Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.10.1958, Blaðsíða 33
ur maður. Allt eintómir ,kvartvitar‘. Það hefði ekki verið hann Hartmann Arason, sem hefði látið flá sig svona án þess að láta eitthvað til sín taka. Það lítur bara út fvrir að hann ætli að láta hana auðmýkja sig, þetta stelputryppi. Eins og það sé ekki sama, hvort þeirra keypti ærnar, þar sem þau eru nú hjón.“ „Jæja, svo það var rauði klárinn, sem var það eina, sem hann átti af bústofninum,“ sagði Leifi. „Skyldi það geta haldið á því, fólkið hérna í nágrenninu,“ bætti hann við og hló illgirnislega. „Það varðar víst ekkert um það,“ sagði gamli mað- urinn og þaut út. Leifi hélt áfram að hlæja. „j\lér lízt ekkert á þetta allt saman,“ sagði gamla konan. „Þau, sem eru alveg nýgift.“ „Það verður varla langt, hjónabandið þetta,“ sagði Leifi. Rósa vissi ekki, hvort hún ætti að skammast sín fyrir framhleypni sína eða ekki. Hún sá, að maður hennar var jafn þungbúinn og inn við borðið, þar sem hann var að tala við Leifa og föður sinn suður við hlöðu. Hún sá, að karlinum var eitthvað mikið á höndum. Hann potaði út í loftið og talaði öll ósköp. Það gerði hann náttúrlega alltaf. Svo gengu þeir allir suður að Garði. Þeir komu heim til að borða morgunmatinn og fóru strax aftur. Rósa talaði ekkert við þá. Geirlaug var, eins og fyrri, illa haldin af forvitn- inni og spurði Sigga að því, hvað þeir væru að gera þama suður frá. Hann vildi ekkert um það segja. Þegar miðdegismaturinn var borðaður, komu þeir heim, og Rósa sá, að karlinn var ákaflega kátur og það sem meira var, hún sá hann tala einslega við konu sína og verða samstundis eitt ánægjubros. Rétt á eftir hvarf Arndís úr bænum. Geirlaug sagði, að hún hefði áreiðanlega farið suður að Garði. — En hvað gætu mennirnir verið að gera þama í Garði. „Kannske það sé einhver tyllidagur þar, afmælisveizla eða eitthvað þess háttar, og þess vegna hafi Gerða ekki getað verið í sviðunum,“ sagði Rósa. „Ég verð fegin að þurfa ekki að hlusta á rausið í karlinum.“ Svo leið þessi dagur og sá næsti líka. Leðgarnir voru einnig í Garði þann dag. Rósa spurði þá einskis. Kristján var fátalaður við alla, en ef hann talaði til konu sinnar, þá var hann ákaflega hlýr og blíður. Hartmann gamli gekk nú hreint til verks og spurði hana, hvort hún væri öskubullandi reið við sig. Hún sagði, að svo væri ekki. Þá skellihló karlinn: „Ég get hugsað, að þú gætir búið við mig árekstralítið, telpa mín. Ég hef náttúrlega aldrei lært neinn penpíutalsmáta. Slíkt þekkist ekki í mínu plássi. Líklega félli mér einna verst við gólið í garganinu, ef ég kæmi í hornið til þín. En það kemur nú ekki til þess, á meðan kerlingin skrimtir.“ Loks kom hann, sá langþráði þriðjudagur, þegar tengdaforeldrarnir stóðu ferðbúin á hlaðinu.. Gamla konan var í peysufötum og kápu af tengda- dótturinni, með bleikt yfirsjal um höfuðið. Hartmann rausaði: „Það er aldrei að þú sért búin að hressa þá gömlu við. Hún hefur yngzt um mörg ár. Ég efast um, að það þekki hana heima. Heldur líklega, að ég hafi klófest einhverja nýja. Það yrði þá saga til næsta bæjar.“ Svo kyssti hann Rósu tvo rembingskossa, sem særðu hana svo, að hana logsveið í varirnar lengi á eftir. Gamla konan kvaddi Rósu grátklökk og bað guð að launa henni öll gæðin við sig. Rósa fann til samvizkubits. Hún átti ekki þetta þakk- læti skilið. Leifi í Garði reið á undan með tvo hesta undir klyfj- um. Sláturtunnan var öðrum megin á öðrum klárnum en hinum megin var önnur ný tunna. Hana átti Leifi sjálfsagt. A hinum hestinum var eitthvert drasl. Kristján fylgdi foreldrum sínum til skips. „Ég kem heim með slátur á hestunum aftur, ef ég get,“ sagði hann, þegar hann kvaddi konu sína. Hún hugsaði um það, hvenær kindurnar hefðu verið reknar til slátrunar. Siggi var heima, svo að ekki hafði hann getað farið með þær. Geirlaug fór að láta slátrið og sviðin niður í tunnur. Rósa stóð hjá og horfði á. Hún var eins og hver annar lærlingur. Hún hafði aldrei tekið eftir svona löguðu hjá móður sinni, og það lítið sem kennt var á skólanum hafði lærzt illa. Hún varð að fara að hafa hugann við búskapinn, fyrst hún hafði verið svo heimsk að verða sveitakona. Nú heyrðist gengið inn í bæjardyrnar og boðið góð- an daginn, og lengra inni í göngunum var svo spurt, hvar allt fólkið væri. „Það er nú ekki orðið margt, Stína mín,“ kallaði Rósa. „Við erum hérna í búrinu tvær, það er allt og sumt.“ „Ojá ójá, öðruvísi mér áður brá! Heldur fleiri slátur suðu drósirnar á Stóra-Hofi. Enda var handa fleirum að sjóða. Hefurðu ekkert frétt nýlega af þinni myndar- legu móður?“ rausaði Stína frammi í göngum. „Hvern- ig skyldi henni hafa litizt á, ef hrossakjötsbræla hefði læðzt á milli býlanna hérna í torfunni?“ Stína var komin inn á gólfið með tifandi og glamr- andi prjónana eins og vanalega, og skimaði upp um allt rjáfur og út í hvert horn, en þar var allt eins og áður, hreint og sópað. „Ekki að spyrja að Geirlaugu skepnunni... Þið eruð nú kannske að koma fyrir slátrinu. Það er ekki mjög Ijótt hjá vkkur; auðséð, hvar þið hafið lært að laga það.“ „Settu þig inn í maskínuhúsið, Stína mín. Þar er ylur. Við erum nú rétt að Ijúka við þetta, og þá fáum við okkur kaffisopa,“ sagði Rósa. Henni fannst kerlingin eitthvað svo nornarleg á svipinn, að hún vildi helzt fjar- lægja hana. Framhald. Heima er bezt 359

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.