Heima er bezt - 01.09.1957, Page 19

Heima er bezt - 01.09.1957, Page 19
„Sat Signý á stóli sínum á miðju stofugólfi. Bjóst hún þá um, og lá men hennar hið góða í knjám henni. Sveinninn Hörður stóð við stokk og gekk út hið fyrsta sinni frá stokknum og til móður sinnar og rasaði að knjám henni. Menið hraut á gólfið fram og brast í sundur í þrjá hluti.“ Signý reiddist mjög og mælti: „111 var þín ganga hin fyrsta, og munu hér margar illar eftir fara, og mun þó verst hin síðasta.“ Grímkell, faðir Harðar, heyrði þessa orðræðu. Hann varð stórreiður, greip upp sveininn og sagði að hann skyldi ekki lengur vera þar á heimili, og fer samdægurs með hann til ágætra hjóna og kom drengnum þar í fóstur. Þau hjón áttu dreng, ári eldri en Hörður var. Hann hét Geir. Uxu þeir þar upp saman drengimir og urðu miklir vinir og fóstbræður. Signý, móðir Harðar, undi enn verr hag sínum eftir þetta, og seinna um sumarið bað hún mann sinn leyfis að fara inn í Reykholtsdal að finna bróður sinn. Úr þeirri orlofsför kom hún aldrei aftur því að á Breiða- bólsstað eignaðist hún dóttur og lézt litlu síðar. Þeir Hörður og Geir vaxa nú upp á sama heimili, við gott atlæti, og var mikið ástríki með þeim fóst- bræðrum. Þegar Hörður var 12 vetra, var hann jafn að afli og hinir sterkustu menn þar í sveit. Geir líktist Herði um flest. Líður nú tíminn, þar til Geir var 16 vetra, en Hörður 15 vetra. Þá lýsir sagan Herði þannig: „Hann var þá höfði öllu hærri en aðrir menn flestir. Hann var hærður manna bezt, og rammur að afli. Synd- ur manna bezt, og um alla hluti vel að íþróttum búinn. Hann var hvítur á hörund, en bleikur á hár. Hann var breiðleitur og þykkleitur, liður á nefi, bláeygur og snareygur, og nokkuð opineygur, — herðibreiður, mið- mjór, þykkur undir höndina, útlimasmár og að öllu vel vaxinn. Geir var nokkru ósterkari, en þó voru þá nálega engir hans jafningjar. Hann var hinn mesti íþrótta- maður, þótt hann kæmist ekki til jafns við Hörð.“ Þessi tvö ungu glæsimenni ráðast nú til utanfarar. Hörður 15 vetra, en Geir 16. Gæfan virðist brosa við þeim. Lífsfjör og æskuhreysti speglast í hverri hreyf- Heima er bezt 307

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.