Heima er bezt - 01.03.1958, Síða 18

Heima er bezt - 01.03.1958, Síða 18
Flest af þessu fólki voru Húnvetningar. Bar margt til þess. Þá var Sauðárkrókur mestur verzlunarbær á milli Héraðsvatna og Blöndu. Þar var og kona, er hélt uppi saumanámskeiðum, virðuleg mjög og vel liðin (Ingi- björg Pétursdóttir, föðursystir Pálma rektors). Þá var fvrir stuttu komin til Sauðárkróks Jónas læknir Krist- jánsson, og vann hann sér álit sem fyrirmyndar læknir strax í byrjun. Konur og karlar vestan að sóttu mjög til hans. — Frá nýári til páska 1916 gistu á Ulugastöð- um 72 menn, karlar og konur. Sumt af þessu fólki kom illa til reika þangað af fjöllunum. Þá varð ég að bjarga nokkrum til byggða, sem fylgdarmennirnir gengu frá. Aldrei varð dauðaslys, en lá oft nærri. Veturinn 1916 til 1917 var yfirleitt góður hér um slóðir. Fáar stórhríðar. Þó kom eftirminnileg hríð um páskana, og skal nú skýrt frá henni. Laugardagsmorg- uninn fyrir páska var ágætis veður, frostlítið og fann- komulaust, austanátt auðsæileg og all þunbúinn í norð- austrinu. Ég átti þá mikinn rekavið út í Sævarlands- vík, sem ég var að smá-flytja heim. Þennan morgun lagði ég upp í eina slíka ferð með þrjá hesta og sleða aftan í hverjum. Með mér var Júlíus fóstri minn. Færi var fremur gott. Allt gekk ágætlega að binda á sleðana, og var þá enn bezta veður, en genginn meira í hafið, þó kvikulítið og logn. Við héldum samstundis heim- leiðis og sóttist ferðin greiðlega. Þegar við komum fram um Hafragil, þá brestur á með norðaustanstormi og hríð. Við héldum þó vitanlega ótrauðir áfram, og um rökkursbyrjun náðum við heim með ækin og hest- ana. Þá var veðrið orðið bandvitlaust, sérstaklega veður- ofsinn. Fannkoma var talsverð en frost lítið en iðu- laus hríð vegna veðurofsans. Heimaféð hafði allt verið á beit þennan dag um 2ja km. leið suður frá bænum. Um það leyti er byrjaði að hvessa, sendi kona mín unglingsdreng, þá um fermingu, eftir fénu. Ég átti þá tvær fyrirmyndar-forustuær, aðra svarta en hina svart- flekkótta, og var hún kollótt. Strákur hafði hitt féð í einum hóp. Var það á heimleið á móti veðrinu, og for- usturnar á undan. Hljóðaði hann og argaði til þess að koma sem mestri styggð að fénu. Gekk honum sæmi- lega fyrst, en allt af herti veðrið, og að lokum varð strákur að staulast áfram, stundum skríðandi. Forustu- ærnar héldu sínu striki heim að fjárhúsum. Kona mín var þar fyrir og kom fénu í hús eftir harða baráttu. Strákur hjálpaði henni eftir mætti, úr því hann náði húsum. Veðráttum var svo háttað um þessa hríð, að á páska- daginn var norðaustanátt, ekki ýkjamikil fannkoma, en hvass og stórhríð. Annan páskadag var greinileg norð- anátt (réttnyrtur). Ekki hvass, ekki mikil fannkoma, en gekk á með sortaéljum. Þriðja páskadag var enn skipt um átt. Þá greinilega útnorðan (norðvestan) og ausandi fannkoma. Fjórða daginn var áttin aftur orðin rétt norðan (ágönguhríð), en miklu vægari en annan páska- dag. Enginn vafi virðist vera á því, að nákvæmlega sama veðurlag hefir verið yfir þessa hríð, og gamlir menn skilgreina veðurlagið í „jMaíhríðinni 1887“. Veturinn 1917 til 1918 hafa hríðarnar tvímælalaust