Heima er bezt - 01.09.1957, Síða 6

Heima er bezt - 01.09.1957, Síða 6
MAGNÚS BJÖRNSSON Á SYÐRA-HÓLI: i. l'ð.muxdur hét maður og var Magnússon. Hann var Snæfellingur að ætterni, fæddur í Hörgs- holti í Miklaholtshreppi 1783. Foreldrar hans ^ voru Magnús Magnússon, f. um 1744, og Þór- dís Ásgrímsdóttir kona hans, f. um 1754. Magnús er talinn skýr og skikkanlegur, en Þórdís skýr, vinnusöm, sæmilega kunnandi. Þessi hjón hafa því notið álits í betra lagi. Um uppvöxt Guðmundar er fátt kunnugt eða ævi hans, fyrr en hann er fullorðinn og fluttur að vestan norður í Húnavatnssýslu. Þar var hann vinnumaður í Langadal og víðar. Árið 1816 var hann kominn að Breiðavaði og vinnumaður hjá Jóhannesi Jónssyni, nafn- kenndum manni. Guðmundur var þá kvæntur og átti Ingibjörgu dóttur Þorleifs Þorleifssonar í Mjóadal. Þau fluttu síðar út Skagaströnd og bjuggu í Harrastaðakoti, Hofsseli, Bakka, Króki og jafnvel enn víðar. Guðmund- ur var hörzlumenni og hrotti, karlmenni mikið, skap- harður og ekki vinsæll. í meðallagi að vitsmunum. Ingibjörg kona hans var kölluð góðkvendi, hæglát og mjúkíynd. Þau voru fátæk, en björguðust sæmilega, því ómegð var lítil. Syni áttu þau tvo, og hétu Jónas og Guðmundur. Það var meðan þau bjuggu á Bakka, Guðmundur og Ingibjörg, að vetur gerði harðan. Er kom fram á út- mánuði sá Guðmundur fram á heyleysi. Hann hafði 14 lömb, sumir segja 18 í lambhúsi, en í hesthúskofa nærri bænum fóðraði hann rauðan hest, er Ingibjörg kona hans átti eða eignaði sér. Þótti henni mjög vænt um hestinn og lét sér títt um hann. Nú kom svo, að eydd voru hey úr lambhústóftinni hjá Guðmundi og mjög á þrotum í hesthústóft, en ótíðin hélzt linnulaus. Þá var það að Guðmundur fór ofan snemma morguns og gekk til húsa. Hann tók með sér beittan hníf og fór fyrst í lambhúsið. Hann tók lömbin hvert af öðru og skar þau öll ofan í króna. Er því var lokið, hlóð hann skrokkunum í bunka inn við króarstafninn. Að því búnu tók hann lambshöfuðin og fleygði þeim af hendi, einu í senn, inn í tóma tóft- ina. Er hið síðasta fór sagði hann: „Og sjáið þið nú, hvað þið hafið etið, helvítin ykk- U ar. Síðan gekk hann til hestsins. Er hann kom inn um morguninn, yrti hann á Ingi- björgu konu sína: „Það gengur víst eitthvað að honum Rauð þínum. Hann etur ekki. Hann er þó vanur að hvoma það, sem fyrir hann er borið.“ Ingibjörgu varð bilt við og gekk út í hesthúsið. Sá hún þá verks um merki. Guðmundur hafði borið töðu í stallinn fyrir Rauð, fjötrað hann síðan niður og skorið á háls, en skorðað svo með spýtum, að hann gat ekki BUNKA ÞÁTTUR fallið. Stóð hann var við stallinn, hálsskorinn og dauður. Ingibjörgu lá við ómegini við svo hroðalega sýn. Eftir þessi afrek var Guðmundi gefið kenningarnafn, og kölluðu menn hann „bunka“. Loddi það nafn við hann síðan. Guðmundur var ómannblendinn, og oftast var heldur fátt með honum og nágrönnum hans. Ekki var hann áleitinn að fyrra bragði, en óvæginn og illskiptinn, ef í deilur sló. Það er mælt, að þeir hittust eitt -sinn á fömum vegi, Guðmundur og Álagnús Jónsson, bóndi á Finnsstöðum. Bar þeim á milli út af viðskiptum. Deildu þeir fyrst, en síðan tókust þeir á allsterklega. Varð þeirra atgangur langur og harður, en enginn var til frásagnar um viðureign þeirra. Af þeim ftmdi komu þeir bláir og marðir, en rifin fötin. Magnús var nafn- togað hraustmenni, spakur að jafnaði, en ógjamt að láta hlut sinn. Hann hafði þau orð síðar, að sá væri enginn liðleskja, er færi illa með Guðmund bunka. Það hugðu menn, að þar hefði hvor etið sitt, er þeir áttust við. Guðmundur varð maður gamall, komst á níræðis- aldur. Hann lézt á Keldulandi hjá Jónasi syni sínum 6. júlí 1865. Hann var heilsuhraustur og aldrei meyr eða mjúkur í skaplyndi til hins síðasta. Ingibjörg, kona hans, dó sex árum fyrr, 28. janúar 1859. II. Jónas Guðmundsson var talinn meðalmaður til hvers er var, og ekki þar framyfir. Hann giftist Álfheiði Ólafsdóttur, ekkju Sigurðar Benediktssonar á Keldu- landi, og settist þar í gott bú. Álfheiður var dóttir séra Ólafs Tómassonar í Blöndudalshólum. Hún var vinsæl kona og gustukagjöm, og var Jónas henni góð- ur. Börn áttu þau ekki. Dóttir hennar, er hún átti ung heimasæta með Ólafi Tómassyni á Eyvindarstöðum, var Ingiríður, er ólst upp með móður sinni. Hún giftist Þorleifi Sigurðssyni lyfsalasveini, og var sonur þeirra Bertel skáld, er drukknaði í síki í Kaupmanna- höfn haustið 1890, þrjátíu og þriggja ára. Var sá aldur- tili ekki haldinn ósjálfráður. — Benedikt hét sonur Álf- heiðar og Sigurðar, fyrra manns hennar. Hann fórst 294 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.