Heima er bezt - 01.03.1957, Qupperneq 16

Heima er bezt - 01.03.1957, Qupperneq 16
HÁKON GUÐMUNDSSON, hœstciréttarritari: Blahah í DÓMSMÁLUM tæst verður þá fyrir hendi mál, er deilt var um, hvort Rafmagnsveita Reykjavíkur væri skaða- bótaskyld vegna meiðsla og tjóns, er kona ein varð fyrir og hún taldi eiga rætur að rekja til vanrækslu starfsmanna í þjónustu Rafmagnsveitunnar. Málsatvik voru þessi: Að kvöldi dags hinn 1. október 1953 var reykvísk húsfreyja á leið niður Hverfisgötu ásamt eiginmanni sínum. Þau gengu eftir nyrðri gangstétt götunnar. Veður var þungbúið og myrkt. Er þau hjón komu á móts við Þjóðleikhúsið, féll konan í götuna. Hafði hún stigið í holu, sem var í gangstéttinni. Hola þessi var við ljósastaur. Höfðu hellur verið teknar upp úr gang- stéttinni og þeim staflað við hlið holunnar. Mun dýpt holunnar hafa svarað til þykktar gangstéttar hellu, en laus sandur var í botni hennar. Er konan féll, mun hún hafa fallið með brjóstið á hellustaflann og síðan á gang- stéttina, og hægri hönd hennar þá orðið undir í fall- inu. Konan, sem hlaut nokkur meiðsli við atburð þenna og skemmdi klæði sín, krafðist nú 'bóta úr hendi Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Kvað hún ástæðuna til slyss þess hafa verið þá, að starfsmenn Rarfmagnsveitunnar, sem rifið höfðu upp hellurnar vegna viðgerðar á raf- leiðslum, hefðu vanrækt að setja þær á sinn stað. Þeir hefðu ekki heldur sett upp hættumerki við holuna, vegfarendum til viðvörunar, og loks hefði ekki logað á ljóskeri Ijósastaurs þess, er holan var við. Taldi kon- an, að starfsmenn Rafmagnsveitunnar ætti sök á þessari vanrækslu og væri hún því skaðabótaskyld fyrir það tjón, sem af hefði hlotizt. Rafmagnsveitan krafðist hins vegar algerrar sýknu. Kvaðst hún enga ábyrgð bera á þessu óhappi. Starfs- menn hennar hefðu að vísu verið að gera við luktar- staur þann, er holan var við, en lokið við það og gengið frá verki sínu undir hellulagningu, en það starf heyrði hins vegar undir gatnagerð Reykjavíkur. Þá kvað Raf- magnsveitan, að hér hefði ekki verið um neina holu að ræða, heldur lítilf jörlega mishæð, er numið hefði nálægt gangstéttar-helluþykkt, en hellunum hins vegar verið staflað upp til viðvörunar. Enn kvað Rafmagns- veitan, að ljós hefði verið komið á ljóskerið, er starfs- menn hennar yfirgáfu staðinn. Taldi fyrirsvarsmaður Rafmagnsveitunnar, að slysið yrði af þessum sökum aðeins rakið til ógætni konunnar, og ef til vill ein- hverrar óheppni hennar. Það kom fram í máli þessu, að götugerðinni hefði ekki borizt nein tilkynning frá Rafmagnsveitunni um þessar mundir um það, að rifnar hefðu verið upp gangstéttar- hellur við Þjóðleikhúsið, er ættu að leggjast þar aftur. Ekki var heldur talið sannað, að logað hefði á ljóskeri staursins, þá er slysið varð. Hins vegar þótti Ijóst, eins og áður er rakið, að starfsmenn Rafmagnsveitunnar hefðu skilið þannig við verk sitt, að hola var í gang- stéttinni, en engin hættumerki þó sett upp. Héraðs- dómurinn taldi, að starfsmönnum Rafmagnsveitunnar hefði einmitt borið að vara vegfarendur við hættu þeirri, sem af holunni gat stafað, og það því fremur, sem myrkt var orðið og því erfiðara að varast hana. Var samkvæmt þessu dæmt, að Rafmagnsyeitan væri bótaskyld fyrir tjón, er af þessari vanrækslu hlauzt. En héraðsdómurinn leit einnig svo á, að konan hefði ekki heldur sýnt þá varkárni, sem krefjast yrði af veg- farendum, og þótti hún einnig eiga nokkra sök á því, hvernig fór. Varð niðurstaða héraðsdóms sú, að Raf- magnsveitan skyldi bera 3/4 hluta tjónsins, en konan sjálf 1/4 hluta. Fébótakrafa konunnar nam alls kr. 20.000.00, 'og sundurliðaðist hún þannig: Fataskemmdir 1910 krónur. Bætur fyrir sársauka og óþægindi 2600 krónur og vinnutjón og heimilishjálp krónur 15.490.00. Fatatjón sitt sundurliðaði konan þannig: Dragt 1500 krónur, sokkar 50 kr., hanzkar 75 kr., taska 250 kr. og hreinsun á kápu 35 kr. Ómótmælt var, að sokkar og hanzkar konunnar hefðu orðið gagnslausir og hreins- unarkostnaði á kápu var ekki mótmælt. Hins vegar taldi Rafmagnsveitan 1500 kr. allt of háar bætur fyrir skemmdirnir á dragtinni og bætur fyrir tösku taldi hún sér óviðkomandi. Það kom fram, að dragtin hefði verið ársgömul og að pilsið hefði rifnað svo, að ekki væri hægt að gera við það. Hins vegar var jakkinn óskemmdur. Þá var upplýst, að lásinn á tösku konunnar hefði dottið af og ekki hægt að fá annan. Að málavöxtum athuguðum þótti héraðsdómaranum skemmdir á dragtinni hæfilega metnar á 800 kr., en skemmdir á tösku 100 kr. Bætur fyrir sársauka og óþægindi þóttu hæfilega metnar kr. 2000.00, enda lá fyrir í málinu læknisvottorð um það, að konan hefði ekki enn náð sér til fulls tæpu ári eftir slysið. Hvað vinnutjónið snerti, þá kvaðst konan hafa verið rúmliggjandi í 2 eða 3 daga, og lengi vel ekki getað unnið nema hin léttari heimilisstörf, t. d. alls ekki Framhald d bls. 117. 100 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.