orðið harðskeyttastur, síðan ég kom á Norðurland. Það gerði vitanlega frostharkan, sem allt af fylgdi þeim. Þó bar ein af öllum. Hún stóð yfir 19. jan. Kvöldið fyrir kom maður í Illugastaði utan úr Lax- árdal. Hann var með hest og sleða, sem séra Arnór í Hvammi átti. Erindið var, að biðja mig að fara inn að Heiði í Gönguskörðum og sækja þangað 1200 pund af mat, sem séra Arnór átti geymd þar. Hafði Árni bóndi á Sjávarborg Daníelsson ekið þangað fyrir hann. Ég vildi allt fyrir séra Arnór gera, enda áttu þau hjón, Ragnheiður og hann, það margfaldlega skilið af mér. Ferðin var því ákveðin, um leið og maðurinn stundi upp erindinu. Gisti hann hjá mér um nóttina. Um morguninn var rosaljótt veðurútlit. Hafði snjóað mikið um nóttina og áframhaldandi fannkoma. Þegar tók að birta af degi, stytti upp fannkomuna og varð stilli- logn, hægur í loft, en þoka í fjöllum. Ég var alltaf að gá til veðurs. Þorði ekki að leggja upp í ferðina undir auðsæilega stórhríð. Að vísu ætlaðist séra Arnór til, að maðurinn færi með mér þessa ferð, en ég þóttist ei að hólpnari, þótt ég hefði hann. Loks ákvað ég að fara ekki. Var þá klukkan um 11 fyrir hédegi. Vorum við þá búin að borða miðdagsmat, sökum þess að allt- af sat í ihér að fara inneftir. Ég vendi þá mínu kvæði í kross og legg á stað að sækja mó, er ég átti í móbyrgi um eins kílómetra vegalengd sunnan við bæinn. Maður sá, er sendur var frá séra Arnóri, fór með mér. Við vorum með 26 tóma poka og ætluðum að selflytja tvær ferðir, því færi var afleitt fyrir menn og skepnur. Þegar við vorum rétt að skreppa suður úr túnfætinum, brast á með norðaustan stórhríð, algerlega brjálað veður. Ég var með sjóhatt á höfðinu, og sleit hann af mér í fyrsta bylnum, og hef ég ekki séð hann síðan. Ekki var ég nú á því að snúa við. Tók ég einn mópokanna af sleðanum og batt hann í skýlu um höfuðið, og dugði sá höfuðbúnaður til kvölds. Áfram var haldið og alltaf verið að, mórinn látinn í pokana og tvær ferðir farnar með hann heim, síðan borinn inn og allir pokar tæmdir. Var þá komið langt fram á kvöld. Eftir að við höfð- um borðað, varð sendimaður prests veikur. Kvennfólkið reyndi öll möguleg húsráð við hann, en lítt dugði. Varð sú sjúkdómsgreining ofan á hjá þeim að lokum, að mað- urinn hefði ekki þolað kuldann. — Þar við sat. Daginn eftir var skárra veður, þá meira genginn í norðrið. Birti smám saman betur í lofti, eftir því sem á dag- inn leið. Sendimaður séra Arnórs var í rúminu og bar sig illa. Eftir miðdaginn kom Baldur póstur Eyjólfsson innan yfir Kolugafjall. Hafði hann gist á Breiðstöðum hríðarnóttina, komið neðan af Sauðárkrók um kvöldið. Á Breiðstöðum bjuggu þá Daníel Davíðsson og iMagnea Magnúsdóttir. Hafði þar verið ónæðissamt þessa nótt, því að seinnipart nætur komu þar tveir menn með níu hross. Var ekki um annað að gera en hýsa hrossin og mennina, þótt húsakostur væri þröngur. Voru allir þessir gestir hálfilla til reika að sögn Baldurs, sem von- legt var, í svona hörkuhríð. Mennirnir voru Sveinbjöm bóndi á Skíðastöðum Sveinsson og Magnús bóndi á Framhald á bls. 106. 92 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.