Heima er bezt - 01.03.1957, Side 17

Heima er bezt - 01.03.1957, Side 17
GAMLIR KUNNINGJAR Eftir JÓH. ÁSGEIRSSON Ci hefur það legið í landi hér, að réttirnar hafi verið nokkurs konar hátíðir, að minnsta kosti fyrir þá yngri og einnig þá, sem voru búnir að slíta barnsskónum. Og svo er enn, þótt það sé á nokkuð annan hátt en áður var. Oft var róstugt í réttum hér áður fyrr, og þótti skorta á skemmtun, ef svo var eigi. Enda kannske ekki tiltöku mál á þeim tímum, þegar slíkt var talið henta kirkjufólki. Að minnsta kosti er það haft eftir einni kerlingu, að nú væri orðið tilkomulítið að fara til kirkju, hjá því sem áður var, þegar menn komu með bólgið nef og blátt auga frá kirkju sinni. Það þótti ekld lítill vegsauld og upphefð hér áður fyrr að vera fjallkóngur. En nú er hætt að tala um fjallkónga, þeir eru kallaðir gangnastjórar. Og er það heiti sjálfsagt skyldara nútímanum. Fjallkóngur í fimmtán ár flaugst oft á við seggi. Myndugur og mektarhár mölvaði réttarveggi. Þessa vísu lærði ég þannig, en í Göngum og rétt- um, 3. bindi er svo frá sagt: „Eitt sinn hafði gangna- foringi kært gangnamann fyrir lélega frammistöðu og þótt fylgja kærunni fast fram. Þá kvað réttarstjórinn, séra Árni Jónsson á Skutustöðum, þessa vísu: Fjallkóngur í fjórtán ár flaugst ég á við seggi. Mikilsvirtur, mektarhár mölvaði réttarveggi. * í 4. bindi af Göngum og réttum kemur vísan aftur til skjalanna. Þar er sagt, að hún hafi verið gerð um Jón Sæmundsson hreppstjóra að Elamri í Þverárhlíð, og hafi hann verið hörku- og hávaða-maður mikill. Og er hún þar, eins og ég lærði hana í Dölum. Gömul vísa: Rannveig fór í réttirnar, ríðandi á honum Sokka. Yfir hálsa og hæðirnar hún lét klárinn brokka. Þessi vísa er ein af þeim, sem lærist, hvort sem maður ætlar sér að læra hana eða ekki. Og hér er önnur gömul: Ríður senn í réttirnar rjóður kvenna skarinn. Yfir fennur eggsléttar, alinn rennur gjarðarnar.1) Ég heyrði eitt sinn frá því sagt, að stúlka nokkur, er átti heima norður í Skagafirði, hefði átt reiðhest rauðan að lit, er hún reið ávallt í réttirnar. Hafi hún þá stundum brugðið sér á milli rétta, ef svo stóð á, til þess að sjá mann nokkurn, sem sagt var, að henni litist vel á. Og þá hafi þessi vísa átt að verða til, sem eignuð er séra Tryggva Kvaran: Rauður minn fær sprett á sprett, sprettinn þola má hann. Ég fer svona rétt úr rétt,' rétt til þess að sjá hann. En úr því, að ég fór að minnast á réttir og réttar- vísur, þá get ég ekki stillt mig um það að láta nokkrar vngri vísur fljóta með. Hún ætti að mega verða sam- ferða þessi: Þegar halda að hausti fer, heiðin kallar löngum. Hugurinn allur unir sér inn til fjalla í göngum. Sögð eftir Ásgrím frá Ásbrekku í Vatnsdal. Þórður Kárason gerði vísu þá, sem hér fer á eftir, eitt sinn, er hann var staddur á Hveravöllum í eftirleit. Og var hann þá að drekka kaffi: Þessi bolli lífsins laun ljúf og holl mun bera. En elta rollur út um hraun einn má skollinn gera. (Göngur og réttir.) 1) í septemberhefti „Heima er bezt" 1954 hefur Margrét Jóns- clóttir þriðja vísuorð þannig: Yfir lautir algrænar. Heima er bezt 101

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.