Heima er bezt - 01.03.1958, Page 2

Heima er bezt - 01.03.1958, Page 2
Fornar dygáir Tímarnir breytast, og ásamt þeim mat mannanna á verðmætum lífsins, rétt eins og' mennirnir breytast sjálfir. Það, sem kynslóð vor telur eftirsóknarvert og rétt, getur orðið lítilsvirði í augum næstu kynslóða, á sama hátt og vér lítum smáum augum á margt af því, sem afar vorir og ömmur höfðu í hávegum. Þetta á við bæði um efnislega hluti og andleg verðmæti. Old vor hefur verið meiri umbrotatími og byltinga en nokkur önnur. Hefur þar hjálpað til, að samneyti þjóðanna er miklu nánara og samskipti örari en áður var. I öllu þessu umróti, tveimur heimsstyrjöldum, þjóð- félagslegum byltingum, bæði hið ytra og innra og tækni- legri þróun, stórfelldari en nokkurn hefði dreymt um fyrr á tímum, hefur sem vænta má margt farizt. Mörg verðmæti hafa glatazt að eilífu, og nýtt mat á hlutunum hefur skapað gjörbyltingu hugarfarsins. En allt um óró og öryggisleysi tímanna mundum vér þó tæplega kjósa okkur að lifa á annarri öld. Og ef satt skal sagt, hefur engin öld sögunnar verið þroskavænlegri mannkyninu, ef það einungis þekkir sinn vitjunartíma. Naumast hefur þó flóðbylgja hins nýja tíma skollið með jafnmiklu afli á nokkurri þjóð eins og Islend- ingum. Framvinda 20. aldarinnar hefur sveiflað oss aftan úr grárri forneskju í lifnaðarháttum og hugarfari til nútímans. Og þetta hefur gerzt svo rækilega, að vér erum um marga hluti nýtízkulegri í lifnaðarháttum en allur þorri nágrannaþjóða vorra. Og vér njótum á marga lund meiri lífsþæginda en fjöldi annarra þjóða, sem fyrir fáum áratugum stóðu oss svo mildu framar, að nam aldaþróun. Þetta er oss vert að hafa hugfast, þegar vér skyggnumst um í samtíð vorri. En jafnframt því, sem margt hefur á unnizt, hefur einnig margt farið í súginn í þjóðlífi voru. Það er að nokkru leyti táknrænt fyrir innreið hins nýja tíma á voru landi, að vér þurfum nú oft að fara um heil byggð- arlög, til þess að leita að munum eða tækjum, sem hvert heimili átti og notaði daglega í bernsku þeirra, sem nú eru komnir á miðjan aldur eða vel það. En það eru ekki aðeins munimir, sem glatazt hafa. Aldagamlar siðvenjur hafa farið sömu leið, og hugar- farið hefur tekið gjörbreytingu. En svo undarlega vill til, að vér Iátum oss miklu tíðara um að safna fornfá- legum munum og búa þeim sess í virðulegum salar- kynnum, heldur en að skyggnast um eftir þeim verð- mætum hugarfarsins og skaphafnar þjóðarinnar, sem glataszt hafa eða eru á hraðri leið með að sökkva í sjó gleymskunnar. En ef til vill kemur það einnig. Hér er hvorki rúm né færi á að rekja marga þætti þess máls, enda skal það ekki gert. Aðeins vildi ég benda á tvennt í fari íslenzku þjóðarinnar, sem mjög einkenndi líf og viðhorf genginna kynslóða, en nú virð- ist óðum láta minna og minna á sér bæra. Þessar dygðir, sem mér finnst rétt að kalla svo, voru: iðjusemi og nýtni. Enda þótt breyttir tímar krefjist breittra viðhorfa, þá ætti engum að dyljast það, að þessar tvær dygðir ættu báðar að standa upp úr ölduróti byltinganna. En ég hygg, að engum, sem kynnist íslendingum nú, muni finnast þær bera hátt í fari þeirra. Ekki verður því að vísu neitað, að mikið er unnið í landi voru, en allt um það fara óeðlilega margar stundir til ónýtis, og betur mætti halda á þeim, sem unnar eru. Alvarlegra er þó hitt, að stöðugt fjölgar þeim flokki manna, sem leitast við að komast áfram án eiginlegrar vinnu, og hlutskipti þeirra þykir eftirsóknarvert. Um alllangt skeið hefur erfiðlega gengið að fá nægilegt vinnuafl til framleiðslustarfa þjóðfélagsins. Engum ætti þó að blandast hugur um, að þau störf eru undirstaðan að lífi þjóðarinnar, þótt fleiri verði að vísu að vinna. Aukin vinnuafköst, á hverju sviði sem er, hljóta að bæta hag heildarinnar, og iðjusemin er ein þeirra megindygða, sem heill hvers þjóðfélags hvílir á. En því má heldur ekki gleyma, að iðjusemin er andlega þroskandi. Af henni sprettur starfsgleðin, en fátt gerir manninum lífið léttara og eykur gildi þess eins og gleðin af starfinu og ánægjan af vel unnu dagsverki. Og fátt eða jafnvel ekk- ert skapar meiri -tómleika og er meiri bölvaldur í lífi hvers og eins en iðjuleysið. Ef það heltekur heila þjóð, þá er vá fyrir dyrum. En þótt iðjusemi vor íslendinga hafi hnignað, mun þó hinni fornu nýtni hafa hrakað enn meira. Segja má, að nýtni feðra vorra hafi stundum verið öfgum blandin, en hún var sprottin af lífsnauðsyn, harðri baráttu fyrir lífinu og fárra kosta völ. Enda var hún ein þeirra dygða, sem feður og mæður gerðu sér hvað mest far um að innræta börnum sínum. En svo má kalla nú, að nýtni sé næstum því orðin ódygð í augum margra. Hún er talin sama og búraháttur og næstum því lítilsvirðandi fvrir manninn. Vitanlega er það rétt, að nýtni getur gengið of langt, hún getur undir sérstökum kringumstæðum orðið eyðsla og óhagsýni, slíkt verða menn að kunna að meta hverju sinni. En hér er ekki rætt urn slíka öfgafulla nýtni, heldur hina, sem hvílir á fullri hagsýni og skyn- semd. Og vér munum geta sannað það hver og einn, ef 76 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.