Heima er bezt - 01.10.1958, Page 29

Heima er bezt - 01.10.1958, Page 29
TÍUNDI HLUTI Það hýrnaði heldur en ekki yfir gömlu konunni. „Það verða víst engin vandræði að koma því upp,“ sagði hún með sælubrosi. „Hún á vél, hún tengdadóttir mín, sem á heima niðri í víkinni. Hún telur það ekki eftir sér að prjóna það fyrir mig.“ „Svo þætti mér vænt um, ef þú vildir stytta peysu- pilsið mitt, svo að hún geti fengið önnur peysufötin mín. Það er nóg, að eiga ein peysuföt í sveitinni,“ sagði Rósa við Laugu. „Það á svo sem að gera mig vel úr garði, þegar ég legg af stað,“ sagði gamla konan á leiðinni fram göngin og hélt fast utan um handlegginn á Laugu, sem ætlaði að hjálpa henni upp á loftið. „Hún hefur verið mér góð, og ég sakna þess að þurfa að fara, og ég .veit að hún saknar mín. Ég hef verið henni til mikillar skeinmtunar þessa daga, sem stúlkurnar hafa verið við sviðamennsk- una. Annars hefði henni sárleiðzt, aleinni í bænum. En Kristján minn býst við, að það geti ekki orðið lengri dvöl okkar hér en þangað til næsta sldp kemur í kaup- staðinn. Ég er hrædd um, að henni Rósu falli ekki alls kostar við Hartmann. Og hann er þá ekki mjög hrifinn af henni heldur. Það er ekki varið í neitt að hans dómi, nema dugnaðinn og vinnuna. Hann er nú ekki mjög ánægður, þegar hún situr við garganið og Kristján syngur með.“ Hún skríkti af hlátri, „Ég veit þú segir henni ekki þetta, sem ég er að rugla við þig, þú ert svo góð stúlka. Og þakka þér nú fyrir að þú ert búin að koma mér upp á loftskörina,11 bætti hún við. Lauga sagði henni að kalla til sín, ef hún treysti sér ekki ofan hjálparlaust. „Þá er ég búin að hjálpa tengdamóður þinni upp á loftið,“ sagði Lauga við Rósu, þegar hún kom inn í eldhúsið aftur. „Henni þykir ósköp vænt um þig, aum- ingja manneskjustráinu.“ Rósa stundi hátt: „Þú getur ekki trúað því, hvað ég verð fegin, þegar þau fara héðan. „Þetta er ekkert heim- ili, síðan þau komu,“ sagði hún raunalega. „Eru þau svona leiðinleg? “ spurði Lauga. „Ég hef stundum verið að óska þess, að tengdaforeldrar mínir gætu komið til okkar og verið hjá okkur um tíma. En kannske er bezt að þau séu í dálítilli fjarlægð frá manni. Annars finnst mér kerlingarstráið hún Arndís ósköp meinleysisleg.“ „Já, ég býst við að hún sé það. En hún er hræðilega leiðinleg. Talar allan daginn uffl veikindi. Mér finnst ég vera orðin sárlasin af því að þurfa að hlusta á hana,“ sagði Rósa. „Ekki er nú hægt að segja, að það sé upplífgandi umtalsefni,“ sagði Lauga. Hún fór nú að stytta peysu- pilsið handa Arndísi gömlu. Rósa sagðist ætla að láta hana fara í eldri kápunni sinni. Það yrði þó skárra, út- litið á henni, en þegar hún hefði riðið í hlaðið í víðu reiðfötunum af kaupakonunni. En þá varð að stytta hana líka, og auðvitað varð Lauga að gera það. Það var komið fram í myrkur þegar þessu var lokið. Feðgarnir komu heim á hlaðið, þegar þær ætluðu að fara út, og gamla konan hóaði uppi á loftinu, eins og hún væri að leggja af stað í smalamennsku. Þær gátu ekki annað en hlegið upp úr. Lauga flýtti sér inn eftir ljósi. Svo hjálpaði hún þeirri öldruðu ofan stigann. Hún var með fulla svuntu sína af bandi og hnyklum. N’aðallinn í Hartmanni gamla yfirgnæfði öll önnur hljóð. Það leit út fyrir að hann væri reiður: „Hvað svo sem skyldi klárfjandann muna um að bera mig,“ gall í honum. „Þú getur verið á gráa klárnum,“ sagði Kristján. „Rósa getur ekki liðið, að Bleikur sé notaður svona dag eftir dag. Hann er óvanur slíku.“ „Ef þú ætlar að hlaupa eftir öllu því, sem henni þóknast, þá gef ég ekki mikið fyrir þig. Ég sé, hvað hún ætlar sér, sú drós, að verða bæði bóndinn og hús- freyjan, eins og sagt cr að móðir hennar hafi verið, þó að hún geti aldrei verið húsmóðir og því síður hitt,“ sagði Hartmann. „Það verð ekki ég, sem tek slíkt til greina.“ „Þér dettur þó ekki í hug að ég ætli að búa eins að henni og þú hefur búið að mömmu. Látið sem þú heyrðir ekki, þegar hún lét í Ijós óskir sínar eða skoð- anir,“ sagði Kristján. Feðgarnir fjarlægðust dyrnar, ekki ólíkt því að þeir færu inn í skemmuna. Vinkonurnar biðu í dyrunum eftir því, að þeir færu inn. Heima er bezt 355

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.