Heima er bezt - 01.03.1958, Síða 4
GUÐM. GÍSLASON HAGALÍN:
Póráur
Jónsson
á Látrum
órður Jónsson er fæddur 19. júní 1910 í
Húsum á Hvallátrum í Rauðasandshreppi, son-
ur Jóns Magnússonar, bónda þar, og konu hans,
Gíslínu Gestsdóttur.
Látur standa fyrir botni breiðrar víkur, sem skerst
inn í landið norðan við sjálft hið mikla Látrabjarg.
Látrabændur áttu lítil bú, en stunduðu sjóróðra og
bjargsig af miklu kappi, og vandist Þórður hvoru
tveggja mjög snemma. Varð það svo að segja bernsku-
leikur hans, svo sem annarra drengja á Látrum, að þjálfa
þrótt sinn og þor í hæpnu tafli við bjarg og brim.
Þá er honum óx fiskur um hrygg, fór hann að heim-
an til sjósóknar, var á skipum á handfæra- og línuveið-
um frá Patreksfirði og Isafirði, og síðan á togurum.
Hann reyndist í hvívetna hinn röskasti maður og mundi
hafa átt örugga framtíð, hvort heldur sem skipstjóri eða
vélstjóri, því að hvorki skorti hann vit, kapp né lagni.
En hugurinn dró hann að bjargi og brimi heimahag-
anna. Hann kvæntist ágætri konu, Sigríði, dóttur hins
heppna skipstjóra og sjósóknara Olafs Thoroddsens í
Vatnsdal í Patreksfirði, og hóf búskap á föðurleifð sinni
á Látrum. Hann keypti sér brátt traustan og myndar-
legan vélbát og sótti björg á sjóinn og í bjargið. Hann
vann um hríð með manni, sem setti upp rafstöð þarna
í grendinni, og svo næmur reyndist hann á leyndar-
dóma rafmagnsins, að síðan hefur hann sjálfur sett upp
nokkrar slíkar stöðvar, auk þess sem hann hefur unnið
mikið af þeirri smíðavinnu, sem til hefur þurft, því að
hann er maður mj ög hagur.
Þórður er félagslyndur og stendur mjög framarlega
í félagslífi sveitar sinnar. Ávallt, þegar þar eru haldnar
samkomur, er hann framkvæmdasamur um allan undir-
búning og hefur forystu í skemmtan og gleðskap, en er
hinn mesti reglumaður. Hann er mjög vel máli farinn.
Kunnastur hefur Þórður orðið af starfsemi sinni að
slysavörnum. — Slysavarnadeildin Bræðrabandið var
stofnuð þarna vestra árið 1933, og tók Þórður snemma
þátt í störfum hennar. Hann hefur lengi verið formaður
hennar og mætt á þingum Slysavarnafélags Islands.
Eins og menn muna, strandaði brezki togarinn Dhoon
undir Látrabjargi 12. desember 1947, og framkvæmdu
þá Látramenn og sveitungar þeirra þá björgun, sem
vakti undrun og aðdáun allra íslendinga og fræg hefur
orðið víða um lönd, en ekki gera allir sér grein fyrir
því, að það afrek hefði engum verið fært að vinna, ef
íþrótt hinnar daglegu lífsbaráttu hefði ekki þjálfað liðið
— mætti ef til vill segja ættirnar — frá barnæsku. Þórð-
ur var þar framarlega í flokki, og honum var það fyrst
og fremst að þakka, að gerð var kvikmynd af afrekinu,
og svo furðulega vildi til, að einmitt þegar Óskar Gísla-
son var að taka myndina, þá strandaði brezkur togari
undir Hafnarmúla við Örlygshöfn, svo að myndatöku-
maðurinn gat tekið myndir af sjálfri þeirri athöfn, sem
framkvæmd var upp á lífi og dauða. Síðan hefur þessi
mynd orðið fræg og borið hróður björgunarliðsins og
íslendinga vítt um lönd.
Þórður er maður frekar lágur vexti, en mjög þrekinn,
sviphýr en svipmikill. Hann er drengur hinn bezti og
skemmtilegur félagi og maður mjög vel greindur. Er
hann karlmenni að andlegum og líkamlegum burðum.
78 Heima er bezt