Heima er bezt - 01.08.1962, Blaðsíða 35

Heima er bezt - 01.08.1962, Blaðsíða 35
91. „Fúsa dettur óðar í hug, að ég sé að leita fjárins þarna í múrnum, og reynir með smjaðri að fá mig til að leysa frá skjóðunni. Er það reynist árangurslaust, og ég er að fara burt, ræðst hann á mig.“ 92. „Svona var það, hélt hann áfram. „Fúsi fór sjálfur að leita í múrnum, gróf og losaði steina, en árangurslaust.Varð hann æstari og æstari. Svo komst þú og bjargaðir mér, vinur minn.“ 93. „Hvort ég viti nokkuð um þessa peninga? Það er lítið. Mig minnir að systir mín segji, að hún hefði falið þá hjá steinunum! En það eru þúsundir steina á þeim slóðum!“ 94. Snemma morguninn eftir kvaddi ég þetta vinafólk og hélt heim með Mikka. Á leiðinni var ég að velta fyrir mér fjár- sjóðnum týnda. Gamli skógarvörðurinn hafði sannarlega þörf fyrir þessar krón- ur, væru þær bara finnanlegar! 95. Það er ráðsmaðurinn, sem fyrstur býður mig velkominn heim aftur á stór- býlið. Hann er á eftirlitsferð úti á tún- inu. „Velkominn heim aftur, Óli!“ kall- ar hann glaður. „Hvar varstu? Við vor- um að leggja af stað að leita þín.“ 96. Ég segi honum allt, sem á dagana hefur drifið í fjarveru minni. Loks spyr ég hann, hvort honum geti ekki dottið í hug úrlausn á gátunni um geymslustað týndu peninganna. Ráðsmaðurinn hrist- ir aðeins höfuðið. 97. Ég segi að skógarvörðurinn hafi sagt eftir systur sinni, að hún hefði fal- ið peningana hjá steinunum. „Kannske er einhver staður þar, sem er mjög stein- óttur eða heitir ,steinar‘,“ segi ég. 98. Ráðsmaðurinn fer meg mig inn í skrifstofu og leitar þar að gömlu landa- bréfi af svæðinu, sem um er að ræða. At- hugar það um hríð sérstaklega umhverfis bæ gamla skógarvarðarins. -j*. 99. Svo rís hann upp og bendir mér á vissan blett á kortinu: „Þú nefndir steina! Líttu á! Skammt frá bænum ligg- ur hóll, sem er merktur „Steinar". Það skyldi þó ekki vera þar?“ Heima er bezt 291

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.