Heima er bezt - 01.03.1957, Side 22

Heima er bezt - 01.03.1957, Side 22
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR STEFÁN JÓNSSON------------------------------------------------ NÁMSTJÓRI JÖKULDALUR OG JÖKULSÁ í DAL A llir þekkja söguna um Árna Oddsson, Einars- /\ sonar biskups. Þjóðsagan um ferð Árna Odds- / A sonar frá Danmörku til Vopnafjarðar og það- ^ an öræfaleið til Þingvalla, er í Þjóðsögum Jóns Ámasonar, II. bindi, bls. 122. Árni er í Danmörku í málastappi fyrir föður sinn, Odd Einarsson, biskup, en hann átti í miklum og hörð- um málaferlum við höfuðsmann Dana hér á landi, Her- luf Daa, sem almennt var af Islendingum kallaður Her- leg dáð. Herluf Daa var samtímis Árna í Kaupmanna- höfn, en þegar hann fréttir, að Árni muni hafa fengið uppreisn í málum föður síns hjá konungi, þá setur höf- uðsmaður farbann á Árna til íslandsferðar, en danskir kaupmenn réðu þá öllum farkosti milli Danmerkur og . ................ Dyrfjöll. — Þau njóta sín vel af Jökuldal. Þessi mynd er tekin nœr. íslands. Er sagt, að Árni hafi verið mjög hugsjúkur um afdrif mála föður síns, ef hann kæmist ekki til íslands, áður en dómar færu fram á Alþingi, því að öll skjöl, er snertu málið, voru í hans höndum. Segir þjóðsagan, að Árni hafi komizt yfir hafið á mjög dularfullum farkosti og tekið land í Vopnafirði austur skömmu áður en dómar áttu að fara fram á Al- þingi. — Frá Vopnafirði er löng leið til Þingvalla við Öxará, ef farin er venjuleg þjóðleið um byggðir, en Árni tók þann kostinn, að fara nær beint af augum um öræfi, hraun og eyðisanda, en um þá ferð Árna er þjóð- sagan. Pálmi heitinn Hannesson, rektor, hefur í útvarpserindi sumarið 1943 fært rök fyrir því, að frásögn þjóðsög- unnar geti staðizt. En hann var sem kunnugt er mikill hestamaður og aðdáandi hesta, þaulvanur ferðamaður og ágætlega kunnugur þeirri leið, er Árni Oddsson hef- ur væntanlega farið. Þjóðsaga þessi er öllum íslendingum hugstæð. Þetta afrek hests og manns, sem þjóðsagan greinir frá, á sér margar hliðstæður í íslenzku þjóðlífi. Á hættustund, þegar bráð veikindi eða slys bar að höndum í strjálum byggðum íslands, var það oft hinn göfugi þjónn íslenzkra bænda, hinn fótfrái, þróttmikli gæðingur, sem bjargaði lífi sjúldingsins með óbilandi hlaupaþreki og frábæru fjöri. í þjóðsögunni er það gæðingurinn frá Hákonarstöðum á Jökuldal, „rnjór, sem þvengur og sívalur“, sem barg heiðri biskups með harðfengi sínu og þoli. — Nú á dögum er það flugvél Björns Pálssonar, sem oft og tíðum rækir hlutverk gæð- ingsins, en sá er munurinn, að flugvélin flytur sjúkiing- inn til læknisins, en gæðingurinn flutti lækninn til sjúk- lingsins. Ekki eru allir á sama máli um það, hvaða leið Árni Oddsson muni hafa farið frá Vopnafjarðarkaupstað suður til jökla, en talið er, að hann muni hafa farið svo- nefnda „Biskupaleið“ vestur á Sprengisandsleið og bein- ustu leið sunnan jökla til Þingvalla. Til er gamalt kvæði, sem talið er að Jóh. Magnús Bjarnason skáld sé höfundur að. Kvæði þetta hefur einu sinni verið prentað, en það hefur lifað á vörum fólks á Austurlandi og gengið manna á milli í uppskriftum. 106 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.