Heima er bezt - 01.10.1961, Page 26

Heima er bezt - 01.10.1961, Page 26
NÍUNDI HLUTI „Það er ekki nema sjálfsögð skylda að gera tilraun til þess, hver sem árangurinn verður.“ Gunnar fer að klæða sig í hlífðarfötin að nýju. Húsmóðirin minnist þess nú, að Gunnar var að koma að utan frá gegningum og hefur engrar hressingar neytt, og hún segir því: „Ætlar þú ekki að fá þér einhverja hressingu, áður en þú leggur út í óveðrið aftur?“ „Nei, þakka þér fyrir, ég verð að fara strax.“ Elsa hefur komið fram í forstofuna, án þess að þau veittu því athygli. Hún gengur nú að hlið Gunnars og nemur þar staðar. „Gunnar, ætlar þú að hætta þér út í þetta hræðilega veður til að leita föður míns og fylgdarmanns hans?“ segir hún. „Já, Elsa.“ „Þú hefur þá staðizt það próf í skóla lífs og starfs að bregðast ekki, þegar mest á reynir.“ „Við hvað áttu, Elsa, nú skil ég þig ekki?“ „Ég ætla ekki að útskýra það fyrir þér núna, það geri ég seinna, vinur minn.“ Frú Helga snýr sér að dóttur sinni og lítur á hana. Hún skilur vel við hvað hún á, en að þessu sinni detta henni engin andmæli í hug. Gunnar hefur staðizt hina stærstu prófraun í vitund hennar. Gunnar hefur hildaust og ótrauður lokið við að klæð- ast hlífðarfötunum á ný og er tilbúinn að leggja af stað aftur út í dimmviðrið. Aðdáunaraugu sýslumanns- dótturinnar ungu hvíla stöðugt á honum, og enginn konungssonur gæti nokkru sinni skipað æðra sæti í hjarta hennar, en Gunnar gerir þessa stundina. En hana ógnar við þeim hættum, sem nú hljóta að bíða hans úti í hríðinni. Hún má þó ekki láta hugfallast. Takist hon- um að bjarga lífi föður hennar og Jóns, verður sigur hans meira en tvöfaldur. Elsa leggur armana um háls Gunnari, án þess að skeyta hið minnsta um nærveru móður sinnar, og mæt- ir vörum hans i innilegum kveðjukossi. Nokkur andar- tök þrýstir Gunnar sýslumannsdótturinni fast að sér og teygar unað ástar hennar í algleymisfögnuði, en fyr- ir hana er hann fús að fórna öllu. 354 Heima er bezt „Vertu sæl, Elsa,“ hvíslar hann. „Vertu sæll, Gunnar. Guð og gæfan fylgi þér!“ Gunnar hneigir sig fyrir sýslumannsfrúnni í kveðju- skyni, opnar útidyrnar og hverfur þegar út í hríðar- bylinn. Elsa tekur undir hönd móður sinnar og leiðir hana upp í dagstofuna. Þar fær hún hana til að leggjast á legubekkinn og reyna að hvílast ofurlítið. Frú Helga er enn í ofsalegri geðshræringu og hefur naumast vald á sér. Sjálf heldur Elsa fullkomnu jafnvægi þrátt fyrir allt, og nú reynir líka fyrir alvöru á þrek hennar og sálarkrafta. Hún skal ekki láta hugfallast, heldur reyna að verða samboðin hetjunni hugdjörfu, sem á þessari stundu stríðir gegn trylltum hamförum vetrarins í leit að föður hennar og fylgdarmanni hans. XVII. Barizt gegn vetrarveldi. Árni sýslumaður og Jón fylgdarmaður hans leggja af stað frá Litla-Ási árla morguns, þrátt fyrir mjög ískyggilegt veðurútlit. Sýslumaðurinn hefur ákveðið að komast heim þennan dag, og hann er því óvanur að breyta ferðaáætlun sinni. Jón reynir að fá sýslumann til þess að fresta förinni, þar til lengra er liðið fram á morguninn, og veðrið betur ráðið, því honum lízt allt annað en vel á útlit þess. En sýslumaður er með öllu ófáanlegur til að bíða lengur, og hans vilji verður að ráða. Jón söðlar þá hesta þeirra, og förin er hafin frá Litla- Ási. Gengur ferðin greiðlega í fyrstú, og er sýslumað- ur hinn hressasti. En er fram á daginn kemur, hvessir skyndilega, og dimm fannkoma skellur á samfara veð- urofsanum. Jón stingur þegar upp á því við sýslu- mann, að þeir snúi þegar heim til næsta bæjar og sjái síðan hverju fram fari með veðrið, en sýslumaður vill ekki heyra það nefnt. Hingað til hafi hann ekki flúið af hólmi fyrir smávegis hríðarfjúki, og enn sé hann ekki orðinn það vesalmenni, að honum komi slíkt til hugar. Nei, áfram skal halda heim að Grund, þótt móti blási, og enn verður fylgdarmaðurinn að lúta vilja hans. Færðin fer ört versnandi, og hestarnir verða tregari

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.