Heima er bezt - 01.03.1957, Qupperneq 22
HVAÐ UNGUR NEMUR - ÞÁTTUR
RITSTJÓRI: ÆSKUNNAR
STEFÁN JÓNSSON------------------------------------------------
NÁMSTJÓRI
JÖKULDALUR OG JÖKULSÁ í DAL
A llir þekkja söguna um Árna Oddsson, Einars-
/\ sonar biskups. Þjóðsagan um ferð Árna Odds-
/ A sonar frá Danmörku til Vopnafjarðar og það-
^ an öræfaleið til Þingvalla, er í Þjóðsögum Jóns
Ámasonar, II. bindi, bls. 122.
Árni er í Danmörku í málastappi fyrir föður sinn,
Odd Einarsson, biskup, en hann átti í miklum og hörð-
um málaferlum við höfuðsmann Dana hér á landi, Her-
luf Daa, sem almennt var af Islendingum kallaður Her-
leg dáð. Herluf Daa var samtímis Árna í Kaupmanna-
höfn, en þegar hann fréttir, að Árni muni hafa fengið
uppreisn í málum föður síns hjá konungi, þá setur höf-
uðsmaður farbann á Árna til íslandsferðar, en danskir
kaupmenn réðu þá öllum farkosti milli Danmerkur og
. ................
Dyrfjöll. — Þau njóta sín vel af Jökuldal. Þessi mynd
er tekin nœr.
íslands. Er sagt, að Árni hafi verið mjög hugsjúkur um
afdrif mála föður síns, ef hann kæmist ekki til íslands,
áður en dómar færu fram á Alþingi, því að öll skjöl, er
snertu málið, voru í hans höndum.
Segir þjóðsagan, að Árni hafi komizt yfir hafið á
mjög dularfullum farkosti og tekið land í Vopnafirði
austur skömmu áður en dómar áttu að fara fram á Al-
þingi. — Frá Vopnafirði er löng leið til Þingvalla við
Öxará, ef farin er venjuleg þjóðleið um byggðir, en
Árni tók þann kostinn, að fara nær beint af augum um
öræfi, hraun og eyðisanda, en um þá ferð Árna er þjóð-
sagan.
Pálmi heitinn Hannesson, rektor, hefur í útvarpserindi
sumarið 1943 fært rök fyrir því, að frásögn þjóðsög-
unnar geti staðizt. En hann var sem kunnugt er mikill
hestamaður og aðdáandi hesta, þaulvanur ferðamaður
og ágætlega kunnugur þeirri leið, er Árni Oddsson hef-
ur væntanlega farið.
Þjóðsaga þessi er öllum íslendingum hugstæð. Þetta
afrek hests og manns, sem þjóðsagan greinir frá, á sér
margar hliðstæður í íslenzku þjóðlífi.
Á hættustund, þegar bráð veikindi eða slys bar að
höndum í strjálum byggðum íslands, var það oft hinn
göfugi þjónn íslenzkra bænda, hinn fótfrái, þróttmikli
gæðingur, sem bjargaði lífi sjúldingsins með óbilandi
hlaupaþreki og frábæru fjöri. í þjóðsögunni er það
gæðingurinn frá Hákonarstöðum á Jökuldal, „rnjór,
sem þvengur og sívalur“, sem barg heiðri biskups með
harðfengi sínu og þoli. — Nú á dögum er það flugvél
Björns Pálssonar, sem oft og tíðum rækir hlutverk gæð-
ingsins, en sá er munurinn, að flugvélin flytur sjúkiing-
inn til læknisins, en gæðingurinn flutti lækninn til sjúk-
lingsins.
Ekki eru allir á sama máli um það, hvaða leið Árni
Oddsson muni hafa farið frá Vopnafjarðarkaupstað
suður til jökla, en talið er, að hann muni hafa farið svo-
nefnda „Biskupaleið“ vestur á Sprengisandsleið og bein-
ustu leið sunnan jökla til Þingvalla.
Til er gamalt kvæði, sem talið er að Jóh. Magnús
Bjarnason skáld sé höfundur að. Kvæði þetta hefur einu
sinni verið prentað, en það hefur lifað á vörum fólks á
Austurlandi og gengið manna á milli í uppskriftum.
106 Heima er bezt