Heima er bezt - 01.10.1958, Síða 17

Heima er bezt - 01.10.1958, Síða 17
sem pabbi hafði séð um fyrir mig á meðan ég var í skól- anum. Nú var hann orðinn fjögurra vetra. Þeir kvöddu mig á Akureyri undir kvöldið, Friðrik og faðir minn. Ég settist að á Akureyri. Þá voru þær báðar, Ingibjörg og Þórdís Torfadætur frá Ólafsdal, á Akureyri. Þær tóku mér ágætlega og veittu mér beztu góðgerðir. Ég sá þá ekki veikleikamerki á þeim systrum, en ekki leið mjög langt, þar til þær voru báðar dánar. Ég heimsótti fleiri kunningja mína á Akureyri, og tóku þeir mér mjög vel. Nú þurfti ég að fara að hugsa mér fyrir nátt- stað. — Ásgeir Ingimundarson, skólabróðir minn, hafði útskrifazt frá Ólafsdalsskólanum. Hann var nú giftur Ketilríði Einarsdóttur frá Tannstaðabakka, og voru þau flutt til Akureyrar. Ég hitti þau nú og bað þau ásjár. Tóku þau mér mjög vel. Gekk Ketilríður úr rúmi og lét mig sofa hjá Ásgeiri. Við vöktum langt fram á nótt og vorum að spjalla um hitt og þetta. Hvítasunnudagur 18. maí. Veðrið var heldur gott, en samt var mjög hvasst af norðri, og um kvöldið kom harða frost. Um morguninn heimsótti ég gamla frænd- konu mína og spjallaði við hana alllengi og drakk hjá henni sætt kaffi. Ég hafði átt hina beztu nótt hjá Ásgeiri og Ketilríði. Þegar klukkan var tvö um daginn kvaddi ég gestgjafa mína. Ásgeir gaf mér vel í staupinu að skilnaði. Nú átti ég eftir að komast austur yfir fjörðinn. Þá var ferjað yfir Eyjafjarðará undan Ytra-Gili. Ekki var ferjutollurinn þá nema 10 aurar fyrir manninn, en engir 10 aurar höfðu komið í peningabuddu mína síðan ég tæmdi hana á Öxnadalsheiði á fimmtudagskvöldið. Einnig tafðist ég við að labba suður að Gili, því að ég ætlaði austur í Fnjóskadal um kvöldið. Auðvitað hefði Ásgeir gefið mér 10 aura, ef hann hefði vitað vandræði min. Þau hjónin voru nú búin að gera svo vel við mig, að ég gat alls ekki sagt honum frá þessu. — Ég tók því það ráð að vaða yfir á Leirunni. Þegar ég kom suður hjá kirkjunni, lagði ég af stað austur yfir fjörðinn með dót mitt á bakinu. Eins og áður er sagt, var mikil norð- angola og þar við bættist, að nokkuð var farið að falla að. Bylgjurnar skullu því oft á mig um mittið. Þegar ég var kominn nálægt því miðja vegú sá ég, hvar maður kemur ríðandi á gráu hrossi utan með firðinum að aust- an. Þegar hann er kominn suður á móts við mig, þá fer hann af baki og bíður. Þegar ég kom í land, þá heils- umst við. Hann segir mér svo, að þegar hann hafi séð til mín á Leirunni, þá hafi hann haldið, að þetta hlyti að vera vitlaus maður, sem hegðaði sér svona og því beðið eftir mér til að vita, hver þetta væri. Við þekkt- umst, en ekki man ég, hver þetta var. — Ég hélt svo suð- ur Kaupangssveitina. í Fífilgerði bjuggu þá hjónin Sig- fús Davíðsson og Aðalbjörg Hallgrímsdóttir. Ég hafði verið þeim samtíða á Sörlastöðum áður en ég fór í skól- ann. Bað ég þau nú ásjár. Ekki stóð á aðhlynningunni. Ég fékk þar beztu góðgjörðir, og Aðalbjörg þurrkaði vel af mér fötin. Ég lagði svo af stað austur yfir Vaðla- heiði. Sigfús gekk með mér austur í Fjósatungu. Á heiðinni var harðahjarn og bezta akfæri. Þegar kom aust- ur á heiðarbrúnina, sást blessaður Fnjóskadalurinn, sem mun vera með fegurstu dölum landsins, einkum suður- dalurinn. — Ég settist að í Fjósatungu hjá þeim gömlu hjónunum þar, Guðmundi Davíðssyni og Guðfinnu Gísladóttur. Var þessum, ef til vildi, týnda syni dalsins mjög vel tekið af öllu fólkinu þar. Ég var nú orðinn svo slæmur í fætinum, sem ég hafði stundum fundið til í síðustu daga ferðarinnar, að ég sá, að ég myndi ekki komast fótgangandi síðasta áfangann daginn eftir. Sig- fús í Fífilgerði fór heim til sín um kvöldið. Mánudagur 19. maí. Gott, kyrrt og bjart veður. Þennan dag var messað á Illugastöðum. Þar var margt fólk, og hitti ég þar margt af frændfólki mínu og kunn- ingjum. Ég varð Sörlastaðafólkinu samferða heim þang- að. Hest féklt ég til reiðar. Við töfðum á Belgsá og drukkum þar kaffi. — Ekki fékk ég farangur minn frá Ólafsdal fyrr en seint um sumarið, sem stafaði af því, að það var svo mikill hafís fyrir Norðurlandi langt fram á sumar. Andaður og upp aftur risinn Framhald af bls. 337. ------------------------------ botnar ekkert í því, að merin er farin, úrið týnt og allt vitlaust orðið. Hann hefur þó ekki mjög lengi staðið í þessum erf- iðu sporum, þegar hann sér menn með lausa hesta fara þar hjá. Þar þekkir hann Rauðku sína, og hrópar af öllum mætti: „Hvern fjandann ætlið þið með merina mína. Ég vil fá hana strax!“ Það tók nú víst ekki langan tíma fyrir Einar að sann- færa þessa menn um það, að hann væri enn í tölu lifandi manna, því að þeir þekktu hann allir vel. Þeim þótti þetta líka allt auðveldara, að láta hann nú ríða hryss- unni bráðlifandi, en að styðja hann á henni liðið lík, og þurfa ekki að sjá eftir góðum félaga svona fljótt yfir landamærin. Stuttu eftir að farið var að sækja líkið á heiðina, var Steindór gamli Hinriksson póstur, sem oft var kenndur við Dalhús, fenginn til að fara norður í Hafrafell að tilkynna þar lát Einars og segja frá aðgerðum manna að ná líkinu. Einar mætir Steindóri utan við Ekkjufellssel, þegar hann er á leiðinni austur aftur. Steindór var farinn eitt- hvað að tapa sjón. Hann setur hönd fyrir augu og horfir fast á Einar og segir: „Er það sem mér sýnist? Er þetta . ekki, satt að segja, maðurinn, sem ég var að tilkynna að dauður Iægi austur á Fjarðarheiði? Þú hefur risið býsna fljótt upp frá dauðum aftur, drengur minn.“ Ævintýri þetta skráði ég eftir Einari sjálfum í vetur. Síðan hef ég talað við Björn Sveinsson, bónda á Ey- vindará, sem tók að sér að ná hinum látna af heiðinni. Hann segir, að konurnar hafi komið niður að Eyvindará en ekki í Miðhús. Hann fór við þriðja mann að sækja Iíkið og segir þetta hafa skeð 1926. — G. H. Heima er bezt 343

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.