Heima er bezt - 01.03.1957, Side 24

Heima er bezt - 01.03.1957, Side 24
Þegar Árni kemur inn á þingið, er spurt í þriðja og síðasta sinn, hvort nokkur sé til andsvara í málum Odds biskups. „Þá gengur fram maður einn mikill og hár, og mannfjöldinn kennir hann strax. Hann yrðir á Herluf og alvara ströng á enninu hvelfda er skráð: „Já, eg er hér víst fyrir alföður váð, en ei þína, Herleg-dáð.“ Málum biskups er bjargað. Höfuðsmaður fellur í ó- náð hjá konungi, en Árni Oddsson verður lögmaður mikils metinn. Og það er hann, sem hnipinn og sorg- mæddur neyðist til að skrifa undir „einvaldsskuldbind- inguna“ í Kópavogi árið 1662. — Þremur árum síðar, árið 1665, er hann látinn. En þá víkur sögunni að Jökuldal og Jökulsá á Dal. Hinn 7. marz 1944 var ég staddur á bæ þeim, er heitir Hallfreðarstaðahjáleiga í Hróarstungu og er á leið upp á Jökuldal. Veður er ágætt. Suðvestan gola og sólskin. Hlýr fjallaþeyrinn leikur Ijúft um vanga. Undanfarna daga hafði verið hörkufrost og harð- viðri um allt Hérað. Stórfljót öll, ár og lækir eru á hellugaddi og glampandi hjarnið ginnandi reiðfæri. í nótt hefur hlýviðrið valdið leysingu. Lækurinn hjá Hallfreðarstöðum flóir ofan á ísnum, en ísinn er traust- ur. — Ferðinni er heitið upp á Jökuldal. En nú þarf ekki að krækja reiðgötur eða þjóðvegi. Nú má stytta sér leið og fara beint af augum, því að Jökulsá er öll á ágætu haldi, frá upptökum til ósa. Þessi mikli vatna- vargur er nú bundinn klakadróma og læðist hljóðlega til sjávar, blátær undir íshellunni. Jökulsá á Dal er eitt merkasta vatnsfall landsins. Hún er löng og venjulega vatnsmikil, en mikið af leið sinni fellur hún í þröngu gljúfragili. í vorleysingum er flug- hraður straumur í gljúfrinu, og áin fer hamförum, þar sem farvegurinn rýmist lítið eitt. Vatnasvæðið er mikil víðátta allt vestur til jökla, og margar þverár falla í hana beggja megin frá, en allt þetta feikna vatn á að- eins eina leið til sjávar, um hið þrönga gljúfragil. Um aldaraðir hefur áin farið hamförum niður gilið, en það rýmist lítið. Hinn tröllaukni kraftur vinnur seint á berginu. Aldirnar líða, en gljúfrið breytist lítið. Meðfram þessu gljúfragili liggur ein sérkennilegasta byggð á íslandi. Bæirnir standa strjált sitt hvorum megin árinnar, og upp á heiðinni, norðvestan árinnar, voru áður mörg býli, en veturinn 1944 er aðeins eitt þeirra byggt. Það er Heiðarsel. Tvö býlin, Ármótasel og Sænautasel, eru nýfarin í eyði, en önnur býli miklu fyrr. Býlin í heiðinni byggðu allt sitt líf á sauðfjárrækt. Túnin voru lítil, en heyskapur á engjum sæmilegur og fjárbeit góð. Víða í dalnum eru túnin slétt og falleg. Jarðvegurinn niðri í dalnurn er að mestu myndaður úr gamalli eldfjallaösku og áfold. Frá Brú, sem er efsti bær á Jökuldal, og út til sjávar í Jökulsárhlíð eru réttir 100 km, en í suðaustur frá Brú handan Jökulsár er Hrafnkelsdalur, en í honum eru að- eins tveir bæir í byggð, Aðalból og Vaðbrekka. Frá Brú eru nær 15 km að Aðalbóli, sem