Heima er bezt - 01.09.1955, Qupperneq 25

Heima er bezt - 01.09.1955, Qupperneq 25
Nr. 9 Heima er bezt 281 Guðlaugur Sigurðsson: Stífla í Fljó Nú liggja hinar sléttu og víð1 áttumiklu engjar í Stíflu undir vatni af völdum Skeiðsfossvirkj- unarinnar. Vatnsflöturinn nem- ur nú örskammt neðan við bæ- inn Knappstaði. Vestan við tak- mörk þessi liggur breið spilda upp að rótum fjallshlíðarinnar ofan við Gautsstaði og fram * að mynni Tungudals. Á þessu svæði liggja 3 stöðuvötn með engjahólmum á milli þeirra og árinnar, norðan frá stífluhólum og fram á milli Gautastaða og Þorgautsstaða, inn af framsta vatninu, (Gautastaðavatni) eru viðáttumiklar engjar fram undir Tunguá. Nokkru innar blasir Tungudalur við, breiður og tign- arlegur. Fegursta útsýni yfir Stíflu, er af innri brún Stífluhóla (Bröttu- brekku) og frá Þrasastöðum, fremsta bænum að austan. Það- an sér niður Stífluna. æfingu, en duglegir voru þeir, og var leikurinn gæddur miklu fjöri. Honum lauk með sigri Seyðfirðinga. Að honum loknum var hinum rússnesku keppend- um boðið til kaffidrykkju með sigurvegurunum. Þá er Rússarnir höfðu hlotið sinn dóm, lét Faxaborgin úr höfn og hélt út á miðin. Út af Loðmundarfirði hitti hún norskt síldveiðaskip innan landhelg- islinunnar. Norðmennirnir voru að bæta net. Skipstjórinn hlaut stranga áminningu, og þóttist hann auðsjáanlega góðu bættur að þurfa ekki að fara í höfn og sæta þar sektardómi. Þá er síldarvertíð lauk, fór Faxaborgin sunnan um land til Reykjavíkur. Út af Ingólfshöfða tók hún í landhelgi skozkan togara og fór með hann til Vest- mannaeyja. Þar var hann dæmdur í háa sekt. Þannig lauk löggæzlustörfum Faxaborgarinnar undir stjórn Þórarins skipherra Björnssonar. í Stíflu voru 15 bæir, nú að- eins 8 bæir. 1. Húnstaðir, nyrsti bærinn að austan og rýrasta jörðin í Stíflu. Lagðist í eyði 1934. Jón Jóa- klimssdn var þar síðasti ábú- andi. Tún og engjar eru nú að mestu undir vatni. Það litla sem nú er eftir, er nytjað frá Knappsstöðum. 2. Knappsstaðir. Landnáms- jörð. „Þórður knappur hét mað- ur, sænskur, sonur Bjarna at Haugi, annar hét Nafar-Helgi. Þeir fóru samskipa til íslands og komu viði í Haganes." „Þórður nam land upp frá Stíflu til Tunguár og bjó á Knappsstöð- um“ (Landnáma). „Maður er nefndur Þórhallur knappur. Hann bjó á Knappsstöðum í Fljótum.“ Hann var göfugrar ættar, og blótaði skurðgoð oð heiðnum sið, skyndilega hneigð- ist hann til kristni, fyrir áhrif draummanns, er réð honum að taka skírn og byggja kirkiu í stað hofs. Hann lét því byggja fyrstu kirkju á Knappsstöðum að ráði draummannsins. Hún er sögð elzta kirkja í Fljótum. (Heimild Þórhalls þáttur knapps). Kirkja hefur verið þar síðan. Þorvarður er nefndur fyrsti prestur á Knappsstöðum fyrir 1121. En séra Páll Tómasson var síðasti prestur þar, frá 1843— 1881. Var þá Knappsstaðapresta- kall lagt niður, og sóknin lögð til Barðs. (Prestatal og prófasta á íslandi). Knappsstaðir misstu nærri allt engi og hálft túnið undir vatn. Þar býr nú Hallgrímur Bogason. 3. Melbreið, missti allt að helmingi engja undir vatn. Þar býr nú Hannes Hannesson barnakennari. 4. Nefsstaðakot, var sameinað Nefsstöðum 1915, og er nú ekki til sem sjálfstæð jörð, síðasti á- búandi þar var Jón Bergsson. 5. Nefsstaðir, áður 2 jarðir, nú sameinaðar í eina. Á 17. og 18. t um öld bjó þar eitt af rímnaskáld- um Fljótamanna, Hjálmar Er- lendsson, fæddur um 1626. Um hann segir meðal annars í ísl. Æfiskr. III: „Bjó á Nefsstöðum í Fljótum, 77 ára 1703. Fékkst við lækningar og var hagleiks- maður. Eftir hann eru kvæði í Lbs. og rímur af Jósep Assen- ath.“ Nefsstaðir misstu undir vatn dálitla sneið af engjum meðfram ánni og hólma vestan árinnar. Þar býr nú Steinn Jónsson. 6. Lundur, missti ekkert undir vatn. Þar býr nú Guðmundur Sigurðsson. 7. Deplar fóru í eyði 1943. Síð- asti ábúandi þar var Þorvaldur Guðmundsson frá Þrasastöðum. Deplar misstu ekkert af landi undir vatn, eru nú nytjaðir frá Þrasastöðum. 8. Þrasastaðir, fremsti bærinn að austan. Það er nú mesta jörð- in í Stíflu, að henni liggja víð- áttumikil afréttarlönd. Varð ekki fyrir tjóni af völdum Skeiðfossvirkjunarinnar. Þar býr nú Hartmann Guðmundsson. 9. Mjóafell, fremsta jörðin að vestan, góð heyskaparjörð, eins og flestar jarðir vóru í Stíflu, að henni liggja mikil afréttar- lönd vestan Stífluár. Þar býr nú Jón Gunnlaugsson. 10. Hamar, annar bær að vest- an talið framanfrá, Fór í eyði 1924. Jón Sigmundsson var síð- asti ábúandi þar. Hamar missti undir vatn breiða ræmu af engjum nyrst. Jörðin er nytjuð frá Nefsstöðum. 11. Hringur, missti allar engj- ar undir vatn og túnið nema lítinn kraga kringum bæinn, fór í eyði 1946. Steinn Jónsson var eigandi og ábúandi jarðar- innar. Hringur er nú sameinað- ur Tungu. 12. Háakot, fór í eyði 1927. Þar bjó síðast Sigurjón Jónsson frá Mjóafelli. Háakot missti allar engjar undir vatn, en ekkert af túni. Það er nú sameinað Tungu.

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.