Heima er bezt - 01.09.1957, Síða 24

Heima er bezt - 01.09.1957, Síða 24
mínir. Við skulum skreppa að gamni okkar út á sjó!“ Hún gekk á undan þeim niður að sjónum, og litlu krílin fylgdu henni eftir, eins fljótt og þeir gátu. Þeir hlupu við fót, en voru dálítið reikulir í spori, og stund- um ultu þeir alveg um koll. Tveir þeirra voru töluvert minni en hinir og virt- ust fremur vesaldarlegir. Það gerði ekki betur en að þeir gætu fylgzt með. Þeir drógust lengra og lengra aftur úr, og allt í einu duttu þeir niður í sprungu milli steinanna. Þeir urðu afar hræddir og grétu sáran og grenjuðu. Perla heyrði einhvern hávaða og leit við. Hún taldi ungana: „Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm! En hvað gat eiginlega hafa orðið af þeim sjötta og sjö- unda?“ sagði hún. Svo gekk hún til baka og leitaði, þangað til hún fann litlu vesalingana og gat hjálpað þeim upp. Innan skamms komst allur hópurinn niður að sjón- um, og síðan lögðu þau öll til sunds. Og nú kunnu þau heldur en ekki vel við sig! Það var eins og litlu angarnir sjö hefðu verið á vatni í langan tíma. Þeir syntu svo léttilega, köfuðu og léku sér á ýmsa lund, að furðu gegndi. Þó var augljóst, að tveir minnstu ungarnir voru líka eftirbátar hinna á vatninu. Perla varð alltaf að fylgjast vel með þeim. Hún var hrædd um, að stóri, vondi máf- urinn, sem kallaður var Svartbakur, mundi koma og taka þá. „Komdu nú, Pilli minn, og komdu nú, Dilli,“ sagði hún blíðlega. Og litlu vesalingamir lögðu strax af stað og flýttu sér eins og þeir gátu á eftir þeim hinum. „Þið hafið vafalaust verið í eggjunum hennar Fífu,“ sagði Perla. „Ég held ég verði að skíra ykkur eitt- hvað, því að ég þarf alltaf að fylgjast með ykkur og kalla á ykkur. Við skulum nú sjá! .... Já, þið getið heitið Pilli og Dilli! Hinir geta spjarað sig án nafns.“ „Komdu nú, Pilli minn, og komdu nú, Dilli,“ sagði hún í gælurómi. Og Pilli og Dilli brugðu strax við. Þeir syntu eins hratt og þeir gátu og notuðu einnig litlu vængina sína til að flýta fyrir sér. Og samt urðu þeir langt á eftir. Perla synti með ungana sína inn í friðsæla og fallega vík. Fyrir utan var hafið, blátt og heillandi, eins langt og augað eygði. í fjarska virtist þó hafið úfið og öldu- gangur mikill. En inni í víkinni var stafalogn og unaðsleg blíða. Perla var svo hamingjusöm og hreykin af ungahópn- um, að hún réð tæpast við sig og tók að rabba við þá af mikilli mælsku. Og ungarnir tóku glaðlega undir. Þeir kvökuðu allir af kátínu yfir því að vera til. Sólin skein skært og yndislega, og þeir áttu allt hið stóra og bláa haf. Á steini í fjörunni sat einmana æður. Það var ung- frú, sem hét Fía. Hún heyrði glaðvært kvak hinnar hamingjusömu fjölskyldu, en sá hana ekki í fyrstu. Hún leit í allar áttir. Svo kom hún auga á hópinn úti á víkinni og flýtti sér af stað til þess að virða hann betur fyrir sér. Hún synti margar ferðir í kringum litlu, svörtu krílin og horfði öfundaraugum á Perlu. „Heyrðu, Perla, — viltu ekki vera svo væn að lána mér ungana þína litla stund,“ sagði hún í bænarrómi. „Nei, því fer fjarri. Ég skal láta þig vita strax, að ég ætla alltaf að sjá um þá sjálf!“ svaraði Perla. Fía var spölkom frá þeim, en ef Perla gleymdi sér um stund, laumaðist hún til unganna og spjallaði við Þá- „Æ, viltu ekki lána mér aðeins nokkra þeirra ofur- litla stund?“ spurði hún aftur í bænarrómi. „Nei, ég hef þegar neitað því. Þér var nær að eign- ast sjálf unga, heldur en sýna öðrum svona ágengni og frekju!“ svaraði Perla miskunnarlaust og synti lítið eitt fjær. „Það er hægar sagt en gert!“ svaraði Fía. Hún var fjarska sorgmædd á svip. Á hverjum degi undi Perla í víkinni góðu með ung- unum sínum. Og á hverjum degi synti ungfrú Fía allt í kringum þau og reyndi að sjá sér færi á að rabba svolítið við litlu, fallegu ungana. Pilli og Dilli drógust oft aftur úr hinum, eins og fyrr. Fía veitti því líka fljótt athygli og var þess vegna löngum í námunda við þá. „Þið ættuð bara að koma til mín og búa hjá mér! Ég veit um fjarska góðan mat í fjörunni þarna,“ sagði hún í bænarrómi. En Pilli og Dilli þóttust hvorki sjá hana né heyra. Svo var það loksins dag nokkurn, að Perla sagði: „Heyrðu, Fía! Ef þig langar svona fjarska mikið til að fá ungana mína lánaða, geturðu fengið að hafa þá einn eða tvo daga. Á meðan ætla ég að skreppa út í skerin og vita, hvort ég get ekki hitt bónda minn. Hann heldur þar til, skal ég segja þér, og sleikir sól- skinið með félögum sínum. í rauninni á ég skilið að fá mér dálítið frí eftir allar setumar við útungunina.“ Fía geislaði af gleði og ánægju. „Þakka þér innilega fyrir. Þú getur farið fullkomlega róleg. Ég skal vissu- lega gæta unganna þinna vel! “ „En vertu sem mest hérna inni í víkinni,“ sagði Perla. „Annars getur Svartbakurinn vondi tekið einhvern unganna minna. Og gleymdu nú ekki, að þeir em sjö. Og sjö vil ég fá aftur — og engar refjar! Kannm annars að telja upp í sjö?“ „Já, það kann ég vissulega. Ég get meira að segja talið alveg upp í tíu!“ sagði Fía hreykin. „Jæja, einmitt það!“ sagði Perla. „Þá ætla ég líka að fara samstundis. Verið þið blessuð og sæl, og líði ykkur nú vel á meðan.“ Úti á hinum tanganum bjó önnur æður. Það var líka ungamóðir. Hún var kölluð Trína og hafði oft verið fjarska vond við vesalings Fíu. Hún hafði kall- að hana piparkerlingu, og það var ekld hægt að gera Fíu neitt verra. Strax og Fía hafði tekið ungana að sér, sagði hún: „Komið nú allir, krílin mín! Nú skulum við skreppa í ferðalag út fyrir tangann þarna og leyfa leiðinlegu kerlingunni, henni Trínu, að sjá okkur!“ 312 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.