er lengra inn í dalnum. Ég gat þess fyrr, að byggðin væri strjál, og það er rétt. Víða eru 5—10 km milli bæja, en þegar hald er á ánni — þ. e. áin ísi lögð — er byggðin ekki strjál. Þá er Jökuldalurinn að vísu löng sveit, en þó víða stutt milli bæja. Þá bætast nýir nágrannar. Óvíða eru vöð á Jökulsá á Dal, og mjög sjaldan er áin reið, bæði vegna gljúfra og vatnsmagns. En á þessu stórfljóti hafa um undanfama áratugi verið aðeins tvær brýr. Önnur er á þjóðveginum hjá Fossvöllum, en hin hjá Hákonarstöðum. Á liðnum 10 ámm hafa verið gerðar aðrar tvær brýr. Önnur hjá efsta bænum, Brú, en hin neðan við miðjan dal, hjá Hjarðarhaga. Auk þess voru á ánni 1944 6 eða 7 drættir. Það eru kláfar, sem dregnir eru á stálstrengjum yfir gljúfrin. Kláfar þekktust áður víðar á landinu, en hvergi hafa verið eins margir drættir á einu stórfljóti og á Jökulsá á Dal. Þessir drættir eru sæmileg tæki, ef allt er traust, en ef eitthvað bilar, er dauðinn vís. Nokkrum sinnum hafa orðið slys við drætti á Jökulsá, en þær harmsögur skulu ekki raktar hér. Væntanlega útrýma brýr, bæði göngu- brýr og bílfærar brýr, þessum frumstæðu farartækjum á næstu árum og áratugum. — Kláfunum fylgir alltaf slysahætta, hversu vel sem að er gætt. Flutningur á þungavöru yfir ána í ldáfum er svo erfitt verk, að það fá naumast skilið nema þeir, sem reyna. Verður að bera vörusekkina um torleiði fram á gljúfurbarminn og rétta út í kláfinn. Reynir þetta mjög á strengina, þótt aðeins sé fluttur einn sekkur í einu. — Fyrir nokkrum árum lá við dauðaslysi í slíkum flutningum við kláfinn á Brú, en hreysti, harðfengi og hamingja björguðu í samein- ingu. Ungur bóndi, Páll Gíslason, var þá nýlega fluttur að Aðalbóli. Hann er þrekmenni mikið og flugsyndur. Þetta haust, er sagan gerðist, höfðu bændumir á Vað- brekku og Aðalbóli fengið allmikið af fóðurbæti í bif- reið upp að Brú, en þá var eftir að koma sekkjunum yfir Jökulsá. Allt var þetta í 200 punda sekkjum. Það þótti því vissara að athuga allan aðbúnað vel, áður en byrjað var á flutningnum, því að fara þurfti margar ferðir, og ekki mátti flytja nema einn sekk í einu. — Strengirnir voru orðnir dálítið slakir og þurfti því að strekkja á þeim eða herða þá upp. Til þess var notuð lítil talía, og gekk það ágætlega. — Slakinn hvarf af strengjunum og þeir virtust traustir. Var þá næst að prófa þol þeirra. Við þessa flutninga var bóndinn frá Aðalbóli og pilt- ur frá Vaðbrekku, 16 eða 17 ára. — Drengurinn vildi fyrst fara yfir á kláfnum, en bóndinn, Páll Gíslason, vildi þá heldur fara sjálfur. — Gljúfrið þrengir þarna mjög að ánni, og er því straumþunginn mikill. Talið hafði verið, að enginn gæti bjargað sér á sundi úr Jök- ulsá, en þó mun Páll hafa hugleitt það áður, eftir að hann kom að Aðalbóli, að ef til vill tækist hraustum sundmanni að bjargast þarna, ef lánið væri með. Byggði hann það á því, að straumkastið undir kláfnum virtist 108 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.