks á árabát síð- asta spölinn. Af ýmsum ástæðum hurfum við báðir frá því að gera sjómennskuna að aðallífsstarfi okkar og héldum heim um haust- ið. Átján daga tók það að kom- ast á leiðarenda, og vorum við þó á stóru gufuskipi til Húsavík- ur. Ýmislegt sem við eignuðumst smátt og smátt, var sameign, sumt frá barnæsku og þar til leiðir skildu, er ég á þrítugsaldri hvarf úr föðurhúsum. Saman vorum við fermdir, og samtímis sátum við á brúðhjónabekknum. Og yfir öllum minningunum um samvistir okkar Björns í Lóni og samskipti síðar er bjart og fag- urt. Þar fellur enginn skuggi á frá hans hlið. Því miður get ég ekki sagt hið sama að því er mig snertir. Meðan vit og sjálfstjórn hafði ekki náð að þroskast nægi- lega hjá mér, hætti mér við að vilj a neyta hins óhappasæla rétt- ar hins sterkari, ef á milli bar, svo að sitt sýndist hvorum. En mjög sjaldan mun þó hafa skor- ist svo í odda okkar á milli, að til alvarlegra árekstra kæmi. Mun það hafa verið vegna hinn- ar miklu geðprýði og lipurðar frænda míns, sem hann varð-

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.