Heima er bezt - 01.09.1957, Page 17

Heima er bezt - 01.09.1957, Page 17
handan frá San Francisco. Háskólasvæðið er víðáttu- mikið, og eru sumar stofnanir skólans, t. d. kjarn- orkurannsóknastöð, reistar upp á fjallsbrún alllangt fyrir utan og ofan sjálft hverfið. Nálægt miðju hverfi rís turn einn mikill, og er þaðan hin bezta útsýn um hverfið sjálft og yfir flóann til San Francisco og Gullna hliðsins. í háskólanum tók Dr. Ralph Chaney prófessor á móti mér. Hann er jarðfræðingur, og sérgrein hans plöntu- steingervingar. Sýndi hann mér stofnun þá, er hann ræður þar í háskólanum, voru þar margir hlutir merki- legir og girnilegir til fróðleiks af milljóna ára göml- um steingervingum frá mörgum löndum. Að lokinni þeirri skoðun bauð hann mér til snæðings í matsal háskólakennaranna. Þegar við komum inn í salinn, mæt- ir okkur aldraður maður, virðulegur og bjartur á svip, enda hvítur fyrir hærum. „Nú bar vel í veiði,“ segir dr. Chaney, „því að þarna er landi þinn, sem þú áreið- anlega hefir gaman af að hitta.“ Kynnti hann mig því næst manni þessum, sem var dr. Sturla Einarsson, stjörnufræðingur og fyrrverandi prófessor við Cali- forníuháskóla. Er hann bróðursonur Indriða skálds Einarssonar. Sturla er 76 ára að aldri, en svo ber hann aldurinn vel, að vel mætti ætla hann um eða innan við sextugt. Hann er léttur í spori, enda gengur hann þrjár mílur á degi hverjum inn til háskólans, en þar hefir hann vinnustofu og nóg að starfa, þótt hættur sé kennslu. Meðal annars er hann ritari í stjömufræði- félagi Californíu, og er það eitt ærið starf. Átti ég lengi tal við hann eftir að ég hafði kvatt dr. Chaney. Sýndi hann mér margt og kunni frá mörgu að segja, og er hann í senn gamansamur og gerhugall. Einkum fræddi hann mig um háskólann og starfsemi hans. Kvað hann miklar kröfur gerðar þar til kennara, og kæmust þar ekki að aðrir en úrvalsmenn, og lærdóms- og vísindamerki skólans væri haldið hátt. Meðal ann- ars, er hann sýndi mér, var bókasafn háskólans. Á það um 2 milljónir binda, og er eitt hinna stærstu háskóla- safna í Ameríloi. Era salakynni þess mikil og góð, og er árlega varið um hálfri milljón dollara til bókakaupa. Áður en ég kvaddi Berldey að þessu sinni, heimsótti ég litla útvarpsstöð. Hefir hún þá sérstöðu, að hún er eingöngu rekin sem menningartæki. Flytur hún því engar auglýsingar, sem bandarískar útvarpsstöðvar annars lifa á. Útvarpsefni stöðvar þessarar er því ein- göngu erindi, leikrit, upplestur, tónlist og alls konar fræðsla í ýmsu formi. Tekna aflar hún sér annarsvegar með föstum áskriftargjöldum, þannig að menn heita árlega gjaldi til stöðvarinnar, og fær hún þannig um helming tekna sinna, en hitt með beinum gjöfum, aðallega frá einstökum efnamönnum, sem styrkja vilja þessa starfsemi. Hefir stöðin starfað um nokkur ár og fer hinum föstu styrktarmönnum stöðugt fjölgandi. Sagði forstöðumaðurinn mér, að reynsla sú, er þeir hefðu þegar fengið, sýndi að fólk kysi svona útvarps- efni, þegar það hefði kynnzt því, jafnvel þótt það þyrfti að greiða nokkurt gjald fyrir það. Ekki heimsótti ég grasafræðideild háskólans að þessu sinni, en áður en ég kveddi San Francisco, barst mér bréf frá forstöðumanni deildarinnar, dr. Papenfuss, prófessor, þar sem hann bauð mér að flytja fyrir- lestur í deildinni um gróður á Islandi. Gat ég eigi ann- að en þekkst svo virðulegt og vinsamlegt boð, þótt ég væri lítt við því búinn. Flutti ég fyrirlesturinn 9. nóvember. Þar sem ég vissi að allmargir íslendingar höfðu, einkum á stríðsárunum, stundað nám í Berke- ley, tók ég mér það bessaleyfi fyrir þeirra hönd og íslands, að þakka háskólanum fyrir gestrisni hans við hina langt að komnu nemendur sína. Þótti prófessor- unum vænt um þá kveðju. Voru viðtökur allar hinar vinsamlegustu. Samtímis skoðaði ég líffræðideild há- skólans, og þá einkum grasafræðideildina. Er hún vel búin í hvívetna. I grasasafninu þar eru geymd um ein milljón eintaka af þurrkuðum plöntum, sem safnað hef- ir verið í öllum álfum heims. Ofurlítið er þar af ís- lenzkum plöntum, mest fengið í skiptum við Grasa- safnið í Kaupmannahöfn. Safnið er geymt í stórhýsi á mörgum hæðum, eru þar salakynni mikil, en salir allir fylltir skápum með þurrkuðum plöntum, er meira að segja tekið að þrengjast um starfsfólkið og vinnu- pláss þess. Var gaman að ganga þarna um garða, og skoða, og spjalla við starfsmennina, því að þama, sem annars staðar, reyndist mér, sem ég kæmi í gamlan kunningjahóp, þar sem grasafræðingar voru fyrir. St. Std. VORKOAIA Langþráða vor, sem blómalífi bjargar, blæmilda vor, ég fagna komu þinni. Framsóknar-vor, með frelsisvonir margar, fjörgjafans vor, í tímans hringrásinni. Syngjandi vor, með blíða ástaróma, yngjandi vor, með skrautið þinna blóma. Bræddu hvert svell í sólareldi þínum, svellið og klakann þíð úr hjörtum manna. Græddu hvert sár með geislafingrum þínum, glæddu hjá öllum trú hins góða og sanna. Kysstu hvert tár af kinnum þess, er grætur, hverjum, sem þjáist, veittu heilsubætur. Flýt þér nú, vor, áð fósturjarðar ströndum, fjöllin hvar rísa tignarleg úr sænum. Þar áttu að leysa líf úr klakaböndum, landið að klæða sumarskrúða grænum. Ljúfvindar þínir ljóði þar við blómin, lældr og elfur hefji frelsis róminij. Höfundur lífs og herra árstíðanna, heiminum veittu frið og blessun þína. Tendra þitt ljós á leiðum allra manna, lýs þeim sem bezt að stunda köllun sína. Leið oss um heimsins vandrataða vegi, vorgaðu sál að hinzta ævidegi. Björn Pétursson, Sléttu í Fljótum. Heima er bezt 305

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.