Heima er bezt - 01.09.1957, Page 27

Heima er bezt - 01.09.1957, Page 27
Höfundur: TOP NAEFF . Þýðandi STEFAN JONSSON, námsstjóri eKhJJ SKÓLASAGA FRÁ HOLLANDI OG VIN STÚLKUR HENNAR Þau mistök urðu i síðasta hejti, að niðurlag VI. kafla féll niður, og birtist pað nú hér á eftir. Jóhönnu var skapþungt, og lá við gráti. Þetta gullúr hafði hún erft eftir ömmu sína. Hún kveið svo fyrir að segja mömmu sinni frá þessu óhappi. — Þetta gekk þó allt betur en hún hafði búizt við.— Mamma hennar varð þó alveg undrandi, og pabbi hennar hristi höfuðið og sagði: „Elsku stúlkan mín litla! Hvemig gaztu verið svona óheppin?“ En það var eins og foreldrar Jóhönnu væra eitt- hvað annars hugar. Alveg óvænt hafði Karl sonur þeirra komið heim. Þau töluðu saman í lágum hljóðum, en Jóhanna tók ekki eftir neinu. Hún gat ekld hugsað um neitt nema sitt týnda gullúr. „Heyrðu, Jóhanna,“ sagði mamma hennar. „Farðu úr kápunni og komdu að borða matinn. — Hann er löngu tilbúinn. — „Hefurðu farið á lögreglustöðina?“ „Já, mamma.“ „Ætla þeir að láta þig vita, ef úrið finnst?“ „Já. — En annars verðum við að auglýsa.“ Á meðan Jóhanna átti þetta samtal við mömmu sína, hafði hún farið úr kápunni og tekið af sér hattinn. — Þegar hún settist að borðinu, ráku allir upp skelli- hlátur. „Elsku Jóhanna mín. — Hvernig hefurðu farið með hárið á þér?“ sagði mamma hennar undrandi. „Ég fór til hárgreiðslukonu,“svaraði Jóhanna hreyk- in. — Hún vissi alls ekki, hve hlægilega hún leit út. „Líttu í spegil,“ sagði Karl bróðir hennar hlæjandi. „Æ, hvað er að sjá þetta,“ sagði Jóhanna örvingluð, er hún sá þessar uppsltrúfuðu hártjásur. „Þú hafðir svo fallegt hár, en nú ertu alltof stutt- klippt, og hárið eins og strý,“ sagði mamma hennar. „Þetta getur orðið þér lengi til ánægju,“ sagði Sess- elja. „Hárið er lengi að vaxa.“ „Þetta er heldur happadagur, hjá þér, systir,“ sagði Karl háðslega. — „Hvað hefur þú misst fleira, en gull- úrið og hárið?“ „Tuttugu og fimm krónur, því að það skulda ég hárgreiðslu-konunni. — Og þá veiztu það,“ sagði Jó- hanna beizkyrt. — Hún leit í kringum sig, til að sjá hvernig þessari frétt væri tekið. Með sjálfri sér var hún fegin að hafa haft kjark til að segja frá þessu strax. „Þú hefðir átt að fá 25 krónur fyrir það sjálf að láta fara svona með þig,“ sagði Karl bróðir hennar háðs- lega; en pabbi hennar hleypti brúnum og sagði ásak- andi: „Jóhanna mín! Hvaða aulaskapur er þetta? Heldur þú að mér veitist svo létt, að afla peninganna? Það er ekki rétt að eyða peningum til einskis. Þú hefur aldrei eytt eins miklu í snyrtivörur og síðastliðna viku. Ég veit ekki, hvað gengur að þér. Framkoma þín heima er heldur eldd eins góð og áður. Við mamma þín höf- um bæði tekið eftir þessu.“ Jóhanna varð hálf skömmustuleg, en hugsaði þó með sjálfri sér, hve gaman það væri að trúlofa sig eða gift- ast, og verða sinn eigin húsbóndi, og þurfa þá aldrei framar að hlusta þegjandi á ávítur. Hún ákvað að fresta því að spyrja bróður sinn um Gelder liðsforingja. En mildð langaði hana þó til að frétta af honum. — Vel gat hann líka verið veikur. Jóhanna var fámál við matinn, og dró sig svo í hlé. Hún veitti enga athygli því, sem fram fór í kringum hana. — Hún tók alls ekki eftir því, að mamma henn- ar og Sesselja systir litu hvor á aðra dular-fullar og hátíðlegar á svipinn. Og hún tók heldur ekki eftir því, að Sesselja systir hennar kafroðnaði og hélt áfram að ausa súpu á diskinn sinn, þangað til bróðir hennar spurði hlæjandi, hvort hún ætlaði að borða þetta allt, og allir við borðið litu svo skringilega til Sesselju. — Að lokum fannst Jóhönnu þó, að eitthvað sérstakt væri á seiði og spurði því hálf undrandi: „Hvað er eiginlega að ykkur? Af hverju eruð þið öll svona dularfull, en segið mér þó ekki neitt?“ Pabbi hennar varð fyrir svörum og sagði hlæjandi: „Já, það er ekki fallegt að móðga stúlku á sextánda ári. En litla vina mín: Fullorðna fólkið á stundum ýmisleg leyndarmál, sem börnum kemur ekld við.“ „Börn — barn! Alltaf sama sagan,“ þrumaði Jó- Heima er bezt 315

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.