Heima er bezt - 01.10.1961, Side 16

Heima er bezt - 01.10.1961, Side 16
Landlyst 1958. Ný’ir og starri gluggar, en annars mikið til óbreytt frá fyrstu tið. lega stórt, til þess að ég gæti búið þar og ljósmóðirin. En af því að hún fékkst ekki til að búa þar, nema fjöl- skylda hennar flytti í stofnunina, þá var því þannig fyrir komið, að hún komi tvisvar á dag í stofnunina til þess að vitja kvennanna og barnanna, fyrir tveggja dala borgun fyrir hverja konu og jafnháa upphæð fyr- ir hvert barn. Til þess að búa í stofnuninni var ráðin matselja, sem fékk 3 marka laun á dag fyrir hvert barn, sem lifði, og tvö fyrir hvert barn, sem lézt. Auk þess þóknun fyrir mat handa fátækum konum. Meðan ver- ið var að koma stofnuninni í lag, tókst ég á hendur ferð til fastalandsins og kom fyrst aftur 20. september. (Sbr. hér á undan.) Ég komst að raun um að íbúarnir voru langt frá því að vera hlynntir fyrirtækinu. Konurnar voru ófúsar til þess að leggjast inn á stofnunina, jafnvel þess fullviss- ar, að ekki væri hægt að afstýra dauða ungbarnanna. Ég átti því erfitt með að koma fyrirtækinu í fram- kvæmd og þrátt fyrir það þótt ég legði margt í söl- urnar. Ég gat aðeins fengið átta konur til að leggjast á stofnunina. Aftur á móti voru öll börn, sem fæddust þann tíma, sem ég dvaldist á þessum stað, flutt þang- að annað hvort sama dug eða daginn á eftir, að þau fæddust. Með því að sjúkdómurinn kemur venjulega í ljós, hér sem annars staðar, innan 14 daga eftir fæð- inguna, var börnunum hjúkrað, og þau alin aðeins 2 til 3 vikur á stofnuninni. Ég þarf ekki að taka fram, að ég gætti allra varúðar- reglna með tilliti til dragsúgs, hitabreytinga og óþæg- inda m. a. við að gefa börnunum að borða (kunstliche auffiitterung), sem ekki varð hjá komizt vegna að- stæðna. Einkum gaf ég gætur að naflastrengnum og lét, eftir ráði amerískra Iækna, binda um naflann á öll- um börnum, þangað til að hann féll af, með „balsamum copaivae“ þar sem vart varð við hið minnsta grun- samlegt sjúkdómseinkenni, t. d. ef naflasárið hafði mis- litt útlit, brúnirnar uppflenntar og bólgnar, neðri hluti líkamans heitur og stífur, notaði ég líka sem varúðar- reglu, heit jurtablöð og lét binda naflann einu sinni eða tvisvar daglega með sárabindi, sem bleytt var í „Laud. liq. Syd.“ Af þeim 23 börnum, sem tekin voru á stofnunina (sá fjöldi svarar til meðaltals barna sem fæddust árlega), fengu aðeins 3 ginklofaveikina og létust þau, þó meðöl væru notuð. Tvö létust á 7. degi en eitt á 9. degi. Auk 344 Heima er bezt þess dóu 2 börn, annað af vondu kvefi, sem þá gekk og barnið hafði frá fæðingu, en hitt barnið fæddist fyr- ir tímann og lézt af vesaldómi, án þess að nokkuð fynd- ist athugavert á því við líkskurð. Eftir útreikningi, sem ég hef gert eftir kirkjubókum síðustu 20 árin, kemur í ljós að af lifandi fæddum börn- um dóu árlega að meðaltali 62% áður en liðnar voru 2 fyrstu vikurnar eftir fæðingu....“ (Elann á hér við árin 1828 til 1848.) Dr. Schleisner kveðst hafa orðið var ginklofa um allt land, en hvergi sé hann jafnskæður og í Vestmannaeyj- um. Hann segir að barnadauðinn sé þar mestur hjá bændum, en húsnæði þeirra sé verst og sóðaskapur mestur. Næst gangi barnadauðinn hjá tómthúsmönn- um, þá embættismönnum og verzlunarfólki en minnst- ur sé hann hjá kaupmönnum, enda séu húsakynni þeirra bezt. Einnig segir hann, að híbýli manna í Eyjum séu þau langverstu, er hann hafi séð á öllu landinu, og er lýsing hans á þeim mjög ófögur. Enginn vafi er á, að húsakosti manna hér hefur ver- ið mjög ábótavant um þessar mundir og hreinlæti af skornum skammti bæði í Eyjum og annars staðar, að minnsta kosti í augum dr. Schleisners. Það er ekki að undra þótt honum hafi blöskrað, þegar þess er gætt, að allar líkur eru til að fyrstu mannahíbýlin, sem hann hefur kynnzt, hafi verið fjósbaðstofur, sem vitanlega voru mjög misjafnar að gæðum og hreinlæti. Við hús- dyr margra heimila hér í Eyjum voru þá safnþrær, sem í var hent alls konar úrgangi, hefur óefað lagt af þeim magnaðan óþef, því að allar voru þær opnar. Þá hefur fýlafiðurlyktin af sængurfatnaði og fólkinu sjálfu ekki verið sérlega heilnæm, að ógleymdri fýlunni og reykn- um af eldiviðnum, sem var þurr bein, þang, fuglshamir tað, grútur o. fl. þess háttar. Segir læknirinn að húsin séu oftast full af svælu og reyk frá þessum óþverra, og sé þetta mjög skaðvænlegt heilsu fullorðina, hvað þá nýfæddra barna. Loftrými í húsum segir hann að hafi minnst verið 48 rúmfet á mann en mest 192 rúmfet, meðaltalið sé 99.6 rúmfet. Margt fleira telur hann upp, sem ábótavant sé í hreinlæti og heilbrigðisháttum, og hafa ályktanir hans efalaust haft við full rök að styðjast. Fyrsta barnið sem fæddist og hélt lífi á fæðingar-

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.