Heima er bezt - 01.10.1961, Page 25

Heima er bezt - 01.10.1961, Page 25
Heiman og heim Framhald af bls. 337. — Of langt mál yrði að skýra frá öllum smá ævintýrum og góðsprettum sem gerðust í þessari ferð. Alls staðar var góðvinum að mæta og vín á skálum. En þetta var nú á bannöldinni, og talið heyrði ég, að í Skagafirði væri minna drukkið af áfengi en í flestum öðrum sýsl- um landsins. — Ég vil í því sambandi geta þess, að á þessum árum var biskup íslands á yfirreið um Skaga- fjörð. Spurði hann greindan og merkan bónda hvort það væri satt, að mikil víndrykkja tíðkaðist í Skaga- firði. Bóndi svaraði biskupi svo, að hann áliti, að „fyllirí“ mætti ekki minna vera í héraðinu. Fyrsti gistingarstaður okkar á þessum fornu slóðum, var í Litladal í Tungusveit. Þar bjó fornkunningi minn Jóhann Jónasson, hestamaður, sem átti margt hrossa. Hjá Jóhanni gistum við tvær nætur. Daginn á milli not- uðum við til yfirreiðar um landið með Jóhanni og athugunar á hrossastóði hans, sem flest var sjálegt og kvikt á fæti í sjálfræði vetrarblíðunnar. Þennan vetur bjuggu nýgift hjón á Skíðastöðum á Neðribyggð, Friðrik Jónsson og Soffía Stefánsdóttir. Frúin var húnvetnsk. Friðrik nam hana úr vesturbyggð- um vorið áður, og giftist henni á Blönduósi. Ég var svaramaður þeirra. Að lokinni vígslu fylgdi ég þeim fram í Langadal með koníaksflösku upp á vasann. Hafði ég náð mér í flösku um borð í skipi, sem lá á Blönduós- höfn. Ég fékk kröftug skeyti frá þessum hjónum um að koma við á norðurleið. Þar gistum við Jón við góðan kost. Þau hjón áttu þá brúnan góðhest Óðin að nafni, og er hans getið í fyrra bindi „Horfnir góðhestar“, á bls. 310. Þegar við morguninn eftir lögðum af stað í fylgd með Friðriki, vildi frúin ekki annað heyra, en ég leggði á Óðin, og var það vel þegið. Og til þess að tryggja enn þá betur unaðskenndir mínar, þegar ég riði úr hlaði, stakk hún að mér fullri brennivínsflösku. Slíkar höfðingskonur er gott að heimsækja á langferðum. Vegir norður að Eylendinu voru harðir og hrjúfir og lofaði ég Óðni aldrei að taka sprett. Þegar kom norður hjá hinum nafntogaða og fræga Skiphól, sem rís hátt en lætur þó fara vel um sig á sléttlendinu norð- an við Vindheimabrekkur og skammt frá Svartá, fékk ég áskorun eða öllu heldur ögrun frá félögum mínum um að lofa nú Óðni að hlaupa einn skeiðsprett. Þarna var láréttur grasbakki framundan norður með ánni, en á köflum með alldjúpum götuskomingum, táknrænu fyrirbæri frá góðhestagullöld Skagfirðinga. Ég var ekki ánægður með sprettfærið, en lofaði Brún þó að fara. Þegar hann hafði náð skeiðfluginu, lenti hann í nokkuð djúpri og þröngri götu. Ég reyndi að beygja hann lítið eitt til hliðar inn á sléttari skeiðvöll. Tólcst mér það, en við beygjuna greip hann fram á Jón Pétursson. , sig, en fataðist þó ekki skeiðið. — Á meðan Óðinn þrumaði norður bakkann, reið þekktur hestamaður norðan frá á hlið við okkur, og sá glöggt skeiðgrip Óðins. Hann mælti svo, að naumast hefði hann séð fallegri tilburði eða skeiðgrip til hests. Ég taldi mér trú um, að gæðingshróður Óðins hefði ekkert minnk- að við þennan sprett. Þegar við fóram af baki kom það í ljós, að Óðinn hafði gripið sig á innri hæl á hægra framfæti, en þó ekki svo að valda mundi helti. Ég átti joð og hrátjöru í tösku minni, sem ég bar í sárið, og batt svo með vasa- klút um fótinn. En ekki var ég ánægður að verða að skilja við Óðin með særðan fót eftir góð kynni og þennan glæsilega sprett, en þannig launaði ég gestrisni og fórnfýsi þessara góðu hjóna. Ég leit hrifinn og þakklátur með góðkenndir í hjarta á eftir Óðni, þegar hann reistur og glaðvær skokkaði við hlið húsbónda síns að afstöðnum skilnaðarkveðjum. Við Jón riðum að Eyhildarholti um kvöldið. Nú fóru dýrðardagar í hönd. Sýslufundur og sælu- vika, mesta árshátíð Skagfirðinga, var að byrja. í birtu og sólarljóma dagsins mátti líka sjá mikla umferð um sléttlendið í Skagafirði, ýmist ríðandi, keyrandi á sleð- um eða geisandi á skautum. Við gömlu vinirnir riðum til höfuðborgar héraðsins þyrstir í væntanlega sælu og gleði. Við völdum okkur dvalarstað hjá Hálfdáni Guð- jónssyni, vígslubiskupi, og frú hans, Herdísi Péturs- dóttur, systur Jóns Péturssonar. — Margt var til glaðn- ingar og yndisauka sólarhringana sem við dvöldum á Sauðárkróki. Verður hér á fátt eitt minnzt. Framhald í riæsta blaði. Heima er bezt 353

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.