Heima er bezt - 01.09.1957, Side 10

Heima er bezt - 01.09.1957, Side 10
lítt eru kunnugir staðháttum, kalla allar hlíðarnar frá Sjöundá inn undir Siglunes á Barðaströnd einu nafni Skorarhlíðar. Það er alrangt. Heimamenn vita betur. Sjöundárhlíðar heita hlíðarnar frá Sjöundá út í Skor, Skorarhlíðar þaðan að Stálfjalli, þá taka við Siglunes- hlíðar og enda við Siglunes á Barðaströnd. — Þetta eru þær hlíðar, sem í Landnámabók eru nefndar Berghlíðar, og er réttnefni. ° . — Dagur var að kvöldi kominn, þegar við Ivar kom- um heim úr þessum leiðangri. Eg hafði svikið af honum verk allan daginn. Þó gerðum við það litla gagn, að taka heim með okkur kýrnar, sem við mættum fram á Sjöundárdal og spöruðum með því litlum drengj- um nokkur spor um kvöldið. í dalnum voru líka hestar Ivars. Þeir höfðu ekki verið beizlaðir í tvö ár. Jeppar og dráttarvélar vinna öll þau verk á mörgum heimil- um, sem hestum voru ætluð áður — og þó mikið meira. Jarðræktinni hefur fleygt áfram, síðan þau verkfæri komu til sögunnar, en hún var hesttinum lengstaf ofur- efli og gekk því lítið. Þessi tæki eru því hin mestu þarfaþing, sem enginn bóndi getur með góðu móti án verið. Daginn eftir (29. júlí) hélst sama veðurblíðan, sól og birta um allar jarðir, svo langt sem séð varð. Að afloknum hádegisverði, og eftir að hafa þakkað fyrir mig að góðum sveitasið, lagði ég af stað frá Melanesi. ívar fylgdi mér fram fyrir túnið og leiðbeindi mér um götur í Skógadal, og hvar halda skyldi á heiðina. Ferðinni var heitið yfir Sandsheiði til Barðastrandar. Skógadalur er alllangur, vel gróinn og í honum skógarkjarr hér og þar. Neðst í honum er eyðibýlið Skógur. Þar bjó síðastur manna Magnús skáld Jónsson frá Kirkjuhvammi. Um dalinn falla nokkrar ár og gil. Mest er Suðurfossaá. Einhverntíma mun hafa komið til orða að virkia hana, og veita Rauðsendingum þaðan birtu og yl. I henni kvað vera nóg vatn til þess. Gott er að eiga slíkan orkugjafa við bæjarvegginn, þegar tækifæri gefst til að nýta hann. Sandheiði er stytzti fjallvegur milli Rauðasands og Barðastrandar. Hún var áður fjölfarin, en um hana fækkar nú ferðum með hverju árinu, sem líður. Götu- slóðar eru óreglulegir og vörðum illa við haldið. Hún er því ekki hentug vetrarleið í misjöfnum veðrum, eftir að snjóað hefur í fjöll. — Auk þess kvað vera óvenju villugjarnt á þessari heiði, og liggja til þess þær orsakir, sem nú skal greina. Endur fyrir löngu, létu Barðstrendingar smíða fyrir sig skip vestur á Rauðasandi. Þegar það var fullsmíðað, fóru þeir vestur, 18 saman, til að sækja skipið, og ætl- uðu að setja það yfir Sandsheiði. Þeir hrepptu vont veður á heiðinni, fóru villir vegarins og komu aldrei fram. En í vordögum fannst sltipið í vatni einu, ekki alllangt frá veginum, til hægri handar, þegar gengið er upp úr Skógadal austur heiðina. Haldið var að menn- imir hefðu allir dmkknað í vatninu, eða máske hrapað fyrir hamra í Skápadalsgljúfrum eða annarsstaðar á leiðinni til byggða, eftir að hafa misst skipið í vatnið. Vatnið heitir Dauðsmannsvam. Síðan þetta gerðist, þykir vera villugjarnt á heið- inni í meira lagi, og ekki laust við að hafðar séu i frammi við ferðamenn ýmiskonar glettingar. Ekki eru meira en einn eða tveir mannsaldrar síðan, að kona nokkur af Barðaströnd skrapp vestur í Víkur eftir steinbítsbagga. Það var um Jónsmessuleitið, þegar sól sezt ekki á fjöllum og konan þaulkunnug, á þess- um slóðum. — Henni gekk vel vestur. En á heimleið- inni hreppti hún þoku og ráfaði í villu 10 daga á þess- um fjallvegi með baggann á bakinu. Jafnan borðaði hún einn steinbít á dag og drakk vatn úr lækjum, sér til viðurværis. En þegar hún loks kom heim, vora allir steinbítarnir í bagganum — og allir heilir. Svona fjallvegir geta verið stórhættulegir nútíma- mönnum, sem ekkert kunna fyrir sér. Og ekki veit ég, hvort ég hefði árætt einn á heiðina, hefði mér verið kunnugt um þetta, áður en ég lagði á stað frá Melanesi. En sem betur fór, frétti ég ekkert um þessi ósköp, fyrr en hjá greinagóðum mönnum á Barðaströnd. En hvað sem öllum göldrum og gemingum líður, þá er gaman að labba Sandsheiði í góðu veðri. Útsýn þaðan er ein hin fegursta, sem ég hef séð af fjöllum vestra. Á aðra hönd eru há og hrikaleg fjöll, sem Skörð eða Skarðabrúnir heita. í norðurhlíðum þeirra vora enn stórir snjóskaflar, og skörtuðu óvenjuvel við dökka hamrana. Þykir mér ósennilegt, að þeir þiðni sumarlangt. Hæsti tindurinn heitir Napi. Af honum segja Rauðsendingar, að sjáist til Grænlands í góðu skyggni. Ég geri hvorki að neita því eða játa. — Mig hefur lengi langað til að sjá land Éiríks rauða, en ekki gerði ég mér ferð á tindinn til að sjá það. Mín sjón er líka tekin að bila. — Á hina hönd er Dauðsmanns- vatn og fleiri tjarnir, og allmiklu fjær Hrólfsvirki, hátt fjall uppi af Skápadal í Patreksfirði. Efst á því er allmyndarlegur bergkastali. Máske hefur einhver Hrólf- ur varizt þaðan óvinum sínum, meðan tíðkaðir vora bardagar í óbyggðum á íslandi. Segir nú ekki meir af þessari heiði, nema hvað veg- urinn liggur ofan að Holti á Barðaströnd. — Ég beygði út af veginum skammt fyrir ofan byggðina, gekk yfir skógivaxinn dal og heim að Skriðnafelli. — Þaðan hélt ég út að Siglunesi, og gisti þar næstu nótt. Þrjú era höfuðból á Barðaströnd, öll kunn og hin fegurstu frá náttúrunnar hendi: Siglunes, Hagi og Brjánslækur. Siglunes er yzt, og útvörður byggðarinnar við norð- anverðan Breiðafjörð. Þar brotnar útsynningshryðjan og bylgjan úr hafinu, áður en hún sogast inn í vaðla og víkur hinnar sólríku strandar. Fyrir mörgum árum hafði ég komið þar upp undir lendinguna, á litlum báti, hlöðnum salti, með Óskari bónda Nílssyni í Svefneyjum. Á var sunnan kaldi og vaxandi brim við ströndina. Leizt okkur þá ekki á blik- una, og varð ekkert af lendingu, enda báðir ókunn- ugir. Nú stóð ég þar á hlaðinu í bezta og blíðasta sumar- veðri, litaðist um og sýndist jörðin í flokki þeirra 298 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.