Heima er bezt - 01.02.1957, Síða 30
var eftir það nefndur Axarfjarðarhreppur, og er svo
enn þá.
Um fólkið, sem byggir Hólsfjöll, mætti margt gott
segja. Það þarf karlmannlegt þrek og öræfaást til að
heyja lífsbaráttuná í slíkri fjallabyggð. En fagurt og
heilnæmt er þarna á sumrum og þurrviðrasamt á öllum
tímum árs. — Þurrlent er í þessari fjallabyggð og kjarn-
góð grös. Sauðfé er fallegt og afurðagott, og kjötið er
óvenjulega bragðgott, eins og áður er sagt. Þótt byggðin
sé afskekkt á vetrum, þá er þarna þjóðbraut um miðja
sveit á sumrum. Er mikill fjöldi bíla og ferðamanna,
sem fara um Hólsfjallabyggð að sumarlagi, og liggur
þá leiðin ýmist um Axarfjörð eða Mývatnssveit.
Brúin á Jökulsá hjá Grímsstöðum var mikil sam-
göngubót og stytti mikið þjóðleiðina til Austurlands.
Þessi þáttur er ætlaður æskulýð til lesturs. Við meg-
um því ekki gleyma því, að á Hólsfjöllum eru líka börn
°g uppvaxandi æskumenn. Skólaskyld voru í fyrra sex
börn á Hólsfjöllum og fjögur í Möðrudal. Kennir sami
kennari á Hólsfjöllum og í Möðrudal, þrjá mánuði á
hvorum stað. Er mikill munur á uppeldisskilyrðum á
Hólsfjöllum og t. d. í Reykjavík. í Reykjavík eru börn
9 mánuði eða 33—34 vikur í skóla, en á Hólsfjöllum
tæpar 12 vikur. í Reykjavík er þröngt um æskulýðinn
og lokkandi ævintýr og freistingar á hverju götuhorni.
A Hólsfjöllum eru viðfangsefnin óþrjótandi, og öll
börn vinna að heill og gagni heimilanna, og sambúðin
við húsdýrin þroskar þeirra beztu eiginleika. En vitan-
lega fara þessi börn margs á mis, sem börn í þéttbýli
skemmta sér við, og má segja, að fjölbýli og strjálbýli
hafi hvort sína kosti og galla, en aldrei verður ofmetið
hið frjálsa líf æskumanna í fjallabyggðum íslands..
„Og væri ég blómstur, þá veit það mín trú, að vildi
ég, fjallablóm, lifa sem þú,“ segir Hannes Hafstein.
Stefán Jónsson.
Heilabrot
eftir Zoplionias Pétursson
SAGAN UM BOLTANN.
„Hvernig stendur á því, að boltinn boppar?“ sagði
Páll.
„Veistu það ekki, að ef gúmí lendir á hörðum fleti,
þá hrekkur það til baka með sama afli, og það hitti
flötinn,11 svaraði Pétur.
„Nú, en hann hoppar ekki nema dálítinn hluta af
leiðinni,“ svaraði Páll.
„Það gerir mótstaða loftsins,“ svaraði Pétur.
Þeir komu sér nú saman um að rannsaka þetta nánar,
og létu holtann falla 40 metra. Hann hrökk til baka
20 metra, og hélt áfram að hoppa þannig, að hann
hrökk alltaf helming leiðarinnar til baka hvert sinn,
unz hann nam staðar.
Hvað ætli hann hafi farið marga metra samtals?
FIMM FERNINGAR VERÐA AÐ FJÓRUM
FERNINGUM.
ir - - • —~— — 1“— i
1 i w • 1 1
Hér höfum við 16 eldspýtur, og mynda þær fimm
ferninga. Nú eigum við að flytja tvær, og aðeins tvær,
en ekki snerta hinar, og fá þannig 4 ferninga.
FERÐAMENNIRNIR Á GRÆNLANDI.
Saga þessi er nokkuð gömul, því slíkar rannsóknar-
ferðir og þessi eru nú lagðar niður. Nú hefur tæknin
tekið við í öllum rannsóknum þar sem annarsstaðar. —
Eitt sinn fóru fjórir menn í þeim tilgangi að athuga
sérstakan stað inni á ísbreiðunni. Utbúnaði þeirra var
þannig háttað, að hver maður gat aðeins borið nesti
til 5 daga, og þeir gátu ekki sparað neitt við sig í mat.
Nú stóð til að minnsta kosti einn þeirra kæmist eins
langt inn á ísinn og hægt væri, en hann varð líka að
hafa lágmarksnesti til matar á heimleiðinni. Þeir höguðu
því förinni þannig, að sá fyrsta snéri fljótlega við, og
hafði lágmarksnesti til að ná heim. Noklcru síðar fór
sá næsti heim — og með sama móti, og loks sá þriðji,
en fjórði rannsóknarm. hélt ófram seinasta áfangann,
en varð svo að snúa við til að geta haft nesti fyrir heim-
förina.
Hve margar dagleiðir tókst þeim, sem lengst fór,
að ná inn á ísinn?
Daniel Arnfinnsson:
KVÖLD
Líður blær um laufgræn engi,
lindin hlær við sólareldi,
huldumær á hörpustrengi
hljóma slær á björtu kveldi.
74 Heima er bezt