Heima er bezt - 01.08.1962, Blaðsíða 25

Heima er bezt - 01.08.1962, Blaðsíða 25
X. Bíl-slysið Ekki voru þau Karlsen og stúlkurnar nema rétt kom- in heim, þegar Sólveig birtist. Asta fór ofan og opnaði. Sólveig spurði eftir Karlsen án þess að kasta kveðju á Ástu. Karlsen bauð Sólveigu inn í herbergi sitt, hún sagð- ist þurfa að tala við hann undir fjögur augu. „Ég skil ekki, hvað þú getur viljað mér. Skilurðu ekki, að við erum algerlega skilin að skiptum,“ sagði Karlsen og horfði rólega á hana. Sólveig beit á vörina og leit á hann bænaraugum. Var helzt að sjá, sem hún ætlaði að fara að gráta. Karl- sen varð ekki um sel. Þetta var þó ólíkt Sólveigu. Hann hafði aldrei orðið þess var, að hún ætti til viðkvæmni. „En barnið þitt? “ stundi hún upp og horfði niður fyrir sig. „Ég trúi því ekki, að það sé mitt barn,“ sagði hann. Hún sperrti brýnnar. „Jæja, ætlar þú að þræta fyrir það, því hefði ég ekki trúað á þig, Kalli!“ Ingunn og Ásta héldu sig í eldhúsinu, meðan samtal- ið fór fram. Þær komust þó ekki hjá því að heyra orð og orð á stangli, þegar á leið. Bæði voru farin að ger- ast hávær. „Gerðu það bara,“ heyrðu þær Karlsen segja ögr- andi. Sólveig talaði svo hratt, að engin orð urðu greind. Hún opnaði hurðina og þaut út úr stofunni og niður stigann. Karlsen stóð við gluggann og horfði á eftir henni geisast yfir götuna og hverfa fyrir hornið á skó- 'búðinni. Hún var auðsjáanlega öskureið. Ingunn gekk inn til hans. „Það var hraði á henni út,“ sagði hún. Karlsen hló kuldalega. „Mér er sama. Ég vona bara,. að hún komi aldrei aftur.“ Hann var eldrauður í fram- an og æstur. „Þú hefðir átt að heyra allt það, sem hún bar upp á mig. Ég er nærri viss um, að þetta er allt lygi með barnið, þótt hún sverji að það sé satt. Nokkru seinna um daginn hringdi síminn. Ingunn svaraði. Það var æst stúlkurödd, sem spurði eftir Karli Karlsen. Hann tók við símatækinu af móður sinni og kallaði: „Halló.“ „Þetta er heima hjá Sólveigu Indriðadóttur,“ sagði stúlkan fljótmælt og æst. „Það hefur orðið slys. Sól- veig varð fyrir bíl, þegar hún kom frá ykkur, rétt fyr- ir utan húsið hérna.“ „Hvað, slys,“ Karlsen náfölnaði. „Já, og nú hrópar hún í sífellu á yður. Þér verðið að koma strax!“ „Já, ég kem,“ tautaði hann hljómlausri rödd og lagði símann á. Hann ætlaði fram í eldhúsið, en áttaði sig og fór ofan eins og í leiðslu. „Hvað er um að vera?“ spurði Ásta og hljóp á eftir honum og greip í handlegg hans. „Sólveig varð fyrir bíl áðan,“ stundi hann upp. „Ég hefði ekki átt að láta hana fara svona æsta!“ „Guð minn góður!“ Ásta horfði skelfingu lostin á hann. Svo tók hún höndunum um háls honum og kyssti hann í fyrsta sinni að fyrra bragði. Hann þrýsti henni fast að sér augnablik, svo hljóp hann út. „Sérðu nokkuð til hans? Það er rauðbrúnn, lítill bíll, sem hann er í,“ sagði Sólveig áfjáð við Björgu, sem stóð við gluggann. Þær voru búnar að hella spritti í skál, svo einhver læknislykt skyldi vera þarna inni. Annan handlegg Sólveigar höfðu þær vafið rækilega með sárabindi, og einnig makað joði á enni hennar og límt síðan heljarmikinn plástur yfir, en létu þó joðið sjást út undan plástrinum. Þar var mikið sár. Að öðru leyti var andlit hennar gert náfölt og skuggar undir augunum. „Hananú, þar kemur hann,“ hrópaði stúlkan og flýtti sér að sækja glerkrukku með brytjuðum lauk fram í eldhús. Hún skrúfaði lokið af krukkunni, og Sólveig þefaði af öllum kröftum, unz tárin streymdu niður kinnarnar á henni, og hún gat varla haldið aug- unum opnum. „Fljótt fram með laukinn,“ stundi hún. „Þetta er víst nóg.“ Stúlkan setti krukkuna inn í skáp og hraðaði sér til dyra. „Guði sé lof, að þér eruð kominn,“ sagði stúlkan og dró Karlsen með sér inn í herbergi Sólveigar. í dyrun- um nam hann staðar. Sólveig lá náhvít með aftur aug- un, en andlitið flóði í tárum. Hún hreyfði höfuðið hægt og opnaði augun. „Kalli,“ hvíslaði hún ofurlágt og rétti fram heil- brigðu höndina. „Kalli, þú komst þó.“ Hann gekk hægt nær. „Já, Sólveig,“ tautaði hann lágt. „Ég kom.“ Hún leit á hann tárvotum augum. „Kalli, barnið.“ Hann sagði ekki neitt, kom ekki upp neinu orði. „Ég missti barnið,“ hvíslaði hún. „Það var þá satt.“ Karlsen strauk sér um ennið, hann vissi ekkert hvað hann ætti að segja. Stúlkan gekk fram og lofaði þeim að vera einum. Þá fannst Karlsen sem öll sund væru lokuð. Nú væri hann kominn í ófæru, sem engum væri fært úr. „Ertu einhvers staðar brotin?“ spurði hann lágt. „Nei, bara illa marin, og svo fékk ég slæman skurð á handlegginn og ennið.“ Hún var nú furðu hressileg í tali, en þá kom hjúkrunarkonan. „Elsku bezta Sólveig, þú mátt ekki reyna svona mik- ið á þig! Mundu hvað læknirinn sagði. Nú þarft þú að reyna að sofna. Svo kemur vinur þinn aftur í kvöld, þá verður þú hressari.“ Síðan lagfærði hún koddann og sængina mjög nærfærnislega. Sólveig kveinkaði sér, og Karlsen fannst kalt vatn renna sér milli skinns og hörunds. Þó gat hann ekki séð, að hún væri lífshættulega slösuð, en hann hafði nú lítið vit á því. — Ingunn og Ásta biðu heima í ofvæni. Karlsen sagði Heima er bezt 281

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.