Heima er bezt - 01.10.1961, Side 20

Heima er bezt - 01.10.1961, Side 20
þá afhent Guðmundi, syni sínum, jörðina. Manni dett- ur í hug, að hann, sem þá hefur verið kominn á efri ár, hafi ekki treyst sér að búa þar lengur við eyðileggingu þá sem orðin var. Guðmundur, sonur hans, sem tók þá við jörðinni, bjó þar til 1889 — í 50 ár og var talinn gildur bóndi. Honum var haldið samsæti af sveitung- um hans í því tilefni það ár. Þá flutti fróðleiksmaður- inn sér Jón Jónsson á Stafafelli, sem þá var prestur í Bjarnanesi, kvæði til Guðmundar og minnist þar meðal annars á eyðileggingu þá, sem vötnin höfðu gert. Hann segir: En aldir langar liðu og landi hnigna nam, þá hhðar huldust skriðu og hlupu jöklar fram, þá eyddust engjar vænar, er ólgan vatna svall og hurfu grundir grænar en grjótmöl yfir skall. Þá bú hér bóndi reisti, er brátt nam sýna dáð o. s. frv. Svo virðist sem skriðjökullinn hafi ekki lengi staðið í stað, er hann hafði náð hámarki en það mun hafa verið um 1880, því á síðasta áratug 19. aldarinnar fóru að sjást merki til þess, þar sem hann lá við fjöllin að hann lækkaði. Þá fór að bóla á fjallshnjúk fyrir vestan Múlann, sem nú er orðinn talsvert stór og jöklafar- arnir Jón Eyþórsson og Sigurður Þórarinsson gáfu nafnið Nýju-Núpar. Síðan má segja að árlega hafi sézt munur á honum og sérstaklega nú síðustu 20 árin. Hann gengur, að vísu, nær eins langt fram og áður, en nú er hann orðinn þunn skán, samanborið við það sem var og er sennilegt að nú fari hann óðum að styttast úr þessu, en þunginn frá hálendinu heldur honum enn við. Nú lokar hann ekki lengur fyrir vatnsrennslið frá fjöll- unum, svo nú er það jafnara og ekki hætt við stór- hlaupum nema ef um eldsumbrot væri að ræða. Þegar ég man fyrst, komu Fljótin undan jöklinum fast við Geitafellsbjörgin og lágu farvegir þeirra þaðan víðs vegar um sandinn. Féllu þau þá sitt á hvað út með Svínafellsfjalli, Hoffellsfjöllunum eða um miðjan sand. Vanalega var það svo þegar ísa leysti á vorin, að þá varð sandurinn alveg þurr nema lítilsháttar læna, sem féll út með austurlandinu og myndaðist af vatni úr giljum fyrir framan Geitafell. Jafnvel þó rigningar væru á Einmánuði og allt fram að mánuð af sumri, uxu þau ekki því ekkert vatn kom undan jöklinum á þeim tíma, en úr því kom það oft þegar minnst varði og byrjaði þá stundum með stórhlaupi. Þegar Fljótin féllu austur, lokuðu þau alveg leið að Hoffelli, eftir sandinum yfir hásumarið og var þá mjög erfitt að nytja Hoffellsengjar. Þá var ekki síður erfitt að komast í Skógey til heyskapar og flytja hey þaðan, en þangað sótti öll sveitin, fyrir utan Þveit, heyskap, að meira eða minna leyti. Þá var líka mjög erfitt að halda við vegi yfir Fljótin ytra, sem kallað var og er, frá Bjarnaneshjáleigum, um Skógey, að Holtum. Var það algengt, að menn yrðu að sundríða yfir álana — Prestsfitarál og ál fyrir vestan Skógey, sem var nafn- laus að öðru leyti en því, að sumir kölluðu hann Vonda- ál. Kom það þá stundum fyrir að menn losnuðu við hestana og urðu fyrir hrakningi, en sjaldnar varð þó dauðaslys af því en von var til. A fyrsta áratug 20. ald- arinnar drukknuðu tveir merkisbændur í Fljótunum. Þorleifur Pálsson bóndi í Holtum 1904 og Guðmundur Jónsson bóndi í Þinganesi 1909. Þá flutti skáldið og hugsjónamaðurinn Eymundur Jónsson bóndi í Dilks- nesi erfiljóð eftir Guðmund. í þeirn er þetta erindi: Plerjans fljót á hvers manns slóðum. Hvað ert þú að grafa og vinna? Vilt þú engu öðru sinna en að bana drengjum góðum? Ef ég væri auðkýfingur ég þig skyldi grafa niður, niður í jarðar innstu iður, um þig skyldi spenntur hringur. Hér sér skáldið í anda það sem nú er fram komið. Þó hann tali um að grafa Fljótin niður í jarðar innstu iður, er það líkingamál. Nú er búið að beizla þau og kreppa svo að þeim, að þau verða að grafa sig niður sjálf. Hringurinn er spenntur um þau með hinni glæsi- legu brú, sem við sjáum hér í dag og nú er tekin í notkun. Stórt landsvæði, sem þau hafa haldið gróður- lausu urn hálfa aðra öld, er nú verndað fyrir ágangi þeirra. Ég las í blaðagrein í sumar, að það væri 4 fer- kílómetrar að stærð og þótti mikið, en ég held að blaðamaðurinn hafi ekki gert sér glögga grein fyrir því hvað stórt það er, eða litið smáurn augum á það. Ég býst við að óhætt sé að margfalda þá tölu með fjór- um, að minnsta kosti og telja það 16 ferkílómetra. Þó hér sé mikill sigur unninn, megum við ekki gleyma því, að það er aðeins áfangi á þeirri leið, að brúa öll jökulvötn í Skaftafellssýslum. Eftir eru Steina- vötn í Suðursveit, Fjallsá og Jökulsá á Breiðamerkur- sandi. Nú verður vonandi að stefnt næstu árin að brúa þær, en hætt er við, að nokkur bið verði á því, að hægt verði að brúa vötnin á Skeiðarársandi, en væntum þess, að þeir tímar komi, að með minnkandi jökli og vax- andi tækni verði það gert og þá fyrr en okkur þykir nú útlit fyrir. Ég lýk svo þessum hugleiðingum með því að lesa síðasta erindið úr Brúardrápu Hannesar Hafstein, sem hann flutti við vígslu Ölfusárbrúarinnar gömlu. Heill sé hug og snilli. Heill sé ráði og dáðum. Heill sé hönd og anda. Heiður um foldu breiðist. Fíti sól hver sæmd og nýjar tryggðir. Sveipi gæfan fósturjarðar byggðir. Blómgist framkvæmd, blessist sveiti lýða. Brúin rísi fram til nýrra tíða. 348 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.