Heima er bezt - 01.09.1957, Síða 26

Heima er bezt - 01.09.1957, Síða 26
„Við skulum nú athuga málið,“ sagði hann upp- hátt. „Ég sá einn, — tvo, — þrjá, — fjóra, — fimm, — sex, — sjö!“ Hann kinkaði kolli við hverja tölu, sem hann nefndi, svo að toppurinn hristist til. „Sjö ungar? Þá hafa það vafalaust verið mínir. Þakka þér kærlega fyrir,“ sagði Perla fjarska glöð og synti áleiðis til víkurinnar. Og þarna fann hún loksins Fiu og ungana. „Hvers vegna varstu ekki róleg í víkinni litlu, þar sem þú áttir að vera?“ sagði Perla. „Þú varst næstum alveg búin að gera mig örvita af hræðslu. Komdu nú tafarlaust með krakkana mína!“ „Æ, nei, æ, nei, — taktu ekki ungana mína frá mér,“ sagði Fía í bænarrómi. Hún var alveg komin að því að gráta. „Ungana þína, segirðu! Ég hlusta ekki á svona bull, — þú veizt vel, að ég á þá.“ „Nei, þú átt ekkert í þeim,“ mótmælti Fía. „Þetta eru ungarnir hennar Trínu. Þínir fóru með Fífu og ungum hennar, af því að þú varst svo lengi að heim- an. Þeir eru hinum megin við tangann. Þú áttir líka sjö unga, en hér eru aðeins fimm. Teldu þá sjálf!“ „Já, vissulega átti ég sjö,“ sagði Perla og fór að telja: Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm.... Nei, það er alveg satt, ég átti aðeins fimm. Tvo þeirra átti ég ekki. Ég fékk þá bara lánaða hjá henni Fífu.... Annars hlýt- urðu að geta skilið, að ég þekki mína eigin unga!“ Svo kallaði Perla á ungana með sínum gamla gælu- róm. Rödd hennar hefur hlotið að hafa einhvem annan hljómblæ en rödd vesalings Fíu, því að ungarnir lyftu strax höfði og hlustuðu, — og síðan sneru þeir baki við Fíu og syntu til Perlu. Svo synti Perla burt, og ungarnir fylgdu henni fast eftir. Þeir notuðu bæði vængi og fætur, og öðru hverju var sem þeir hlypu á vatninu, þeir voru svo ákafir og ánægðir. Þegar þau komu í litla, friðsæla vík, námu þau staðar og vörpuðu mæðinni. „Hamingjunni sé lof fyrir það, að ég fann ykkur aftur, bömin mín!“ sagði Perla. „Nú skulum við vissu- lega skemmta okkur og láta okkur líða vel. En emð þið nú hérna öll? Við skulum athuga málið: Eitt, tvö, þrjú, fjögur, fimm. Jú, það getur vel verið rétt! Þau tvö, sem eru horfin, þarf ég ekkert frekar um að hugsa. Fífa átti þau alveg áreiðanlega, og það var nú raunar aldrei ætlunin, að ég hefði þau.“ En í djúpa gjótu bak við tangann hafði Fía flögrað og leitað athvarfs. Hún grét sárt og var fjarska ein- mana. „Ó, hvað mér finnst ranglátt, að þetta skuli vera þannig í þessum heimi!“ sagði hún. „Sumir eiga svo mikið, að þeir geta ekki einu sinni fylgzt með því öllu, en aðrir eiga ekki svo mikið sem einn lítinn unga til að gleðjast við.“ Og svo hélt hún áfram að gráta. Morguninn eftir var það versta liðið hjá, og þá lagði hún af stað til þess að leita að nýjum ungum til að fóstra. Og þegar kvöldsólin varpaði gullnum geislabjarma á hafið, synti Fía frænka hreykin fram og aftur með nýjan ungahóp. Svo sneri hún sér allt í einu við og taldi: „Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm, sex. Já, það stend- ur heima!“ „Verið nú vænu bömin, og syndið rétt á eftir Fíu frænku. Svo skreppum við inn í víkina og fáum okk- ur gómsætan bita áður en við föram að sofa,“ sagði hún. Og nú var hún aftur ósegjanlega hamingjusöm. En, — hvað mundi sú sæla vara lengi? HEILABROT eftir Xophonias Pétursson HÁLSBINDI Hve mörg hálsbindi er það minnsta, sem hægt er að komast af með, ef við ættum að ganga með bindi alla daga mánaðarins. AÐ KVEIKJA LJÓS Á hverju ættum við fyrst að kveikja, ef við ættum eina eldspýtu, en þyrfmm að kveikja í vindlingi, pípu og á kerti. AKUREYRI - REYKJAVÍK Milli Akureyrar og Reykjavíkur er vegalengdin yfir 400 ldlómetrar, en til að gera dæmið einfaldara skulum við halda okkur við það, að hún sé 400 kílómetrar. Jón leggur af stað frá Akureyri kl. 1 eftir miðnætti. Hann ekur með 50 ldlómetra hraða á klukloistrmd. Sigurður leggur af stað sama morgun kl. 4 frá Reykja- vík. Hann er með þunglestaða vörubifreið og ekur þó með 25 kílómetra hraða á klukkustund. Báðir aka viðstöðulaust. Hvað var klukkan, þegar þeir mættust? KINDURNAR Smalar tveir hittust með nokkrar kindur. Þeir hétu Ólafur og Jón. Ólafur mælti við Jón: „Láttu mig fá eina kind, þá á ég helmingi fleiri en þú. Það er hæfilegt, fyrst ég er helmingi eldri.“ „Nei,“ svaraði Jón, „láttu mig fá eina, þá eigum við jafn margar.“ Hve margar kindur átti hvor þeirra? 314 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.