Heima er bezt - 01.03.1957, Page 20

Heima er bezt - 01.03.1957, Page 20
á íslandi, þá er hún þó ekki gersneydd allri íhaldssemi. Nákvæm rannsókn mundi efalaust leiða í ljós, að meiri líkur eru fyrir þurrki næstu daga eftir þurrkdag, en eftir rigningardaga, og á sama hátt meiri líkur fyrir kuldum næstu daga eftir kaldan dag en eftir hlýinda- dag. Með því að reikna út þessar líkur í mismunandi löndum má meira að segja sýna með tölum, hvað veð- urfarið er stöðugt á hverjum stað. En þessi íhaldssemi veðursins er auðvitað ekki bundin við einn dag al- manaksins fremur. en annan, þó að hún breytist að vísu nokkuð eftir árstíðum. Þessi trú manna á merkisdaga er efalaust sprottin af guðstrú. Enginn vafi er á því, að menn álitu, að skap- arinn réði daglegri veðráttu. Þannig töldu kirkjunnar menn, að harðindin á fyrri hluta 17. aldar væru makleg málagjöld fyrir guðlaust líferni þjóðarinnar. En þótt það væri fjarri mönnum að vanmeta nokkra þá ákvörð- un um veðrið, sem himnafaðirinn tók á rúmhelgum dögum, þá var ekki óeðlilegt að álíta, að það, sem hann ákvað á stórhátíðum kirkjunnar, væri þó sýnu áhrifameira og stæði lengur en hinar daglegu veður- skipanir hans. Þess vegna mun það hafa verið, að menn gáðu vandlega til veðurs, þegar komið var út frá messu- gerð. Mjög er trúlegt, að mest af þessari dagatrú sé komið aftan úr pápisku. Til þess bendir, að flestir merkisdagarnir eru messur dýrlinga, Máríu meyjar og postulanna. Og nú bið ég fólk að taka á þolinmæðinni, meðan ég tel upp helztu merkisdagana, en þeir eru þessir: Nýársdagur, Knútsdagur, Vincentiusmessa, Páls- messa, Kyndilmessa, Matthíasmessa, Pétursmessa, ösku- dagur, riddaradagur, boðunardagur Maríu, pálma- sunnudagur, föstudagurinn langi, páskar, sumardagur- inn fyrsti, tveggjapostulamessa, Urbansmessa, upp- stigningardagur, hvítasunna, Jónsmessa, Þingmaríu- messa, Margrétarmessa, Jakobsmessa, Lárentíusmessa, krossmessa á hausti, allraheilagramessa, Mikjálsmessa, Maríumessa fyrri, Bartolomeusmessa, höfuðdagur, Egi- díusmessa, Gallusmessa, Marteinsmessa, Tómasmessa og jóladagar. Alls eru þetta milli 30 og 40 dagar, sem mjög þótti mark á takandi um veður, og munu þó nokkrir ótaldir. En oflangt yrði að telja þau sérkenni, sem hverjum þeirra fylgdu. Til að festa sér þær reglur í minni ortu menn vísur, t. d. þessa fornlegu, stirðkveðnu stöku: Ef heiðríkt er úti veður á Pálsmessudegi, ársins gróða og gæða meður get ég að vænta megi. Af öðrum toga voru þær veðurspár, sem byggðust á teiknum og merkjum í náttúrunni. Ástæða er til að. halda, að flestar séu þær byggðar á nokkurri reynslu. Ef sú reynsla er nógu staðfest, má ætla, að töluverður sannleikur sé í veðurspánum, og skal ég nú reyna að finna þessa nokkur dæmi. Það þótti góðs viti, ef þoku lagði lágt, þegar hún kom af hafi síðara hluta dags á sumrin. Þetta má vel skýra. Háttalag þokunnar bendir til þess, að loftið sé aðeins rakaþrungið í þunnu lagi niður við jörð, og standi fjöllin hrein upp úr þokunni, má telja, að hið efra sé loftið þurrt. Nú er það vitað, að úrkomuhætta er því meiri sem loftið er rakara í allþykku lagi næst jörðu, a. m. k. upp í 1—2 km hæð. Ef bólstrakollarnir ná ekki þeirri hæð, er sennilegt, að veðrið verði úr- komulaust á meðan. Þokan, sem leiðist lágt og megnar ekki að lyfta sér upp í fjallahlíðar, er þess vegna merki þess, að ennþá a. m. k. sé ekki komið í byggðarlagið það loft, sem skíirahætta fylgir. Þessi regla hygg ég því að sé athyglisverð, og væri gaman að vita, hvort reynsla annarra bendir ekki til hins sama. Svipað má segja um þá veðurspá, að það boði úr- komu, þegar þokan leggst eins og ábreiða yfir fjalla- axlir seinni hluta dags á sumrin. Þá er sennilegt, að loftið sé rakaþrungið einmitt í því lagi, þar sem er heimkynni skúrabólstranna, í nokkurri bæð frá jörðu, jafnvel upp í 1—2 km hæð. í Skagafirði þykir það ills viti, þegar Mælifellshnjúkur setur upp hattinn, en svo hef ég heyrt það nefnt, þegar skýjakúfur hylur tind fjallsins, þótt engin ský séu neðar. Aftur á móti þykir það vita á þurrk, ef þokubelti sjást í hlíðum Mælifellshnjúks, en tindurinn stendur upp úr heiður. I efra borði þokunnar má þá ætla, að séu takmörk hins rakamettaða loftlags, og á meðan svo er, er óþarfi að óttast úrkomu. Mig minnir ég hafi heyrt, að Snæ- fell sé notað á líkan hátt sem veðurviti á Austurlandi. Víst er, að ýmis önnur fjöll eru höfð sem veður- boðar. T. d. veit ég að á Austfjörðum sjá menn oft áttarbreytingar fyrst á því, að þokubólstrar taka að myndast í tilteknum fjallahlíðum. Er þá innan skamms að vænta þeirrar vindáttar, sem stendur upp á þá hlið fjallsins. Hið sama mun einnig kunnugt á Suðurlands- undirlendi. Um allt land mun það hafa þótt vita á rigningu, ef mikið rauk úr laugum og hverum. Má vel hugsa sér, að þetta sé rétt. Mikill reykur bendir til þess, að loftið sé rakara og svalara en ella. En svalt loft og rakt er einmitt einkenni hafáttar í öllum landshlutum, og flest- um er kunnugt, að hún er einmitt úrkomusælust, sunn- anátt á Suðurlandi og norðanátt á Norðurlandi. Ekki er þó ótrúlegt, að undantekningar séu nokkrar frá þess- ari reglu, t. d. þegar rakinn er aðeins í þunnu lagi næst jörðu, eins og í þoku, sem læðist á láglendi og boðar þurrk eins og áður segir. í sambandi við þetta er gaman að hugleiða hið gamla orðtæki: „trúðu aldrei vetrarþokunni, þótt ekki sé nema ein nótt til sumars“. Af þessu má skilja, að á sumardegi sé einmitt ástæða til að trúa þokunni, og kemur það a. m. k. að nolckru leyti heim við það, sem áður getur. En er þá noklcur eðlismunur á vetrarþoku og sumar- þoku? Hann er sá, að sumarþokan, a. m. k. í innsveit- um, er að mestu bundin nóttinni. Þá er hitamunur dags og nætur mestur, og á daginn er gjarnan sól og breyskju- hiti, þótt áfall og dögg sé að nóttu. En á vetrum er sólskinið dauft, og þoku, sem einu sinni myndast, er 104 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.