Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 2
„Su rödd var svo föguréé í síðasta mánuði minntist íslenzka þjóðin 100 ára af- mælis eins mesta Ijóðsnillings síns, Þorsteins Erlingsson- ar. Þá mættist þjóðin öll í þögulli aðdáun og hlýrri þökk til hans fyrir þær unaðsstundir, sem ljóð hans hafa fært henni um tvo aldarþriðjunga, og fyrir þá lærdóma, eggjanir og ádeilur, sem ljóð hans fluttu á sínum tíma. Sjaldan eða aldrei hafa íslenzk ljóð valdið meira um- róti, aðdáun og hatri samtímis og ljóð Þorsteins Erlings- sonar gerðu á fyrstu árunum eftir að hann kom fram á ritvöllinn. Sunnan frá Kaupmannahöfn kom Sunnan- fari og síðar Eimreiðin með söngva hans og kvæði, sem voru furðu nýstárleg í íslenzkum bókmenntum og fóru eldi um hugina. Þar var ráðizt hlífðarlaust að þeim mátt- arvöldum, sem menn tignuðu mest á himni og jörðu. Þar var hiklaust fluttur sá boðskapur, að „kóngar að síðustu komast í mát, og keisarar náblæjum falda, og guðirnir reka sinn brothætta bát á blindsker í hafdjúpi alda“. Tæpast var hægt að kveða skýrar að orði. En hvern skyldi hafa grunað það, að hér væri svo spá- mannlega mælt, að innan aldarfjórðungs yrðu allflestir konungar og keisarar, sem mestur Ijómi stóð af um þær mundir, sem kvæðið var ort, raunverulega mátaðir. En þótt Þorsteinn Erlingsson beindi skeytum sínum að þessum mektarbokkum, voru það vitanlega ekki þeir sjálfir, sem stefnt var að persónulega, heldur það ófrelsi, sem þeir voru táknmynd fyrir í þann tíma. Og sú er trúa mín, að ef hann hefði mátt taka til máls á vorum dögum, þá hefði hann ekki reitt svipuna með minni þunga að þeim einræðisherrum, sem troðið hafa sér í valdastóla keisaranna undir yfirskyni mannréttinda og frelsis, sem þeir hafa fótum troðið verr en nokkur hinna gömlu valdhafa. Því að þess skulum vér minnast, að Þorsteinn Erlingsson hyllti ekki kennisetningar, heldur sannleikann og mannúðina. En þótt samtíðarmönnum Þorsteins hnykkti við á- deilur hans á hin veraldlegu máttarvöld, tók þó út yfir í augum þeirra, er hann réðst á kirkjuna, og að því er virtist sjálfan kristindóminn. En þar var í raun réttri sömu sögu að segja og áður. Árásirnar voru á hið ytra form en ekki kjarnann sjálfan. Þegar Þorsteinn Erlings- son talar um að dómurinn gangi yfir Krist og Jehóva, þá er þar stefnt að þeirri Kristsmynd og þeirri Guðs- mynd, sem kennisetningar kirkjunnar höfðu skapað um aldaraðir, og enginn fær neitað að sú Kristsmynd var oft furðu fjarri Kristi guðspjallanna. En þegar Þorsteinn kvaddi sér hljóðs, gerðu menn lítt greinarmun á þessu tvennu. En harðast og óvægilegast reiddi hann vopn listar sinnar að auðvaldi og rangsleitni þess. En söngvar hans voru ekki einungis baráttu- og á- deiluljóð. Sunnan yfir sæinn bárust einnig unaðsleg ásta- Ijóð, ættjarðarljóð, þrungin söknuði og ást á „brúðinni blárra fjalla“, og ljóð svo full af mildi og mannúð, að jafnvel hjarta úr steini hlaut að klökkna. Svo margvís- lega hljóma seiddi Þorsteinn úr strengjum hörpu sinnar. Og söm var snilldin, hvern strenginn sem hann hrærði. Hagleikur ljóðs og ríms var meiri en menn höfðu áður kynnzt, nema ef til vill hjá sjálfum Jónasi Hallgríms- syni. Og naumast verður um það deilt, að vandvirkni Þorsteins í Ijóðagerðinni skapaði nýtt tímabil í íslenzkri ljóðlist. Hvergi þurfti að brjótast um myrkviðu tor- skilinna orða né moldviðri óskýrrar hugsunar, eins og sumir telja aðal skáldskapar. En af þeim sökum hittu ádeilurnar í mark, og ljóðin náðu til hjartans. Og víst er um það, að enginn, sem þau las, gat verið hlutlaus. Hann varð annaðhvort með eða móti, og því risu deil- urnar oft hátt, þegar rætt var um Þorstein Erlingsson. En nú eru þær deilur löngu hjaðnaðar. Breyttir tímar hafa sorfið sárasta broddinn af mörgum þyrnum hans. Þróun sögunnar hefur látið margar hugsjónir hans ræt- ast og sýnt oss, svo að ekki verður um deilt, að hann hafði rétt fyrir sér. Þorsteinn var um margt spámaður síns tíma, en um leið og hann beindi þjóð sinni braut- ina inn í fyrirheitna landið, þá þurfti hann einnig að refsa samtíð sinni. Og nú sameinast þjóðin í þökk og aðdáun. Vér, sem fylgjum öldinni að árum eða þar um bil, eigum mörg vora sögu um samskiptin við ljóð Þorsteins Erlingssonar. Mér verður ógleymanlegt, þegar ég í fyrsta sinni las Örlög guðanna. Ég var að blaða í „Þyrn- um“ og rakst þar á kvæðið, las það og varð í senn undr- andi, hræddur og hrifinn, en sleppti þó ekki bókinni fyrr en ég kunni kvæðið allt. Síðan voru „Þyrnar“ mín kærasta kvæðabók. Og þótt með aldrinum ýmis önnur kvæði skipi nú æðri sess en Örlög guðanna, þá á ég því ef til vill að þakka, hversu handgengin Ijóð Þorsteins urðu mér og tiltæk síðar meir. Og Þorsteinn hefur aldr- ei skilið við mig síðan. Harpa hans hefur hljómað í vit- und minni á hinum fjarlægustu stöðum og við hin ólík- ustu skilyrði. Ég hef heyrt hann kveða við raust í fá- tækrahverfum erlendra stórborga, á málþingum stjórn- 328 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.