Heima er bezt - 01.01.1964, Side 13

Heima er bezt - 01.01.1964, Side 13
Frá vinstri: Bat Josef, kona Ferró, Soffia, Ferró og Siggeir. Engjafólk á Klaustri. Lárus á Klaustri lengst til hægri. og hæg milli Síðunnar og Landbrotsins. í vestri er einn af dásamlegustu smíðisgripum náttúrunnar, Systrastapi, þar sem nunnurnar sofa í helgri ró, en álfarnir stíga dans á tunglskinsbjörtum kvöldum, þegar máninn slær silfurbrú yfir Skaftá. í austri blasir Síðan við með Keldunúpi og Fossnúpi og fjær Lómagnúpur, sem engan á sinn líka hæsta standberg á Islandi, sem ekki nær að sjó, þar sem Járn- grímur stendur enn með staf sinn og kallar mennina, suma fyrr, suma síðar, eins og í draumi Flosa. Og fyrir framan þennan hamrajötunn sjáum við Öræfajökul rísa handan við óraleiðir sléttra sanda. Þannig er Klaustrið í magnaðri dul sögunnar og heill- andi fegurð landsins, sem er fagurt og frítt og fann- hvítir jöklanna tindar. Og maðurinn, sem er tilefni þessarar greinar, Sig- geir Lárusson, hann setur sinn svip á þennan stað. Og hversu hátt sem Klaustur rís í hugum okkar sem þekkj- um það, þá væri það þó annað en það er, ef hann væri horfinn þaðan. Q'r' v’it-^ £3>*7- © T & t 'ó’ 4 I © i v,» 4 4 4 4 4 4 1 UMSKIPTI Allvel síðast ýmsir sungu áður en þögn á landið sló. Stefán bóndi í Bessatungu bar af sinni kynslóð þó. Blóði voru Ijóð hans lituð, list þó prjddi sérhvern brag. — Nií eru einkum óljóð rituð. ísland, þii ert snautt í dag. Sn. J. X <3 f f ? ? ? © ? © y X © f f a BRÉFASKIPTI Pétur Halldóisson, Kjörseyri, Hrútafirði, Strandasýslu, óskar eft- ir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 13—15 ára. Ingibjörg Magnúsdóttir, Ketilsbraut 8, Húsavík, óskar eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 13—15 ára. Sólveig Þórðardóttir, Bröttuhlíð, Húsavík, óskar eftir bréfaskipt- um við pilta á aldrinum 13—15 ára. fíjörg Karlsdóttir, Ketilsbraut 5, Húsavík, óskar eftir bréfaskipt- um við pilta á aldrinum 13—15 ára. Davið Herbertsson og Þórarinn Sveinsson, báðir í Bændaskólan- um á Hvanneyri, Borgarfirði, óska eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 16—19 ára. Áslaug Sveinbjörnsdóttir, Sigriður Hannesdóttir og Ingibjörg Ölvisdóttir, allar í Skógaskóla, A.-Eyjafjöllum, Rangárvallasýslu, óska eftir bréfaskiptum við pilta á aldrinum 17—20 ára. Æskilegt að mynd fylgi. Maria M. Jónsdóttir, Litla-Hóli, Eyjafirði, óskar eftir bréfaskipt- um við pilta eða stúlkur 12—14 ára. Mynd fylgi. fíjörn Magnússon, Steinnesi, Þingi, A.-Hún., óskar eftir bréfa- skiptum við stúlkur á aldrinum 15—16 ára. Mynd fylgi. Vigdis Bergsdóttir, Hnausum, Þingi, A.-Hún., óskar eftir bréfa- skiptum við pilta á aldrinum 22—25 ára. Mynd fylgi. Elin S. Sigvaldadóttir, Hofsárkoti, Svarfaðardal, Eyjafjarðar- sýslu, óskar eftir bréfaskiptum við pilta og stúlkur á aldrinum 13— 15 ára. Adda H. Sigvaldadóttir, Hofsárkoti, Svarfaðardal, Eyjafjarðar- sýslu, óskar eftir bréfaviðskiptum við pilta og stúlkur á aldrin- um 13—15 ára. Sigrún Ragnarsdóttir, Húsmæðraskólanum Hallormsstað, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 17—25 ára. Jóhanna S. Ragnarsdóttir, Húsmæðraskólanum Hallormsstað, óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 15—17 ára. Anna S. Jónsdóttir, Munaðarnesi, Ingólfsfirði, Strandasýslu, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku 12—14 ára. Petrina Eyjólfsdóttir, Krossanesi, Norðurfirði, Strandasýslu, ósk- ar eftir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 13—14 ára. Helga Gunnarsdóttir, Eyri, Ingólfsfirði, Strandasýslu, ðskar eft- ir bréfaskiptum við pilt eða stúlku á aldrinum 11—13 ára. Edda Levy, Ósum, Vatnsnesi, V.-Hún., óskar eftir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 12—14 ára. Lára fírynja Hjaltadóttir, Vesturhópshólum, V.-Hún., óskar eft- ir bréfaskiptum við pilta eða stúlkur á aldrinum 12—14 ára. Heima er bezt 9

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.