Heima er bezt - 01.09.1955, Side 17

Heima er bezt - 01.09.1955, Side 17
Nr. 9 273 lands aftur. Hann dó í Ameríku háaldraður. En eftir þetta átti Ófeigur aldrei í neinu stímabrakji við sveitarstjórnina, enda hætti hann búskap nokkrum árum síð- ar. Jón bjó myndarbúi á Bíldsfelli þó að það væri með nokkrum öðrum hætti en hjá Ögmundi föður hans. Jón lagði litla stund á jarðabætur, en hélt vel við því, sem búið var að gera, en bætti litlu víð. En aftur lagði hann meira í húsabætur, heldur en áður hafði verið gert. Hann byggði upp allan bæinn og breytti húsaskipun. Áður var þar gamaldags bær. — Hornbygging. — En Jón byggði húsaröð, lét stafna húsanna snúa fram á hlaðið. Hann byggði loftbaðstofu með stofu undir loftinu í fram- enda, stóra skemmu og smiðju- hús. Þilin voru þrjú, sem sneru fram á hlaðið, og bæjardyra- þilið hið fjórða. Á Bíldsfelli þótti vel húsaður bær hjá Jóni. En bærinn í Tungu hjá Ólafi þótti taka honum fram að snyrtibrag öllum. Jón byggði einnig öll úti- hús rúmbetri en þau voru áður. Sauðahús byggði hann að stofni yfir 100 sauði hjá fjárborginni, sem faðir hans lét byggja. Fjár- borgina notaði hann fyrir fjár- rétt, einkum á vorin, þegar sauð- irnir voru rúnir, og fyrir lamb- ærnar meðan stíað var. Þeim hjónum búnaðist vel, svo aið eftir 14 ára búskap var Jón bú- inn að kaupa mestalla jörðina af systkinum sínum, og skuld- aði hvergi. Það var vorhugur, sem kallað er, í sumum bændum á síðari hluta 19. aldar, þó að hann væri ekki eins almennur og nú um miðia 20 öld. Einkum kom það fram í jarðabótum og bættum húsabyggingum. Nokkr- ir bændur í nágrenni við Bilds- fell höfðu t.d. byggt geymsluhús úr timbri, bæði í Grímsnesi og Grafningi. Árið 1880 ræðst Jón í að bvggia gevmsluhús úr steini, því að hann hugði það mundi endast betur en timburhús. Grjót er nóg ít fiallinu fyrir ofan bæinn, og tiltölulega hægt að koma því heim að bænum. Dregur hann svo heim grjót um veturinn. Um vorið fær hann sér steinsmið til þess að höggva til grjótið og stjórna verkinu. Heima er bezt Sjálfur ætlaði hann að hlaða og vinna að byggingunni með sín- um mönnum. Hús þetta setti hann í bæjarröðina, þar sem gamla skemman stóð. Brátt kom það í ljós, að bygging þessi var erfiðari í framkvæmd en Jón hafði haldið að hún yrði. Sér- staklega urðu aðdrættir á sandi og kalki meiri og erfiðari en hann hafði gert sér grein fyrir. Sandurinn var ekki langt í burtu, en nógu langt til þess að mikill tími fór í að reiða hann á klökkum, ógreiðfæran veg. — Þá þekktust ekki hestvagnar. Allt varð að reiða á klökkum. — Sandurinn var reiddur í skrín- um. Kalkið og timbrið í þakið sótti hann til Hafnarfjarðar. Sement var þá ekki farið að nota til húsabyggingar. Kalkið var flutt óleskjað og mátti því ekki blotna í flutningum. Flutn- ingarnir urðu því svo miklir, að hestamir gáfust upp, þar sem þeir fengu aldrei einu sinni eins dags hvíld. Þá varð hann að fá hesta að láni. En það gekk ekki vel að fá þá. Flestir höfðu nóg við sína hesta að gera um vor- tímann, því að þá standa yfir aðdrættir til búanna. En margir nágrannar hans fluttu fyrir hann 1 hestburð af kalki. Bygg- ing þessi stóð yfir allt sumarið, en komst þó upp fyrir vetur. Þegar Jón sá fram á hvað sér mundi veitast erfitt að koma húsinu upp, tók hann það ráð að vanda það minna en hann hafði ætlað sér í byrjun. Það kom líka fram í endingunni. Það stóð í 14 ár. Þá var það komið að hruni, og var þá rifið. En svo komu afleiðingarnar fram á efnalegri afkomu Jóns. Byggingin hafði í för með sér tafir frá heyskapnum. Heyin urðu með minnsta móti um haustið. Heyfyrningar átti hann þó nokkrar frá fyrra ári, svo allt komst af næsta vetur. En heyin gengu öll upp og urðu tæplega nóg. Næsta sumar var grasleysisár, og þá varð hann heylaus, en varð þó ekki fyrir miklum halla á fénaði. Eftir þetta kom hann ekki fyrir sig heyjum, gaf alltaf upp, og varð stundum að fá hey hjá nágrönn- um sínum á vorin. Eftir 1880 versnaði árferði bæði til lands og sjávar, og afkoma fólks varð erfiðari bæði við sjó og í sveit- um. Tíðarfar versnaði, fiskafli minnkaði og fiskur féll í verði. Þetta með fleiru kom við fjár- hag Jóns, ekki síður en annarra og þó fremur en fjöldans. Jón var athafnamaður og fjölhæfur. Auk þess sem hann var duglegur bóndi, var hann ágætur sjómað- ur. Hann var t. d. lengi formað- ur á Hliði á Álftanesi, á áttær- ingi fyrir Kristján Jónsson, Mattíassonar, sem þá var einn af stærstu útvegsbændum þar. Jón var duglegur formaður og fiskaði vel og gat því valið úr mönnum fyrir háseta. Voru sveitungar hans hásetar hjá honum, venjulega fjórir ár hvert. Fleiri vildi hann helzt ekki hafa úr sinni fámennu sveit, ef slys bæri að höndum. Jón hafði því talsverðan stuðning af sjónum framan af búskaparárum sín- um, enda sá það á afkomu hans fjárhagslega á fyrstu 13 árum búskapar hans, þvi að þá byggir hann upp flest hús á Bíldsfelli og kaupir af systkinum sínum fjórum þeirra parta í Bildsfelli, sjötta hluta erfði hann, en einn erfingi vildi ekki selja sinn part. Eins og fyr getur, þrengdist fjár- hagur Jóns á síðari búskaparár- um hans, en eignunum hélt hann — fasteigninni og fénað- inum — þar til hann seldi allt og flutti til Ameríku 1887. Jón hélt sömu háttum í bú- skapnum og Ögmundur faðir hans hafði haft, hvað áhöfn snerti á jörðinni. Hann setti á vetur um 100 sauði og álíka margar ær, og um 80 lömb. Þetta var talin full áhöfn á jörð- ina. Kýrnar voru vanalega 6. Heimilisfólkið var sjaldan færra en 12, en á sumrin oft 1—2 fleira. Gestakoma var mikil á Bíldsfelli í tíð Jóns Ögmunds- sonar. Það var eins og allir ættu erindi að Bíldsfelli, sem á ferð voru um sveitina, og bar margt til þess. Jón var hreppstjóri og oddviti hreppsins, og höfðu margir erindi til hans þess vegna. Þar var orðlagt myndar- heimili. Leituðu því langferða- menn þangað til gistingar og annarrar fyrirgreiðslu, bæði innlendir og útlendir. Þar var tekið vel á móti öllum sem að

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.