Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 27

Heima er bezt - 01.10.1961, Síða 27
í gangi, og brátt hætta ferðamennirnir að greina veg- inn, og útsýnið verður stöðugt þrengra. Að lokum er skollinn á iðulaus blindbylur með sívaxandi vindhraða, og þeir vita ekki lengur, hvar þeir eru staddir. Veður- ofsinn hrekur hestana í hverju spori, og helsár kuldi gagntekur nú sýslumanninn. Hann stígur því af baki ásamt Jóni og ætlar sér að ganga sér til hita um stund, en gönguþol hans gegn hríð og stormi í siíkri ófærð, sem nú er komin, varir aðeins skamman spöl, og svo nemur hann staðar. Nú verður sýslumanni fyrst ljóst, hve illa þeir eru staddir. Sennilega eru þeir villtir af réttri leið, og hann að örmagnast af þreytu og kulda. Sýslumaður óskar því eftir að setjast niður um stund til hvíldar, og Jón er fús að veita honum það. En brátt sækir lamandi sljó- leiki á sýslumanninn, og hann verður enn kaldari og stirðari en áður. Jón reynir brátt að fá hann til að rísa á fætur aftur, og það tekst með erfiðleikum, en lengra treystir sýslumaður sér ekki að ganga. Jón kem- ur honum þó á hestbak að nýju og teymir undir hon- um smáspöl, en skyndilega hnígur sýslumaður af hest- inum og treystir sér nú engan veginn að komast lengra að sinni. Jón sér nú ekki annan kost vænni en að reyna að grafa sig í fönn og láta einnig skefla yfir hestana. Þeir hola sér nú niður í skaflinn, og fönnin býr þeim brátt mjúka hvílu í köldu skauti sínu. Þungur svefnhöfgi sækir fast á sýslumann, óðar er þeir hafa setzt að um kyrrt, en Jón reynir eftir megni að halda honum vak- andi og hlúir að honum eftir föngum. Sjálfur treystir Jón sér vel til að brjótast lengra áfram, þrátt fyrir óveðrið, en sýslumanninn má hann ekki yfirgefa nú, hver sem afdrif þeirra kunna að verða. Til þess er Jón of drenglyndur fylgdarmaður. Kvöldið færist óðum yfir, og ástand sýslumannsins fer stöðugt versnandi. Jón er þegar orðinn vonlítill um, að hann lifi til morguns við sömu aðstæður, en hann verður þá að taka þeim örlögum. Um hjálp að svo stöddu gerir hann sér enga von. Og tíminn líður. Gunnar vetrarmaður heldur rösklega af stað frá Grund. Hann hefur markað sér vissa stefnu fram að Litla-Ási og er nokkurn veginn viss með að halda henni, þrátt fyrir hið tæpa skyggni. En á þeirri leið væntir hann þess helzt að geta fundið þá, Árna sýslu- mann og Jón fylgdarmann hans. Gunnar á undan veðrinu að sækja, og léttir það göngu hans að miklum mun. Hann er alveg viss á réttum áttum, og karlmennska, áræði og æskuþróttur svellur í æðum hans. Endurminningin um síðustu kveðjustund hans og sýslumannsdótturinnar á Grund vermir hjarta hans í trylltum vetrarofsanum og eykur honum þrótt gegn hættu og þrautum. Hann á Elsu og enginn annar, um það efast hann ekki framar, þótt hann eigi ekkert annað en sjálfan sig að bjóða henni og gefa. Hávær veðurgnýrinn vekur Gunnar brátt til nýrra hugleiðinga. Hann hefur þegar gengið drjúgan spöl, og einskis orðið vísari í leit sinni. Nú má hann ekki halda lengra áfram án þess að athuga leitina betur. Það er alls ekki víst, að ferðamennirnir séu nálægt réttri leið. Hann verður því að gefa frá sér hljóð öðru hvoru, ef ske kynni að það mætti vekja athygli þeirra á ferðum hans. Gunnar hóar því hátt og hvellt nokkrum sinn- um, en árangurslaust. Hann gengur enn um stund og hóar alltaf við 05 við. I hinu kalda fannbyrgi þeirra Jóns og Árna sýslu- manns er ástandið orðið ömurlegt, og hver stundin lengi að líða. Nú er sýslumaðurinn alveg lagstur fyrir í óminnisdvala, kaldur og stirður og hreyfir sig hvergi. En Jón situr enn uppi og starir vonlítill um hjálp út í hríðarkófið. Enn er hann sæmilega hress og finnur lítið til kulda. Skyndilega heyrist Jóni hann greina eitthvert annar- legt hljóð, sem sker sig úr þungum veðurgnýnum. Það er sem ný og óvænt lífbylgja streymi um hann allan. Hann fer hálfur út úr snjóbyrginu og hlustar af öllum mætti, og brátt endurtekur sama hljóðið sig aftur, og nú enn greinilegar en áður. Það er ekki lengur um að villast: skammt frá er hóað hátt og hvellt! Jón hefur þegar upp rödd sína og hóar á móti af öllum mætti. Svo brýzt hann út úr snjóbyrginu, snýr sér í veðrið, því úr þeirri átt berast hljóðin, og heldur stöðugt áfram að svara á sama hátt greinilegri manns- röddinni, sem óðum færist nær og nær honum. Einhver óvænt hjálp er vonandi að berast þrátt fyrir ofstopa- illviðrið. Jón rýnir fast út í dimmuna, og eftir skamma stund greinir hann mann í sortanum, og Gunnar, vetrarmað- ur á Grund, nemur brátt staðar hjá honum. Aldrei fyrr hefur Jón fundið slíkan fögnuð gagntaka sig sem þessa stundina við að sjá annan mann, og hugur hans verður klökkur. Þeir þekkjast óðar, og Gunnar segir: „Hamingjunni sé lof, ég hef þá fundið ykkur!“ „Ferð þinni hefur þá verið heitið okkur til hjálpar? “ „Já, sá var tilgangur hennar, mætti ég verða að ein- hverju liði.“ „Hér er líka full þörf á traustum liðsmanni. Komdu inn í snjóbyrgið, Gunnar.“ Þeir smeygja sér báðir inn í snjóbyrgið, þar sem Ámi sýslumaður liggur, og setjast sitt hvoru megin við hann, en hann virðist enga hugmynd hafa um nærveru þeirra. „Jæja, það er þá svona ástatt hér,“ segir Gunnar. Jón hristir höfuðið dapurlega. „Já, hann er orðinn meðvitundarlaus. En veiztu hvar á jörðinni við erum staddir, Gunnar?“ „Já, það veit ég hér um bil.“ „Er langt héðan heim að Grund?“ „Nei, það er ekki langt. Og þið eruð nokkurn veg- inn á réttri leið, annars hefði ég sennilega ekki fundið ykkur, að minnsta kosti ekki svona fljótt. En nú meg- um við ekki tefja hér lengur, heldur reyna að komást ,með sýslumanninn sem fyrst heim að Grund.“ „Hvernig eigum við að haga förinni, Gunnar? Ég treysti þér bezt til að stjórna benni.“ Heima er bezt 355

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.