Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 21

Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 21
ÞATTUR ÆSKUNNAR RITSTJORI Pi jorsaraaiur c I a I (Niðurlag.) Þegar ég réð mig að Ásólfsstöðum í nokkrar vikur sumarið 1922, var Þjórsárdalurinn takmarkið. Harm- sagan og auðnir dalsins seiddu mig. Páll á Ásólfsstöð- um stóð við loforð sitt, sem hans var von og vísa. Ann- an sunnudaginn, sem ég var þar, voru reiðskjótar heim- reknir snemma morguns og undirbúin ferð um Þjórs- árdal. Páll er þaulkunnugur dalnum. Hann veit nöfn á eyðibýlunum og hann veit hvar bæirnir stóðu, þótt rústirnar séu huldar vikri og sandi. \ ið höfðum ákveðið að koma fyrst og fremst á þessa staði: Eyðibýlin Stöng og Steinastaði, Gjána, Skelja- staði og að Hjálparfossi. — Frá Ásólfsstöðum liggur leiðin inn í Þjórsárdal fram hjá innsta byggða bænum, Skriðufelli, — inn með Skriðufellsskógi inn á auðnir Þjórsárdals. Vegurinn er greiðfær, — ágætur reiðvegur. — Þetta er leiðin norð- ur á Sprengisand, sem einu sinni var fjölfarin leið milli Suðurlands og Norðurlands. — Á hörðum, sléttum graseyrum á móts við Ásólfsstaði taldi ég 14—15 hálf uppgrónar götur hlið við hlið á þessari leið. Þessar götur myndast þannig á fjölförnum leiðum, að þegar ein gatan dýpkar, þá myndast önnur meðfram henni og svona koll af kolli, þegar farið er um sléttar grund- ir af fjölmenni. Við Páll létum klárana spretta úr spori „og ei var áð og ekkert strá þeir fengu,“ því að landið var að mestu gróðurlaust. Fyrst héldum við inn að Stöng „en það- an er til Steinastaða leiðin ekki löng“. Ég gat naumast trúað því þá, að í þessum vikurhól- um væru grafin bæjarhús frá horfnum öldum, — frá Söguöld eða Sturlungaöld. — Engar rústir sáust upp úr vikurhaugunum, nema hornið á einhverju garð- broti eða byggingu, sem reyndist vera fjós, að mig minnir, er bærinn, eða rústir hans, voru grafnar upp. Kristján Eldjárn þjóðminjavörður lýsir þannig út- sýn og umhverfi, þegar komið er heim að Stöng: „Bærinn í Stöng stendur suðvestan undir Stangar- felli a grænum holrana, sem rís með allbrattri brekku upp ftá Rauðá. Að húsabaki er Stangarfell, allbratt, hömrótt og prýtt fallegu stuðlabergi sums staðar. Aðal- útsyn frá bænum er niður eftir hinum miklu söndum Þjórsardals, en sjónhringurinn er girtur mörgum fell- um og fjöllum. Næst bænum, í suðri, er Skeljafell, sviplíkt Stangarfelli, fremur lágt, en víða hömrótt; bæði eru fell þessi allvel gróin.---Skeljafellshálsinn byrgir sýn til Heklu, svo að aðeins bryddir á blátoppi hennar. Fyrir mynni Þjórsárdals sjást Hagafjall og Skriðufell, grænni og grösugri en önnur fjöll. í Skriðu- fell ber hamraborgina Dímon með fjölbreytilegu stuðlabergi og skógivöxnum brekkum. Fegurð hans nýt- ur sm þo ekki fra Stöng, af því að hann ber í önnur fjöll. Hún er stórfenglegust, þegar útlínur fjallsins fá að skera af við heiðan himin. Inn af Dímon, í vestri frá Stöng, sézt Reykholt, hið syðsta af fjöllum þeim, er skipta Þjórsárdal í tvær álmur, og ofar því í fjarska Hestfjallahnúkur; hann er hæstur Hreppafjalla. Reyk- holt dregur nafn af gufum hvers, sem liggur á milli þess og Rauðukamba. Má glöggt sjá reyki hans frá

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.