Heima er bezt - 01.04.1959, Síða 18

Heima er bezt - 01.04.1959, Síða 18
um, og nærri samtímis var bílhurðin þrifin opin og einn svertinginn kallaði til mín, auðsjáanlega mjög æstur: „Simpansinn hefur ráðizt á son þinn.“ Samtímis heyrði ég Mikael hrópa: „Pabbi flýttu þér, Roger er að ryðj- ast út úr búrinu.“ „Hefurðu ekki bareflið?“ kallaði ég á móti, en hið óða dýr hafði svipt bareflinu úr höndum Mikaels og reyndi nú að ná til hans með því gegnum rimlagötin á búrinu. Vopnlaus gat ég ekkert aðhafzt, svo að ég hljóp út af veginum í von um að ná í eitthvað til að berja apann með. Ég var svo heppinn að rekast á bambusgirðingu, og úr henni reif ég nokkrar stangir, og komst þannig vopnaður aftur upp á bílpallinn. Roger hafði náð einum járnrimlinum úr fari sínu og sveigt hann til hliðar, svo að hann gat rétt handlegginn út um gatið upp að öxl, og á þann hátt náði hann til Mikaels. Hann hafði náð prikinu úr hendi drengsins, og enginn gat tálmað því að hann sveigði fleiri rimla til hliðar. Brátt tókst honum líka að troða haus og herðum út úr búrinu. Þótt Mikael væri vopnlaus, reyndi hann að ýta apanum aftur inn. En í þeim stimpingum hafði Roger glefsað í hönd hans og rifið þar hold frá beini. Ég gat ekki sinnt sári Mikaels, en sveif að apanum og lét höggin dynja á höndum hans, þar sem hann var að reyna að sveigja rimlana til hliðar. Roger var hams- laus af vonzku. Hann henti sér á rimlana og reyndi að beita öllu afli skrokksins til að sveigja þá til hliðar, svo að hann kæmist út. Aður en ég vissi af, seildist hann í bambusstöngina í hendi mér og svipti henni af mér. Ég hafði aðra viðbúna og hélt áfram að lumbra á honum, en ég varð að gæta mín að vera í hæfilegri fjarlægð, svo að hann gæti ekki seilzt til mín og dregið mig að sér, því að þá var voðinn vís. Allir svertingjarnir höfðu haft sig á brott meðan á þessu stóð. Jói, þjónninn minn, var sá eini, sem ekki hafði flúið. Hann hélt sér þó í fjarlægð, en nógu nærri samt til þess að lýsa mér með vasaljósi sínu. Roger öskr- aði og- urraði. Aftur tókst honum að hrifsa stöngina úr hendi mér og loks þá þriðju. Eg gat ekki annað gert en að fylgjast með hreyfingum hans, og um leið og hann reyndi að rífa síðustu rimlana í brott, að berja þá mis- kunnarlaust á krumlurnar á honum. Bíllinn hafði numið staðar, og ef til vill hefur Roger eitthvað róazt við það. Eins mun hann hafa sviðið sárt undan höggum mínum. Að minnsta kosti stilltist hann smám saman lítið eitt. Mér gafst þá færi á að reyna að sefa hann með orðum. Hann tók því vel, reiði hans hjaðnaði, og hann rétti fram hendumar, eins og hann bæðist hjálpar. Þegar slík reiðiköst simpansa hefur lægt á annað borð, láta þeir venjulega vel að stjórn og hlýða vinsamlegri meðferð. Þegar hann var orðinn rólegur, reyndi ég að koma rimlunum aftur í samt lag og binda þá ásamt þverslám til styrktar með reipi og vír, sem ég fann í farangri svertingjanna. Að því loknu gat ég fyrst farið að huga að Mikael og sárum hans. Hönd hans var hræðilega útleikin. Skinnið af handarbakinu og fram á fingur hékk í flygsum og blóðið lagaði úr sárinu. Ég gerði að sárinu til bráða- birgða með hreinum klútum, sem ég náði úr farangri okkar, og svo var aftur lagt af stað. Mér var harla órótt innan brjósts. Fyrir fimm ámm hafði simpansi bitið mig í höndina. Þótt bitið sýndist engan veginn alvarlegt í fyrstu, hafði þó ein aflsinin skaddazt, svo að ég varð að leita læknis samdægurs. Síðar var tvisvar skorið í hendina, og lá við sjálft, að hún yrði tekin af mér, og enn var langatöngin staur- fingur. En mér varð það áreiðanlega til hjálpar, að ég naut læknishjálpar ágæts sérfræðings á fullkomnu sjúkrahúsi. En hvernig myndi fara með Mikael hér mitt inni í Afríku, þar sem hvorki voru til læknar né sjúkrahús? Ég taldi mílurnar og fannst bíllinn vera óra- tíma að mjakast frá einu merki til annars, og það var hann í rauninni, enda náðum við ekki til Bouaké fyrr en eftir tvær stundir. Þar gat ég loksins hreinsað sár Mikaels, gefið honum penicillin og bundið sómasam- lega um hönd hans. Næstu dagana var ég önnum kafinn við að útbúa nægilega sterk búr handa dýrum okkar og búa undir framhald ferðarinnar. Það var engan veginn nokkurt skemmtistarf í 100° F hita, að saga sundur járnstangir eða telgja til afríkanskan harðvið, sem svo er illharður, að nagli verður naumast reltinn í hann. En allt tókst það að lokum. Ég lét Mikael ferðast sjóleiðis með dýrin en flaug sjálfur beina leið til Frankfurt. Bæði Mikael og Roger veiktust á heimleiðinni. Mikael lýsir hinni raunalegu heimkomu á þessa leið: „Loksins komumst við til Hamborgar. Þar tók faðir minn á móti okkur ásamt hóp af blaðamönnum, sem vildu frétta um ferðalagið. Vesalings Roger, sem mér var farið að þykja innilega vænt um, var fárveikur. Samt fagnaði hann föður mínum innilega, og hann rétti fram hendurnar eins og til að bjóða hann velkominn. Við fengum hitaðan járnbrautarvagn handa dýrunum til Frankfurt, og hraðlestin flutti okkur þangað sam- dægurs. En daginn eftir að við komum heim dó vesalings Ro- ger. Hann er elskulegasti simpansinn, sem ég hef kynnzt. Silfurgrátt faxið á herðum hans var hans höfuðprýði. Hann var gáfaður, bráður í skapi en göfuglyndur. Honum voru gefnar sprautur og alls konar meðul, ef unnt væri að bjarga lífi hans. Þótt hann væri svo veikur, að hann gæti naumast staðið, reyndi hann samt til að ráðast á dýralækninn, sem hann þoldi ekki að sjá. Þegar við feðgarnir hins vegar komum til hans, brölti hann á fætur og faðmaði okkur að sér. Og hann tók því með þolinmæði, þegar ég stakk í hann nálinni, til að gefa honum meðalið. En öll okkar fyrirhöfn varð árangurslaus. Við björg- uðum honum frá því að fyrri eigandi hans skyti hann, áttum í ótrúlegum erfiðleikum með að koma honum alla leið til Þýzkalands, til þess eins að hann dæi daginn eftir heimltomu okkar. Ef við einungis hefðum getað veitt honum fullkomna læknishjálp 4—5 dögum fyrr, var Framhald á bls. 145 130 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.