Heima er bezt - 01.03.1958, Side 7

Heima er bezt - 01.03.1958, Side 7
harmanna skemmtir mjer haglþrungið jel, í hafróti dansar minn bátur. Jeg ferst ei þótt haföldur hamist á mjer, þótt heimsköld lygð um mig næði, því vonin og fjörið við árarnar er, og árarnar, það eru kvæði. Og vonin og fjörið og ímyndaafl mig aldregi vinsnauðan láta, við hatur og lygi tefla þau tafl og trúið mjer, skáka og máta. Fyrirgefið og svarið yðar Bertel Þ. Khöfn 14/1 ’84. Herra — nei — jómfrú Ijósmóðir Ólöf Sigurðardóttir — svona byrjuðuð þjer — Gleðilegt nýjár, það gamla jeg þakka og gefi yður Drottinn mörg hundruð krakka. Jeg meina — hann geri yður móður að ljósi hjá maddömum, griðkum, og stelpum í fjósi. Fyrirgefið þjer flýtisósk þessa. Jeg fann ekki annað — en vildi yður blessa, en ef hann hefur annað til undan jeg ei vitund skil af öllu góðu, sem gefast má og getur yður hrinið á, gefi hann yður góðan mann ef getur hann — og vilji hann og það er að segja, ef þjer ei svarið „þenna kaleikinn herra sparið“. Jeg held jeg hætti annars þessum skramba, að skrifa í ljóðum, mjer fer altaf þegar jeg skrifa í Ijóðum eins og fola, sem hleypt er út úr hesthúsi á sléttan völl, — jeg bregð á leik og sest aldrei nema jeg hálsbrjóti mig eður slái einhvern svo að hann meiðist. Jeg þakka yður annars fyrir miðann — hann var nóg ári stífur — og sjerstaklega fyrir næst seinustu vísuna. Þjer verðið að fyrirgefa, jeg er ekki í humöri í kveld til þess að skrifa skynsamlega og alvarlega, það verður að bíða þangað til jeg verð það. Jeg man vel eftir Þorbjörgu og Guðrúnu systur henn- ar. Þorbjörg hefur gefið mjer margan kökubita með vel ofan á, þegar hún bjó í Hákonarbæ, hún er greind kona, en ekki við alla lund, heilsið þjer henni frá mjer. Þjer minnist á það, sem þjer kallið litla heiminn yðar, og talið hlýtt og vinalega um, jeg held jeg geti fullyrt að það „hverfist“ enginn úr honum nema ef hann bregð- ur sjer inn í annan heim. Ekki er jeg kominn á „Stiftelsen“ enn þá, því er ver, svo ekki þarf að „assurera“ hana enn, nje yður við til þess að gerast „brandmajor“. Ekki hef jeg enn hitt hana Emelíu á Nörrebro. Jeg hlakka annars til að komast í kynningu við læridæturnar, þó jeg í aðra röndina sje hálfhræddur um mig, þær eru svoddan seiðkonur, og — Jeg veit ei hvað því veldur ef við jeg kynnist fljóð þá er-jeg óðar seldur, já — ofurselt mitt blóð. Jeg finn það kvikna og kvikna og koma upp í mjer, jeg vona, kvíði og vikna, og — veit þó hvernig fer, því sífellt er hinn sári og sarni endirinn. Með „trygðarofi11 og „tári“, jeg — trúi eg — svikarinn. En þær eru ekki hótinu betri en við. Sem kæna er kvenmanns hugur á kvikum ægi blá. Hún mókir — markar hringa í mjúkan, gljáan sjá, sem leikur Ijett við hana og lætur til og frá á bárum gljúpum berast svo blítt og þýtt sem má. Og hún, er hafið styður — nei — hafið vefur sig um hana alla vegu og eitt það ræður stig. Og ef það ýfist — hreyfist og ólga — hvítna fer, hún skoppar eins og skelin, sem skip hjá drengjum er. Hún hneigist — fallega’ að falli og fleygist öldum með, og gefi á, fyllist — ferst hún — svo fara hef jeg sjeð — Og hve má hún stjórnlaus styðja hinn sterka, æsta sjá. Nei — hún getur bara borist, já borist — hafinu á —. Nú er örkin búin og jeg skrifa ekki nema örk og þó á ég margt eftir ótalað við yður, en ég þarf að skrifa fleirum og er — það er satt — illa upplagður, þreyttur eftir „Heimdall“, sem jeg vona að þjer takið vel á móti og hospítalið og fleira. Verið þjer í guðs friði, — en verið ekki vondar, yðar Bertel E. Ó. Þ. Heima, er bezt 81

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.