Heima er bezt - 01.10.1961, Page 22

Heima er bezt - 01.10.1961, Page 22
Bœjarhúsin á Stöng í Þjórsárdal. Stöng, þegar veður er hagstætt. Hverinn er vatns- mikill og allheitur, (71° skv. mælingu Þ. Thoroddsen), eina heita uppsprettan í dalnum. Inn af Reykholti sjást Rauðukambar, gróðurlausir, en litskrúðugir með af- brigðum. Mest ber á rauða litnum, eins og nafnið bend- ir til, en grænn litur með mörgum litbrigðum lætur einnig mikið til sín taka. Allir eru litirnir mjög til- breytilegir eftir veðri. Fyrir innan Rauðukamba er Fossalda, fagurt og litauðugt fjall, en hún sézt ekki frá Stöng. Suður og vestur frá bænum er flatlendi mikið, mest eyrar og blásnir vikrar, þar sem ætla má, að áður hafi verið engjar og skógar. Sums staðar prýða upp- typptir hraunhólar þessa flatneskju, rauðir að lit, gervi- gígar frá því að hraun rann hér yfir mýri eða stöðu- vatn. Allt er þetta svæði nú friðað og girt.“ Sumarið 1939 voru bæjarrústirnar í Stöng grafnar upp og kom þá í ljós, að útveggir allra bæjarhúsa voru í skálanum á Stöng. ófallnir. Þeir höfðu varðveitzt lítt skemmdir undir vik- ur-dyngjunum. Kristján Eldjárn segir svo um þessar uppgröfnu rústir: „Þegar bæjarrústirnar höfðu verið grafnar upp, þóttu þær svo fágætlega fagrar og skýrar, að menn höfðu ekki geð í sér til að moka ofan í þær þá þegar og varð því úr, með góðra manna hjálp, að gerð voru þök yfir öll húsin í því skyni að þau yrðu framvegis til sýnis almenningi.“ Eftir að þessar bæjarrústir voru grafnar upp, hef ég tvívegis komið að Stöng og skoðað þessar merkilegu rústir. — En nú líta þessar rústir ekki út eins og venju- legar bæjarrústir. Þetta eru núna bæjarhús í sama formi og hin föllnu, gömlu bæjarhús voru. Veggir eru upp- gerðir og þak sett á öll húsin. — Ég ætla mér ekki þá dul að lýsa þessum „uppgrafna“ bæ, en fróðir menn geta ráðið margt, sem áður var hulið, um híbýli og heimilishætti sögualdarmanna, eftir uppgröft þessara bæjarrústa. Mér er fjósið sérstaklega minnisstætt. Það lítur út eins og það hefði verið reist fyrir nokkrum árum. Bás- stokkar, flór, milligerðir, jötur og básar; þetta er allt óhaggað. Milligerðir milli bása eru vel lagaðir hellu- steinar. Flórinn er hellulagður og vel gerður. í fjósinu hafa verið 18—20 básar og má nokkuð ráða efnahag- inn eftir þessum nautgripafjölda. Þessar rústir allar segja langa og merka sögu, þótt sú saga sé ekki á bók- fell skráð. Um stund nutum við Páll hins víðfeðma útsýnis frá Stöng og reyndum að hugsa okkur hinn örfoka Þjórs- árdal eins og hann var á fyrstu öldum íslands-byggðar. — Frá Stöng sér yfir mikinn hluta Þjórsárdals og þaðan hafa sézt flestir bæir sveitarinnar, sem í auðn hafa fall- ið, allt niður undir Skriðufell. Frá Stöng héldum við svo eins og leið liggur yfir vikursanda og örfoka mela að Skeljafelli, en í hlíðum fellsins hefur staðið bærinn Skeljastaðir. Þar var kirkju- staður í fornöld og munnmæli herma að þarna hafi búið Hjalti Skeggjason, sem í sögunum er oft kennd- ur við Þjórsárdal. Hér sést greinilega móta fyrir tún- garði og eitthvað sér á bæjar- og kirkjurústir. Við Páll röltum um stund um sandauðnina innan túngarðs, og hann bendir mér á hvar talið er að kirkjan og bærinn hafi staðið að fomu. Þarna lágu mannabein á dreif um sandinn, því að kirkjugarðurinn hefur sýnilega blásið upp, þótt bæjarrústirnar hafi grafizt í sand. Engar höfuðkúpur sá ég á sandinum, en leggi, rifbein og liði. Páll sagði mér þá sögu, að þjóðkunnur maður einn hefði verið þarna á ferð og tekið lærlegg, sem lá í sand- inum og látið hann í hnakktösku sína og haft hann á burt með sér. Nóttina eftir dreymdi manninn mjög illa, og um morguninn, þegar hann fór að huga að töskunni, þá var leggurinn horfinn. — Þessa sögu sel ég ekki dýrara en ég keypti hana. En eitt vil ég benda á, í sambandi við þessa sögu, að það hefur aldrei þótt gæfulegt á íslandi, að fara hirðuleysis- lega með mannabein, sem grafin hafa verið upp eða

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.